Vinnueftirlitið

Call Website Contact the organization

Vinnueftirlitið Vinnueftirlitið er miðstöð vinnuverndarstarfs í landinu.

Vinnueftirlitið er með aðalstöðvar að Dvergshöfða 2 í Reykjavík og átta starfsstöðvar víðs vegar um landið. Nánari upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma á landsbyggðinni er að finna á https://www.vinnueftirlit.is/um-vinnueftirlitid/starfsstodvar/

🚜 Vinnueftirlitið leitar að einstaklingi sem kann vel til verka og hefur viðeigandi menntun og þekkingu þegar kemur að v...
07/10/2026

🚜 Vinnueftirlitið leitar að einstaklingi sem kann vel til verka og hefur viðeigandi menntun og þekkingu þegar kemur að vinnuvélum og tækjum. Starfið felst í skoðunum á vinnuvélum og tækjum, mati á öryggi þeirra og ástandi, leiðbeiningum til atvinnurekenda og eftirfylgni með úrbótum.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík eða á Akureyri.

Nánari upplýsingar er að finna á alfred.is

Við leitum að einstaklingi sem kann vel til verka og hefur viðeigandi menntun og þekkingu þegar kemur að vinnuvélum og tækjum. Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks. Starfið...

✨ Vinnueftirlitið leitar að að einstaklingi með lausnarmiðað hugarfar sem hefur gaman af samskiptum við fólk, sýnir fagm...
06/10/2026

✨ Vinnueftirlitið leitar að að einstaklingi með lausnarmiðað hugarfar sem hefur gaman af samskiptum við fólk, sýnir fagmennsku í starfi og vill hafa jákvæð áhrif á öryggi og vellíðan starfsfólks á vinnustöðum landsins.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík.

Ef þig langar að taka þátt í að öll komi heil heim starfsævina á enda þá hvetjum við þig til að sækja um á alfred.is.

Við leitum að einstaklingi með lausnarmiðað hugarfar sem hefur gaman af samskiptum við fólk, sýnir fagmennsku í starfi og vill hafa jákvæð áhrif á öryggi og vellíðan fólks á vinnustöðum landsins. Við bjóðum upp á vinnustað sem leggur ríka áherslu á heilbrigða vinnustað...

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, hvetur til þess að fólk velti fyrir sér tilgangi starfa si...
02/10/2026

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, hvetur til þess að fólk velti fyrir sér tilgangi starfa sinna og hvaða áhrif þau hafa í samfélaginu. Það eykur ánægju í starfi og stuðlar að velgengni vinnustaða. Sjá nánar í Mannauði, sérblaði Morgunblaðsins, sem kom út í gær í tilefni af Mannauðsdeginum sem haldinn er í Hörpu í dag.

Sjá nánar 👇
https://www.mbl.is/bladid-pdf/monitor/mannaudur-2026.pdf

📌 Málstofan Vinnustaðamenning skóla fer fram á ráðstefnunni Menntakviku Háskóla Íslands í Sögu, nýju húsi Menntavísindas...
29/09/2026

📌 Málstofan Vinnustaðamenning skóla fer fram á ráðstefnunni Menntakviku Háskóla Íslands í Sögu, nýju húsi Menntavísindasviðs fimmtudaginn 1. október næstkomandi.

Á málstofunni verður fjallað um samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í skólum, sem gaf góða raun, en reynslan af því liggur til grundvallar sambærilegu verkefni sem nú fer fram á heilbrigðisstofnunum.

Málstofan hefst klukkan 15.45 og stendur til 17.15.

Markmið Menntakviku er að kynna og miðla því sem efst er á baugi í menntavísindum og tengdum sviðum hverju sinni. Sjá nánar 👇

Menntakvika er árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands þar sem kynntar eru nýjustu rannsóknir og þróunarverkefni í menntavísindum og skyldum greinum.

Ægir Ægisson, sviðsstjóri sviðs vinnuvéla og tækja hjá Vinnueftirlitinu, segir Vinnueftirlitið hvetja til þess að gengið...
28/09/2026

Ægir Ægisson, sviðsstjóri sviðs vinnuvéla og tækja hjá Vinnueftirlitinu, segir Vinnueftirlitið hvetja til þess að gengið sé úr skugga um að vinnuvélar og tæki séu réttilega CE-merkt áður en gengið er frá kaupum. Ægir var til viðtals í sérblaði Morgunblaðsins Vinnuvélar & tæki sem kom út föstudaginn 25. september síðastliðinn. Hann nefndi einnig nokkur dæmi um vanbúnað á vélum sem ekki reynast réttilega CE-merktar.

