Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna

Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna

Share

Lífsbrú vinnur að sjálfsvígsforvörnum undir merkjum embættis landlæknis.

Markmið Lífsbrúar er að vinna að sjálfsvígsforvörnum í samræmi við samþykkta aðgerðaráætlun stjórnvalda.

Photos from Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna's post 21/05/2026

Semíkomman; lítið tákn með stóra merkingu.

Í ritmáli er semíkomma notuð þegar setning hefði getað endað, en heldur samt áfram.

Þess vegna hefur semíkomman orðið sterkt tákn fyrir fólk sem hefur glímt við sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaða eða djúpa vanlíðan. Hún minnir okkur á að sagan er ekki búin — þótt allt virðist óyfirstíganlegt á erfiðustu stundunum.

Semíkomman er hluti af kennimerki Lífsbrúar og vitundarvakningarátaksins Gulur september. Hún stendur fyrir von, áframhald og þá mikilvægu trú að lífið geti haldið áfram — með stuðningi, samtali og hjálp.

Við viljum minna á að engin þarf að standa ein með erfiðar hugsanir. Það er hægt að fá hjálp. Samtal getur skipt sköpum. Og sagan þín á sér framhald.

💛

Ef þú ert í bráðri hættu eða hefur áhyggjur af einhverjum, hringdu í 112.
Píeta-samtökin eru með síma 552 2218.

staðar

13/05/2026

Gul hjól á góðri ferð 💛

Við hjá Lífsbrú fögnum því að sjá gulan lit vekja athygli víða um bæinn og minna okkur á mikilvægi samtals, stuðnings og sjálfsvígsforvarna.

Takk fyrir fallega og áhrifaríka herferð, 🚲💛

Undirbúningur fyrir Gulan september er kominn á fullt 💛

Það er einstaklega ánægjulegt að sjá gul reiðhjól birtast víða um bæinn í tengslum við átakið Gul hjól – góð ferð, vitundarvakningu um að tekið sé eftir virkum vegfarendum, sem Reiðhjólabændur hafa sett upp samhliða Hjólað í vinnuna.

Herferðin hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli undanfarna daga og minnir okkur fallega á að Gulur september nálgast — vitundarvakning um sjálfsvígsforvarnir, samtal, stuðning og von.

Við hlökkum til að sjá gulan lit lýsa upp samfélagið með okkur í september.

📸 Mynd: Sigurður Jónas Eggertsson
💛

05/05/2026

💛 Ástvinamissir vegna sjálfsvígs – handbók til sjálfshjálpar fyrir aðstandendur

Að missa ástvin í sjálfsvígi er djúp og sársaukafull reynsla. Í slíkum aðstæðum getur verið erfitt að vita hvert er hægt að leita, hvað er eðlilegt að finna fyrir eða hvernig hægt er að taka næstu skref..

Handbókin er hugsuð fyrir þau sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi, aðstandendur þeirra og fagfólk sem veitir stuðning. Í henni má finna upplýsingar, ráð og leiðbeiningar sem geta hjálpað fólki að fóta sig á erfiðum tíma.

Handbókin er gefin út af Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis.

📘 Hægt er að nálgast handbókina rafrænt hér:
https://downloads.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1b9dH6uKJ7VrLK9B3Zn0Tq/8630e3e1187a9018edb17cfa1fa5de58/EL_Astvinamissir_A5_1.pdf

Einnig er hægt að fá handbókina í prentuðu formi með því að senda póst á:
📩 [email protected]

Það er engin ein rétt leið í gegnum sorgina en það getur verið hjálplegt að finna leiðsögn, skilning og stuðning — eitt skref í einu. 💛

📷 Ingibjörg Sveinsdóttir
_____________________________________

Þeim sem glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Píeta símann s. 552-2218, Upplýsingasíma heilsugæslunnar s. 1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s. 1717 og netspjallið 1717.is.

