Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn

Share

Velkomin á síðu Sjálfstæðisflokksins. Viltu ekki auglýsingar frá Sjálfstæðisflokknum? Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 25. maí 1929.

Leiðb: https://xd.is/auglysingar-fra-sjalfstaedisflokknum/
Opinn vettvangur áhugasamra um flokkinn og landsmál.
Ómálefnalegum og dónalegum skrifum verður eytt sem og grafískum áróðri. Ekki er um að ræða lista yfir félagsbundið Sjálfstæðisfólk. Öllum er frjálst að líka við síðuna, og hafa margir áhugasamir um þjóðmál, samfélagsmál og flokk gert það. Sjálfstæðisflokkurinn kann að beina auglýsingum

19/06/2026

„Það er ekki auðsótt að eignast húsnæði á Íslandi en það er ekki séríslenskt vandamál. Vextir eru þar ekki eina breytan þó það sé vissulega hárrétt að vextir eru hærri hér á landi en á meginlandinu. Enda hefur þróttur efnahagslífsins hér lengi verið meiri en í ESB og verðbólga sömuleiðis. Lágir vextir eru þó ekki endilega einkenni heilbrigðs hagkerfis, eins og stundum mætti ætla af umræðunni, ekkert frekar en háir.

Gjalda ber varhug við því þegar látið er að því liggja að lækkun vaxta sé í öllum tilfellum eftirsóknarverð því þannig verði ódýrara að taka lán og auðveldara að kaupa fasteign. Þar vantar samhengi annarra þátta eins og kaupmátt launa og eignaverð.“

Þú getur lesið alla grein Hildar í fyrstu athugasemd.

Photos from Sjálfstæðisflokkurinn's post 19/06/2026

Ásdís Kristjánsdóttir áfram bæjarstjóri í Kópavogi!

Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og Framsókn, hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi.

Nánar má lesa samstarfið í frétt í fyrstu athugasemd.

18/06/2026

Hvers vegna að ganga í samband þar sem lífskjör eru lakari, meiri ójöfnuður og meira atvinnuleysi en hér á landi?

Photos from Sjálfstæðisflokkurinn's post 18/06/2026

Samstarf allra flokka í Grindavík!

Oddvitar allra flokka í nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur vinna nú sameiginlega að samfélagssáttmála um framtíð Grindavíkur og samstarfi á nýju kjörtímabili.

Nánar má lesa um samstarfið í frétt í fyrstu athugasemd.

18/06/2026

„Hagsmunir okkar gagnvart Bandaríkjunum eru hins vegar margslungnir og vega þungt. Þess vegna hef ég vakið athygli á framgöngu utanríkisráðherra og hagsmunagæslu gagnvart Bandaríkjunum. Samkvæmt svari utanríkisráðherra við fyrirspurn minni fyrr á árinu hafði hún ferðast átta sinnum til Brussel á rúmu ári en ekki enn fundað með ráðamönnum í Washington.“

Þú getur lesið alla grein Diljár í fyrstu athugasemd.

18/06/2026

„Samgöngur landsins verða ekki byggðar upp með slagorðum einum saman.
Við þurfum minna af kynningarfundum og meira af framkvæmdum.
Við þurfum minna af stórum yfirlýsingum og meiri skýrleika um fjármögnun.
Og umfram allt þurfum við að sjá vélarnar raunverulega fara í gang.“

Þú getur lesið alla grein Bryndísar í fyrstu athugasemd.

17/06/2026

Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar
-Grein eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins.

Á þjóðhátíðardaginn sameinumst við um það sem gerir okkur að þjóð. Við drögum fánann að húni, komum saman með fjölskyldu og vinum og minnumst þess að sjálfstæði Íslands er ekki sjálfsagður hlutur sem kom af sjálfum sér. Sjálfstæði okkar er árangur langrar baráttu og þeirrar sannfæringar að Íslendingar eigi sjálfir að ráða örlögum sínum.

Þessi dagur hefur mikla þýðingu í hjörtum okkar Íslendinga. Dagurinn minnir okkur á Jón Sigurðsson og allt það fólk sem hélt fast í vonina um frjálst Ísland, jafnvel þegar sú framtíð virtist fjarlæg. Hann minnir okkur á kynslóðirnar sem börðust fyrir nýju stjórnskipulagi fyrir Ísland en einnig því að þjóðin fengi að standa á eigin fótum og taka eigin ákvarðanir.