Sjá nánar 👇
https://www.mbl.is/frettir/kynning/2026/09/25/oryggi_vinnuvela_tharf_ad_vera_tryggt_fra_upphafi/

⚠️ Hefur orðið vinnuslys á vinnustaðnum þínum? Á eftir að tilkynna það?👉 Atvinnurekendum ber að tilkynna vinnuslys. Vinn...
14/09/2026

⚠️ Hefur orðið vinnuslys á vinnustaðnum þínum? Á eftir að tilkynna það?

👉 Atvinnurekendum ber að tilkynna vinnuslys.

Vinnueftirlitið heldur skrá yfir orsakir og tíðni vinnuslysa svo efla megi forvarnarstarf á vinnustöðum og koma í veg fyrir að slys endurtaki sig. Því er afar brýnt að atvinnurekendur sinni tilkynningarskyldu sinni.

Allar nánari upplýsingar finnur þú hér 👇

Atvinnurekendur þurfa að tilkynna um öll vinnuslys sem verða til þess að starfsmaður verður óvinnufær í einn eða fleiri daga umfram þann dag sem slysið varð.

🚜Vantar þig vinnuvélaréttindi?Nauðsynlegt er að hafa vinnuvélaréttindi til að stjórna réttindaskyldum vinnuvélum á Íslan...
10/09/2026

🚜Vantar þig vinnuvélaréttindi?

Nauðsynlegt er að hafa vinnuvélaréttindi til að stjórna réttindaskyldum vinnuvélum á Íslandi.

Vinnueftirlitið býður upp á stafrænt frumnámskeið á íslensku, ensku og pólsku sem veitir bókleg réttindi fyrir minni vinnuvélar. Standist nemendur bóklegt próf er hægt að hefja verklega þjálfun. Í kjölfarið er hægt að taka verklegt próf. Að því loknu er gefið út vinnuvélaskírteini.

Endilega kynntu þér málið 👇

Upplýsingar um vinnuvélaréttindi, hvaða skilyrði þarf að uppfylla og hvernig sótt er um slík réttindi.

✅ Vinnueftirlitið býður upp á stafrænt námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði á íslensku og ensku.Námskeiðið...
07/09/2026

✅ Vinnueftirlitið býður upp á stafrænt námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði á íslensku og ensku.

Námskeiðið fjallar um alla helstu þætti vinnuverndar og er einkum ætlað öryggistrúnaðarmönnum og öryggisvörðum, en líka þeim sem hafa áhuga á vinnuverndarmálum og vilja bæta hjá sér vinnuumhverfið 👷‍♀️👷‍♂️

Eftir námskeiðið eiga nemendur að hafa aukna þekkingu á vinnuverndarmálum og hafa verkfæri til að stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi.

Allar nánari upplýsingar 👇

Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.

Reynslan sýnir að frelsi, virðing og umburðarlyndi leiðir til framfara og velgengni. Þetta á við um einstaklinga, vinnus...
04/08/2026

Reynslan sýnir að frelsi, virðing og umburðarlyndi leiðir til framfara og velgengni. Þetta á við um einstaklinga, vinnustaði og samfélagið í heild - eins og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, lýsir í meðfylgjandi grein. Gleðilega hinseigin daga 🏳️‍🌈

Reynslan sýnir að frelsi, virðing og umburðarlyndi leiðir til framfara og velgengni. Þetta á við um einstaklinga, vinnustaði og samfélagið í heild eins og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, lýsir í meðfylgjandi grein.

🔥Vinnur þú með skurðaverkfæri, logsuðu, rafsuðu, heitt loft og gasloga? Slík vinna er kölluð heit vinna, en neistaflug o...
09/07/2026

🔥Vinnur þú með skurðaverkfæri, logsuðu, rafsuðu, heitt loft og gasloga? Slík vinna er kölluð heit vinna, en neistaflug og hiti sem getur stafað af slíkri vinnu getur valdið íkveikju og leitt til sprengi- og brunahættu.

Vinnueftirlitið hvetur þau sem vinna vinnu af þessu tagi til að kynna sér veggspjald um heita vinnu þar sem farið er yfir mikilvægar varúðarráðstafanir. Það er aðgengilegt á vefnum okkar á íslensku, ensku og pólsku: https://island.is/efni-og-efnaahaettur-a-vinnustodum/heit-vinna Þar er einnig að finna fræðsluefni um undirbúning heitrar vinnu og brunavarnir.

Address

Dvergshöfði 2
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 14:00

Telephone

+3545504600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vinnueftirlitið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Vinnueftirlitið:

Shortcuts

Share