Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur

Share

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt.

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt með rekstri menningarstofnana og íþróttamannvirkja, ásamt því að styðja við grasrótina í listalífinu, íþróttum og barnamenningu. Sviðið skipuleggur hátíðir í borginni og styður við fjölmarga viðburði og hátíðir sem lífga upp á lífið í borginni allt árið um kring.

Opnun Sundhallar Reykjavíkur frestast um nokkra daga 19/06/2026

🛠️Viðhaldsvinna sem hefur staðið yfir í Sundhöll Reykjavíkur hefur gengið vel en þó hafa komið upp nokkur ófyrirséð atriði sem kallað hafa á umfangsmeiri framkvæmdir í búningsklefum en upphaflega var gert ráð fyrir.

📍Af þeim sökum verður ekki hægt að opna Sundhöllina aftur mánudaginn 22. júní líkt og áður hafði verið auglýst.

🩵Allt kapp er lagt á að ljúka þeim framkvæmdum sem eftir standa og stefnt er að opnun seinni partinn í næstu viku. Nánari upplýsingar verða birtar um leið og sú tímasetning liggur fyrir.

Opnun Sundhallar Reykjavíkur frestast um nokkra daga Viðhaldsvinna sem hefur staðið yfir í Sundhöll Reykjavíkur hefur gengið vel en þó hafa komið upp nokkur ófyrirséð atriði sem kallað hafa á umfangsmeiri framkvæmdir í búningsklefum en upphaflega var gert ráð fyrir.

10/06/2026

☀️ Veðurguðirnir virðast vera í góðu skapi!

Það stefnir í sólríka og hlýja daga, svo nú er rétti tíminn til að skella sér í sund!💦

08/06/2026

*English below* 🧚 ✨ 🎨 Langar þig að gera eitthvað skapandi og skemmtilegt?
Kíktu þá á Tilbúning á Borgarbókasafninu Spönginni, á morgunn miðvikudaginn 3. júní!

Þátttakendum gefst þar tækifæri til að búa til blævængi, annað hvort eftir eigin höfði eða út frá sniðmátunum sem verða í boði.
Áhöld og efniviður verða á staðnum, en þátttakendum er velkomið að taka saumasettið með.

Aðgangur er ókeypis og skráning óþörf.
👉 Nánar: https://www.facebook.com/events/1661436075211272

//

🧚 ✨ 🎨 Would you like to do something creative and fun?
Then join us for a craft session at the Spöngin branch of the City Library, tomorrow Wednesday, June 3.

Participants will have the opportunity to make fairy wings, either from their own designs or using the templates provided.

Tools and materials will be available on site, but participants are welcome to bring their own sewing kits.

Admission is free and no registration is required.
👉 More information: https://www.facebook.com/events/1661436075211272

08/06/2026

*English below* 🎨 🌊 🐟 Tómas Helgi Kristjánsson opnar sýningu í Spönginni

Verkin á sýningunni Veiðislóð eru byggð á raunverulegum útlínum íslenskra veiðiáa og vatnasvæða. Með einföldum línum og stílhreinni framsetningu birtast staðirnir á nýjan hátt, þar sem áherslan færist frá smáatriðum yfir í heild, tilfinningu og minningar.

Hvert verk er bæði staður og minning; tilraun til að fanga það sem margir tengja við en sjá sjaldan með þessum hætti. Verkin vísa í árnar sem við þekkjum, minningarnar sem verða til á bökkum þeirra og ábyrgð okkar gagnvart ósnortinni náttúru.

Sýningin er fyrsta einkasýning Tómasar og markar upphaf frekari þróunar verkefnisins Veiðislóðar.

📍 Sýningaropnun: Föstudagurinn 5. júní kl. 16:30 á Borgarbókasafninu í Spönginni
📅 Sýningin stendur til: 30. júlí

Hluti af sölu verka rennur til Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF).

Nánari upplýsingar:
👉https://fb.me/e/dcG3vwIYf
👉https://borgarbokasafn.is/veidislod

//

🎨 🌊 🐟 Memories from the Riverbank | an exhibition by Tómas Helgi Kristjánsson opens today in Spöngin

The artworks are based on the actual outlines of Icelandic fishing rivers and water systems. Through simple lines and clean presentation, familiar places emerge in a new way, shifting the focus from detail to feeling, memory, and the bigger picture.

Each artwork is both a place and a memory: an attempt to capture something many people connect with but rarely see in this form. The exhibition reflects on the rivers we know, the memories created on their banks, and our shared responsibility toward untouched nature.

This is Tómas’s first solo exhibition and marks the beginning of the continued development of the Fishing Grounds project.

📍 Opening: Friday, June 5th at 4:30PM - Reykjavik City Library Spöng
📅 Exhibition runs until: July 30

A portion of the proceeds from artwork sales will support the North Atlantic Salmon Fund (NASF).

More information:
👉https://fb.me/e/dcG3vwIYf
👉https://borgarbokasafn.is/veidislod

08/06/2026
Gæsum og gæsarungum bjargað frá umferð og vörgum - RÚV.is 08/06/2026

Gæsum og gæsarungum bjargað frá umferð og vörgum - RÚV.is Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal er nú með nokkrar gæsafjölskyldur í umsjón sinni en einni fjölskyldunni var bjargað af mikilli umferðargötu í höfuðborginni og frá varginum, sem gerði allt til að ná ungunum.

03/06/2026

Leiktæki eru nú opin alla daga frá klukkan 10 til 18 ☀️☀️

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address

Reykjavík