„Í Morgunblaðinu í síðustu viku var haft eftir bæjarstjóra Garðabæjar að ekki hefðu verið nein stór kosningamál í Garðabæ, nema kannski að klukkan á ráðhúsinu virkaði ekki. Ég verð að mótmæla því.“
Joanna okkar skrifar:
Garðabæjarlistinn
Frjáls og óháð með skýrt erindi! Velkomin í betri Garðabæ - fyrir okkur öll 🐱☀️
05/06/2026
Við þökkum kjósendum okkar kærlega fyrir stuðninginn í kosningunum 16. maí sl. og hlökkum mikið til kjörtímabilsins. Garðabæjarlistinn mun beita sér af öllu afli fyrir stefnumálunum sem við vorum kjörin til að halda á lofti.
Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins fór fram í gær, en hér er umfjöllun um hann á vefsíðu okkar - sem við ætlum að uppfæra reglulega með upplýsingum og fréttum.
Fyrsti fundur kjörtímabilsins – Garðabæjarlistinn Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins var haldinn fimmtudaginn 4. júlí 2026. Fundinn sat Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans. Kosið var í embætti og nefndir á fundinum, en Þorbjörg tekur sæti í bæjarráði og verður annar varaforseti bæjarstjórnar....
Kosningakaffi í Jötunheimum 10-16! ☀️
Á kosningadegi finnst okkur tími til kominn að útskýra kisa. Munum að kjósa í dag og setja X við G. 🐈
15/05/2026
Munum að setja X við G 🌻
Það þarf fjölbreyttan hóp til að mæta þörfum allra íbúa í Garðabæ. Garðabæjarlistann skipar þverskurður samfélagsins og öll viljum við berjast fyrir betri Garðabæ.
14/05/2026
Frambjóðendur Garðabæjarlistans verða á Garðatorgi föstudaginn 15. maí kl. 12-18. Verið hjartanlega velkomin að kíkja við og taka spjall.
-------
Candidates from Garðabæjarlistinn will be at Garðatorg on Friday, May 15, from noon until 6 PM. We kindly welcome you to stop by and have a chat about the upcoming elections.
X-G fyrir okkur öll ☀️🐱
Joanna Marcinkowska er 49 ára með fjölbreyttan bakgrunn í námi og starfi, bæði hér á landi og erlendis.
Starfsferill Joönnu hefur að stórum hluta snúist um málefni innflytjenda, mannréttindi og inngildingu. Hún hefur gegnt fjölbreyttum verkefnastjórastörfum hjá Reykjavíkurborg og í félagsmálaráðuneytinu, þar sem hún kom meðal annars að uppbyggingu og rekstri þjónustu fyrir innflytjendur. Samhliða starfi hefur hún verið virk í öflugu félagsstarfi og setið í stjórnum fjölmargra félagasamtaka sem tengjast jafnrétti, kvenréttindum og fjölbreytileika. Joanna er í 3. sæti Garðabæjarlistans.
Click here to claim your Sponsored Listing.
