Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Vinstrihreyfingin - grænt framboð

Share

Vinstrihreyfingin – grænt framboð er vinstriflokkur sem leggur höfuðáherslu á jöfnuð og sjálfbærni. Hvorugt fær staðist án hins þegar til framtíðar er litið.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill beita sér fyrir róttækum þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra, sem vilja útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í samfélaginu. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill byggja upp lýðræði

11/06/2026

Ályktun UVG vegna nýsamþykkts frumvarps dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, um brottfararstöð fyrir fólk á flótta.

11/06/2026

“Allra gagnrýniverðast er að með lögunum er heimilað að frelsissvipta börn vegna stöðu foreldra þeirra. Við erum því að setja fólk og börn á bak við læstar dyr, ekki vegna þess hvað það hefur gert, heldur hver staða þess er í íslensku stjórnkerfi.”
Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Hlekkur í greinina 👇👇

09/06/2026

Mig skortir satt að segja orð…

Eitt er að þingmenn Jafnaðarmannaflokks Íslands hafi látið þetta þingmál fara í gegnum þingið. Og það án breytingatillagna frá þeim sjálfum, heldur með breytingatillögum frá Sjálfstæðisflokknum…annað er að hreykja sér af því !

Er “breið sátt” um það í þjóðfélaginu að geta frelsissvipt börn og fjölskyldur þeirra í allt að 9 daga vegna stöðu foreldra þeirra ? Þvert á það sem innlendar og erlendar stofnanir og mannréttindasamtök ráðlögðu að gera.

Og hvaða “verndarpakka ESB” er hér vísað í ?

Photos from Rósa Björk Brynjólfsdóttir's post 07/06/2026

Gleðilegan sjómannadag! ⚓️💙

Photos from Vinstrihreyfingin - grænt framboð's post 07/06/2026

Vel heppnaður flokksráðsfundur að baki! 💚❤️👏Góðir gestir og innihaldsríkar umræður um áherslumál fundarins: umhverfismál og vinnumarkaðsmál. 🌍🪏

Photos from Vinstrihreyfingin - grænt framboð's post 03/06/2026

Flokksráðsfundur VG verður haldinn laugardaginn 6. júní - góðir gestir, umhverfismálin og vinnumarkaðsmálin rædd og umfram allt, vinstri græn stjórnmál!

Photos from Vinstrihreyfingin - grænt framboð's post 02/06/2026

Flokksráðsfundur VG verður haldinn þann 6. júní! 🌱✊

Við mætum í Framhaldsskólann í Mosfellsbæ þar sem málefni líðandi stundar verða í brennidepli.

Á dagskránni er m.a. 🌎 sófaspjall og málefnastarf um umhverfismál, 👷‍♀️🧑‍⚕️umræður og rýni á mikilvægum áskorunum á vinnumarkaði og 💚 ávarp frá Rachel Millward, varaformanni Græningja í Bretlandi.

Húsið opnar kl. 08:30 – vertu hjartanlega velkomin/n/ð!

🔗 Skráning fer fram á vg.is



01/06/2026

Laugardaginn 6.6. höldum við flokksráðsfund í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ.
Fundurinn er opinn öllum félögum og framundan er spennandi dagur.
Húsið opnar kl. 08:30 og dagskrá hefst kl. 09:00. 👉

✍️Skráning fer fram á Vg.is
Beinn hlekkur í athugasemd!👇

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address

Suðurlandsbraut 10 (Kosningamiðstöð á Höfuðborgarsvæði)
Reykjavík