30/05/2026
Sossa Björnsdóttir og Guðrún Vera Hjartardóttir sýna í Galleri Sam í Billund.
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Venus i Kaos með verkum eftir Sossu Björnsdóttur og Guðrúnu Veru Hjartardóttur í dag laugardaginn 30. maí frá kl 14:00 -17:00.
28/05/2026
Góðir gestir litu við s 🇮🇸 í dag ♥️ takk fyrir komuna Inga og Axel 🇮🇸
27/05/2026
Myndir frá skemmtilegum og fallegum tónleikum sem fram fóru sl. sunnudag þar sem GRADUALE NOBILI og Hafnarbræður sungu.
Fyrst sungu Hafnarbræður nokkur lög undir stjórn Sólu Aradóttur.
Kórinn GRADUALE NOBILI tók svo við og söng nokkur lög undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur.
Í lokin sungu kórarnir saman tvö lög saman og enduðu á þjóðsöngum.
26/05/2026
Leiksýningin Dead Air, í flutningi Álfrúnar Rose og í leikstjórn Önnu Maríu Tómasdóttur, verður sýnd á CPH Stage dagana 28. – 31. maí.
Leiksýningin Dead Air, í flutningi Álfrúnar Rose og í leikstjórn Önnu Maríu Tómasdóttur, verður sýnd á CPH Stage dagana 28. – 31. maí.
Dead Air er tragíkómískur tæknitryllir sem sameinar svartan húmor, beitta samtímasatíru og persónulega sögu um sorg. Sýningin hlaut frábærar viðtökur á Edinburgh Festival Fringe síðastliðið sumar og hefur sömuleiðis hlotið mikið lof gagnrýnenda.
Linkur á miðasölu er í fyrstu athugasemd.
---
Teaterforestillingen Dead Air, fremført af Álfrún Rose og instrueret af Anna María Tómasdóttir, opføres på CPH Stage den 28. – 31. maj.
Dead Air er en tragikomisk teknologithriller, der kombinerer sort humor, skarp samtidsatire og en personlig fortælling om sorg. Forestillingen fik en fremragende modtagelse på Edinburgh Festival Fringe sidste sommer og har også modtaget stor ros fra anmeldere.
Link til billetsalg findes i første kommentar
26/05/2026
Myndir frá yndislegum degi þar sem sr. Sigfús Kristjánsson þjónaði við altarið í síðasta sinn eftir s*x farsæl ár — fyrir troðfullri kirkju.
Að lokinni fermingarmessu var haldið í Jónshús þar sem boðið var upp á kveðjukaffi. Fjölmargir lögðu leið sína þangað til að kveðja presthjónin Sigfús og Dísu og þakka þeim fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu Íslendinga í Danmörku.
Íslenski Söfnuðurinn í Danmörku
Sigfús Kristjánsson