Sú arfleifð er dýrmæt og hana eigum við að varðveita. Sjálfstæði birtist í því hvernig við hugsum um landið okkar, hvernig við ræðum framtíð þess og hvernig við tökum ákvarðanir sem varða komandi kynslóðir. Við eigum að standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar.

Við Íslendingar vitum að smá þjóð getur áorkað miklu þegar hún treystir eigin dómgreind, stendur saman og hefur kjark til að velja sína eigin leið. Saga okkar sýnir það. Saga lýðveldisins er saga þjóðar sem braust úr örbirgð og varð eitt farsælasta samfélag heims. Við nýttum auðlindir lands og sjávar, menntuðum okkur og með verðmætasköpun skópum við velferð sem gerir okkur að einhverju fremsta samfélagi heims.

Okkur hefur gengið vel hér á Íslandi. Það tókst ekki vegna þess að aðrir tóku ákvarðanir fyrir okkur. Það tókst vegna þess að við tókum ábyrgð á sjálfum okkur.

Heimurinn er að breytast hratt og óvissa í alþjóðamálum er mikil. Nýjar áskoranir birtast á sviði öryggis, efnahagsmála, tækni, orku og umhverfis. Við eigum að eiga gott samstarf við aðrar þjóðir. Við eigum að vera virkir þátttakendur á alþjóðavettvangi, standa með vinum okkar og bandamönnum og verja þau gildi sem okkur eru kær.

Við þurfum að tryggja að Ísland verði áfram land frelsis, ábyrgðar og tækifæra.

En gott samstarf byggist best á skýrri sjálfsmynd. Þjóð sem veit hver hún er veit líka hvernig hún á að starfa með öðrum. Við megum aldrei glata þeirri sýn að stærstu ákvarðanir um framtíð Íslands eigi að vera teknar af Íslendingum sjálfum. Í því kjarnast fullveldi landsins.

Á þjóðhátíðardaginn skulum við líka minnast þess að þjóð sem vill vera frjáls verður líka að vera tilbúin að ræða framtíð sína af alvöru og upplýst þjóð er betur til þess fallin að taka ákvarðanir sem eru henni sjálfri til heilla.

Ég hef óbilandi trú á Íslandi. Ég hef trú á dugnaði fólksins í landinu, á fjölskyldunum, fyrirtækjunum og öllum þeim sem leggja sitt af mörkum á hverjum degi. Þar liggur styrkur þjóðarinnar. Ekki í stærð hennar heldur í fólkinu sjálfu.

Á þjóðhátíðardegi er gott að minna sig á að sjálfstæðisbaráttunni lauk ekki með lýðveldisstofnuninni á Þingvöllum árið 1944, þótt þar hafi unnist stór sigur. Hvert tímabil hefur sínar áskoranir. Fyrri kynslóðir sóttu heimastjórn, fullveldi og lýðveldi. Þær reistu atvinnuvegi, skóla, samgöngur og velferðarsamfélag og færðu þjóðina úr fátækt til bjargálna, úr vanmætti til sjálfstrausts.

Verkefni okkar tíma eru önnur, en kjarni þeirra er sá sami. Við þurfum að tryggja að Ísland verði áfram land frelsis, ábyrgðar og tækifæra. Við þurfum að standa vörð um fullveldi okkar í heimi þar sem ákvarðanir færast æ oftar fjær fólkinu sem þær varða. Við þurfum að gæta þess að börnin okkar erfi land þar sem hægt er að stofna heimili, skapa verðmæti, varðveita íslenska tungu, nýta auðlindir af ábyrgð og lifa við öryggi.

Sjálfstæðið er verkefni hverrar kynslóðar.

Nú er það okkar að varðveita það. Til hamingju með daginn, kæru Íslendingar.

17/06/2026

Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru landsmenn🇮🇸💙

16/06/2026

Forsendur fyrir hallalausum fjárlögum á næsta ári eru brostnar

16/06/2026

„Markmið fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar um að stöðva hallarekstur ríkissjóðs er gott og gilt. Hins vegar er það þyngra en tárum taki að hún ætli sér fyrst og fremst að reyna að ná því markmiði með því að auka álögur. Sér í lagi þegar fyrir liggur að hærri skattar og gjöld hafa almennt neikvæð áhrif á framtakssemi og verðmætasköpun fólks og fyrirtækja og áhrif þeirra á mögulegar framtíðartekjur ríkissjóðs óvissar, í besta falli.“

Þú getur lesið alla grein Jens í fyrstu athugasemd.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address

Háaleitisbraut 1
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00