Miðflokkurinn í Hafnarfirði

Miðflokkurinn í Hafnarfirði

Share

Miðflokkurinn í Hafnarfirði
[email protected]

05/06/2026

Í vikunni fór fram fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar og lagði Einar Geir Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði, fram eftirfarandi bókun um málefnasamning hins nýja meirihluta bæjarstjórnar:

Miðflokkurinn fagnar því að hækkun heimgreiðslna til foreldra að loknu fæðingarorlofi, sem var eitt af kjarnamálum flokksins í kosningabaráttunni, hafi verið tekin upp í málefnasamning nýs meirihluta. Miðflokkurinn lagði til 250 þúsund króna mánaðargreiðslu en meirihlutinn boðar 230 þúsund krónur. Það er fagnaðarefni, enda telur Miðflokkurinn brýnt að hagsmunir fjölskyldna í bænum séu í forgrunni á kjörtímabilinu.

Þá fagnar Miðflokkurinn því að móttaka hælisleitenda sé nú nefnd í málefnasamningi í fyrsta sinn. Sú málefnalega og nauðsynlega umræða sem Miðflokkurinn hefur staðið einn fyrir hefur þegar skilað árangri. Nú þarf hins vegar að fylgja orðum eftir með skýrum aðgerðum. Miðflokkurinn mun á kjörtímabilinu krefjast skýrra svara og fylgja því fast eftir að jafnræðis sé gætt milli sveitarfélaga, ríkið fjármagni málaflokkinn að fullu og að skýr mörk verði sett um getu og innviði sveitarfélagsins. Hafnarfjörður hefur gert nóg í þessum málaflokki.

Miðflokkurinn saknar þess að sjá raunverulega stefnu í skólamálum. Fræðslu- og uppeldismál eru stærsti kostnaðarliður bæjarins, yfir 25 milljarðar króna á ári, og samningurinn segir ekkert um innihald kennslu, mælanlegan námsárangur eða gagnsæi gagnvart foreldrum. Samningurinn gefur til kynna að langt sé á milli þessara þriggja flokka í skólamálum og að þeir hafi leyst þann ágreining með því að segja ekkert. Við getum ekki látið stærsta málaflokk sveitarfélagsins óáreittan í fjögur ár. Miðflokkurinn mun leggja fram tillögur um skólamál á kjörtímabilinu og meirihlutinn mun þurfa að taka afstöðu.

Miðflokkurinn vill einnig benda á að í samningnum er að engu farið í nokkur kosningamál sem snerta daglegt líf Hafnfirðinga. Ekkert er sagt um hvort meirihlutinn ætli að endurskoða þéttingarstefnuna sem hefur vakið almenna óánægju meðal íbúa. Ekkert er sagt um afnám hámarks á bílastæði við nýbyggingar. Þetta eru mál sem Miðflokkurinn mun halda á lofti.

Að lokum beinir Miðflokkurinn því til meirihlutans að nýta yfirstandandi endurskoðun samgöngusáttmálans til að verja hagsmuni Hafnarfjarðar af hörku. Krefjast verður skýrrar afstöðu til Borgarlínunnar, sem er eitt dýrasta og umdeildasta innviðaverkefni höfuðborgarsvæðisins en er hvergi nefnd á nafn í málefnasamningnum. Miðflokkurinn leggur til að meirihlutinn boði til íbúakosningar meðal Hafnfirðinga um framtíð samgöngumála í bænum, þar á meðal varðandi Borgarlínuna.

Miðflokkurinn mun starfa af ábyrgð, festu og málefnalegri einurð á kjörtímabilinu, hrósa því sem vel er gert en veita kröftugt aðhald og krefjast gagnsæis í öllum þeim málum sem snerta íbúa Hafnarfjarðar.

27/05/2026

Til upplýsinga vegna nýskráninga í Miðflokkinn.

Miðflokkurinn hefur ekki áður séð slíkan fjölda nýskráninga en skráningarkerfið sem heldur utan um allar skráningar hefur ekki stoppað síðan í morgun. Hverri nýrri skráningu fylgir ákveðin handavinna sem sem starfsmenn munu ganga frá á næstu dögum og því ættu nýir félagar að vera komnir inn í póstkerfi og annað fljótlega.

Skráning 27/05/2026

Skráið ykkur hér í Miðflokkinn!

Skráning Viltu taka þátt í að móta framtíð Íslands? Miðflokkurinn berst fyrir fullvalda og frjálsu Íslandi um alla tíð, með skynsemina að vopni.

27/05/2026
22/05/2026

Takk fyrir stuðninginn!

Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum fjórfaldaði Miðflokkurinn í Hafnarfirði fylgi sitt, úr 2,8% í 11,4%. Enginn flokkur jók fylgi sitt meira hlutfallslega. Við erum gríðarlega þakklát fyrir þennan mikla stuðning og og munum ekki bregðast kjósendum okkar.

Hafnfirðingar sendu skýr skilaboð um þá stefnu sem þeir vilja í bæjarfélaginu, m.a. með því að hafna Samfylkingunni og Vinstrinu.

Kosningaúrslitin sýndu skýran vilja Hafnfirðinga til breytinga og nýrrar áherslu í bæjarmálum. Það samræmist þó ekki stefnu Miðflokksins að útiloka aðra flokka. Við trúum því að það sé kjósenda að útiloka flokka, ekki frambjóðenda, það gera þeir með atkvæðum sínum. Miðflokkurinn gengur óbundinn til samstarfs en stendur fastur á kjarnastefnu sinni og gefur ekki afslátt af henni fyrir stöður eða völd, enda hefur það sýnt sig að Miðflokkurinn getur haft mikil áhrif hvort sem hann er í meiri- eða minnihluta.

Við hlökkum til að starfa fyrir bæjarbúa næstu fjögur árin sem munu finna að það munar um Miðflokkinn í Hafnarfirði.

18/05/2026

Niðurstöður skuggakosninga framhaldsskólanema í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026.

17/05/2026

Miðflokkurinn fékk flest atkvæði í krakkakosningunum sem haldnar voru í Hafnarfirði í aðdraganda kosninganna. Flokkurinn hlaut alls 502 atkvæði eða 25,2% greiddra atkvæða.

Want your business to be the top-listed Government Service in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address

Bæjarhraun 22
Hafnarfjörður
220