Þeim sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar s. 1700, netspjallið heilsuvera.is, og á Píeta símann s. 552-2218.

22/04/2026

🌼 Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis hefur lokið gerð uppfærðs öryggisgátlista sem ætlað er að styðja við öruggara umhverfi á sjúkra- og meðferðarstofnunum, búsetukjörnum og hjúkrunarheimilum

🌼 Listinn er unninn í samræmi við aðgerð 3.3 í aðgerðaráætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi.

👉 Hlekkur á frétt í fyrstu athugasemd

Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna 08/04/2026

Nú er opið fyrir tilnefningar til viðurkenningar Lífsbrúar 2026

Lífsbrú veitir árlega viðurkenningu til einstaklings og liðsheildar fyrir mikilsvert framlag til sjálfsvígsforvarna á Íslandi. Viðurkenningin er veitt fyrir að auka þekkingu á málefninu og fyrir að stuðla að bættri heilsu og líðan landsmanna.

Nú gefst öllum kostur á að senda inn tilnefningar og vekja athygli á einstaklingum og liðsheildum sem hafa unnið mikilvægt starf í þágu sjálfsvígsforvarna.

Tilnefningar eru sendar inn í ópersónugreinanlegu formi hér:
https://island.is/forvarnir-sjalfsviga/vidurkenning-lifsbruar

Viðurkenning Lífsbrúar var fyrst veitt 1. september 2024. Fyrri verðlaunahafar í flokki einstaklinga eru Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur og rithöfundur, og sr. Svavar Stefánsson, prestur. Í flokki liðsheilda hafa Píeta samtökin og Geðgjörgæsla Landspítala hlotið viðurkenninguna.

Við hvetjum öll til að senda inn tilnefningar og hjálpa okkur að varpa ljósi á það mikilvæga starf sem unnið er í þágu sjálfsvígsforvarna á Íslandi.

Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna. Viðurkenning Lífsbrúar

25/03/2026

🟨 Markvissar sjálfsvígsforvarnir hjá Lífsbrú

🍀 Hjá Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna, sem starfar undir merkjum embættis landlæknis, er unnið markvisst eftir aðgerðaáætlun til ársins 2030 með það að markmiði að fækka sjálfsvígum

Photos from Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna's post 19/03/2026

Rannsóknir, þekking og samvinna eru lykill að sterkari sjálfsvígsforvörnum.

Mánudaginn 16. mars kom fjölbreyttur hópur fagfólks og samstarfsaðila saman í Háskólanum á Akureyri á málþingi um rannsóknir á sjálfsvígum.

Á málþinginu var kynnt mikilvægt samstarfsverkefni um stofnun vettvangs samvinnu um rannsóknir á sjálfsvígum. Að verkefninu standa Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Landspítali háskólasjúkrahús. Við þetta tilefni undirrituðu fulltrúar þessara stofnana formlega yfirlýsingu um samstarf og stofnun rannsóknarvettvangsins.

Verkefnið hlaut 80 milljóna króna styrk frá ráðuneyti menningar-, nýsköpunar og háskólamála í lok árs 2024. Nú þegar er hafin rannsókn þar sem skoðaðir eru mögulegir áhrifaþættir allra sjálfsvíga og lyfjatengdra andláta á Íslandi, afturvirkt til ársins 2000.

Niðurstöður rannsóknarinnar munu nýtast til að styrkja sértækar sjálfsvígsforvarnir og skapa mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi rannsóknir á þessu sviði.

Á dagskrá málþingsins voru einnig erindi og pallborðsumræður þar sem fjallað var um stöðu sjálfsvígsforvarna á Íslandi, farið yfir tölulegar staðreyndir, kynntar nýjar rannsóknir og sagt frá þjónustu- og samfélagsúrræðum sem styðja við sjálfsvígsforvarnir.

Það er með samvinnu, þekkingu og sameiginlegri sýn sem hægt er að efla sjálfsvígsforvarnir til framtíðar. Við þökkum fyrir að fá að taka þátt í þessu mikilvæga samtali.

Hér má sjá upptöku af málþinginu á vef HA: https://www.unak.is/is/samfelagid/upptokur-og-utsendingar?r=d19fbb17-471f-44a4-ad3c-b40f00e1ba45

16/03/2026

Takk, Högni.

Högni Óskarsson geðlæknir hefur um árabil verið einn af lykilaðilum í sjálfsvígsforvörnum á Íslandi. Hann hefur unnið að rannsóknum, fræðslu og stefnumótun og lagt málaflokknum lið af mikilli þekkingu og óeigingirni.

Eftir að Högni lét af störfum sem geðlæknir tók hann að sér hlutverk faglegs ráðgjafa landlæknis í sjálfsvígsforvörnum. Það er ólaunað starf, en framlag hans hefur verið ómetanlegt. Hann var lykilmaður í stofnun Lífsbrúar – miðstöðvar sjálfsvígsforvarna árið 2024, sem tryggði sjálfsvígsforvörnum fast og ótímabundið fjármagn. Hann leiðir einnig mikilvæga rannsókn um áhættuþætti sjálfsvíga og lyfjatengdra andláta sem mun styrkja markvissar forvarnir til framtíðar.

Á myndinni eru Högni og Guðrún Jóna verkefnastjóri Lífsbrúar á stöðufundi nr. 50 frá því samstarfið hófst árið 2021.

Framlag Högna til sjálfsvígsforvarna á Íslandi er ómetanlegt. Takk fyrir, Högni.

Photos from Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna's post 10/03/2026

Mikilvæg fræðsla í sjálfsvígsforvörnum

Í febrúar og mars hefur Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna, í samstarfi við Biskupsstofu, staðið fyrir námskeiði fyrir presta, djákna og annað starfsfólk kirkjunnar.

Námskeiðið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í sjálfsvígsforvörnum en í aðgerð 4.3 er lögð áhersla á að efla fræðslu fyrir lykilaðila þ.e. þau sem gegna mikilvægu hlutverki í stuðningi, viðbrögðum og tilvísun áfram í viðeigandi þjónustu.

Heimsótt hafa verið prófastdæmi Skagafjarðar, Akureyrar, Suðurlands og Reykjavíkurprófastdæmi eystra og vestra, meðfylgjandi myndir eru svipmyndir úr heimsóknunum.

Lífsbrú þakkar góðar viðtökur, þátttöku og mikilvægt samtal. Það er dýrmætt að finna vilja til að styrkja þekkingu og verkfæri þeirra sem sinna fólki í viðkvæmum aðstæðum.

Við hlökkum til að heimsækja fleiri prófastdæmi á næstu mánuðum.

Photos from Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna's post 13/02/2026

Lífsbrú tók þátt í 1-1-2 degi Neyðarlínunnar sem haldinn var í Smáralind þann 11. febrúar.

Dagurinn var afar vel heppnaður og gaf gestum tækifæri til að kynnast mikilvægu starfi viðbragðsaðila sem sinna öryggi og lífsbjörgun á hverjum degi. Þar komu saman fjölmargir aðilar, þar á meðal Rauði krossinn, sjúkraflutningar og hjálparsveitir.

Kynningarefni viðburðarins var til fyrirmyndar og viðburðurinn undirstrikaði mikilvægi þekkingar, viðbragða og samvinnu þegar mest á reynir. Við það tilefni voru veittar viðurkenningar til að heiðra framúrskarandi framlag á sviði viðbragða og lífsbjörgunar.

Yngstu gestirnir nutu þess einnig að hitta Björnis brunabangsa, sem kom í heimsókn og vakti mikla lukku.

Lífsbrú þakkar fyrir boðið, góðar móttökur og dýrmætt samtal við almenning og samstarfsaðila um forvarnir, viðbrögð og leiðir til að vernda líf. 💛

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address

Katrínartún 2
Reykjavík
105