Brunavarnir Skagafjarðar

Brunavarnir Skagafjarðar

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Brunavarnir Skagafjarðar, Government Organization, Sæmundargata, Sauðárkrókur.

Brunavarnir Skagafjarðar eru með höfuðstöðvar á Sauðárkróki, einnig eru útstöðvar í Varmahlíð og á Hofsósi. 4 starfsmenn eru í fullu starfi og 27 manns í hlutastarfi.

Photos from Brunavarnir Skagafjarðar's post 28/04/2026

Gleðilegt sumar og gulur bíll!

Meðfylgjandi eru myndir frá æfingum slökkviliðsins í apríl, en þema mánaðarins var vatnsöflun og reykköfun. Á síðustu reykköfunaræfingu vetrarins var farið í svokallaðan „reykköfunarfótbolta“ þar sem tveir og tveir reykkafarar voru festir saman með límmbandi. Að taka reykköfun á þennan hátt reynir á samskipti og samhæfingu reykköfunarparsins.

Slökkviliðið sinnir líka sjúkraflutningum í Skagafirði og fengum við nýlega nýjan sjúkrabíl og erum við því með tvo „gula“. Hér fyrir neðan má sjá þá félaga saman.

31/12/2025

Vekjum athygli á neðangreindu.

Tilkynning vegna sinuhættu! ⚠⚠

Slökkviliðsstjórar á öllu Norðurlandi biðla til fólks að fara afar varlega með skotelda og opinn eld í dag, Gamlársdag. Afar þurrt er í veðri, gróður á svæðinu er mjög þurr og því hætta á að ef eldur kemst í sinu getur að breiðst hratt út.

Fólk er beðið um að kveikja ekki eld nærri sinu, kjarri og háu grasi og ekki vera með flugelda þar sem hætta er á að glóð úr þeim geti komið af stað sinubruna.

01/12/2025

1. desember er dagur reykskynjarans. Hvernig er staðan hjá þér og þínum nánustu?

Photos from Brunavarnir Skagafjarðar's post 14/10/2025

Óvenju mörg verkefni hafa verið hjá slökkviliðinu undanfarinn mánuð eða svo, ber þar helst að nefna eld í hjólhýsi, eld í rútu og eld í íbúðarhúsnæði og þegar þessi orð eru rituð eru nokkrir starfsmenn okkar að aðstoða Slökkvilið Fjallabyggðar sem hefur verið að berjast við eld í iðnaðarhúsnæði síðan í gærkvöldi. Verkefni tengd sjúkraflutningum hafa líka verið í stóru hlutverki hjá okkur, eins og svo oft áður.

Við fáum líka skemmtilegar heimsóknir á slökkvistöðina og fengum við á dögunum heimsókn frá nemendum og starfsfólki á starfsbraut FNV, þar sem að þau fengu að fara upp í körfubílnum okkar og æfa notkun handslökkvitækja. Meðfylgjandi eru myndir frá heimsókninni.

15/02/2024

Góðan dag.

Hér koma helstu tölfræðimolar slökkviliðsins fyrir árið 2023.

Sjúkraflutningar voru 485, sem er mesti fjöldi sjúkraflutninga á einu ári hjá Brunavörnum Skagafjarðar. Stærsti mánuður ársins var janúar, en í honum voru 55 sjúkraflutningar. Flestir sjúkraflutningar hjá okkur eru frekar tímafrekir, en í tæplega 57% tilfella er farið með sjúkling á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Útköll slökkviliðsins voru samtals 28, flest voru þau vegna elds af einhverju tagi í byggingum, eða 6 talsins. Einnig má nefna gróðurelda og vatnsleka sem voru ekki langt undan.

Eldvarnarúttekir, þar sem eldvarnareftirlit fer í fyrirtæki/stofnanir og tekur út brunavarnir, sem og öryggis- og lokaúttektir voru nálægt 200.

Að lokum verður einnig að minnast á þann mikla fjölda fólks sem fékk fræðslu í eldvörnum, að ógleymdum öllum slökkvitækjunum hjá einstaklingum og fyrirtækjum sem voru þjónustuð.

04/07/2023

Eldur kom upp í fjölbýlishúsi á Sauðárkróki í kvöld. Upptökin má rekja til þurrkara, staðsettum á baðherbergi í einni íbúð hússins. Íbúi reyndi að slökkva eldinn með handslökkvitæki án árangurs áður en slökkviliðið kom á vettvang. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem hafði náð að breiðast út í baðherberginu. Reykræsta þurfti íbúðina og stigagang hússins.

Einnig má bæta við að eldur kom upp í iðnaðarhúsi á Sauðárkróki í síðustu viku þar sem rekja má upptök eldsins til bilunar í gömlu loftljósi með þeim afleiðingum að það náði að kveikja eld í plasttunnum sem voru neðan við ljósið. Snarræði starfsmanns í húsinu sem uppgvötaði eldinn og náði að slökkva hann kom í veg fyrir stjórtjón á húsinu. Slökkviliðið reykræsti svo húsið.

Óvenju mikill fjöldi verkefna hefur verið hjá slökkviliðinu það sem af er ári, hvort sem er í sjúkraflutningum eða slökkviliðstengdum verkefnum.

Photos from Brunavarnir Skagafjarðar's post 30/12/2022

Við hjá Brunavörnum Skagafjarðar óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum það liðna. Förum varlega um áramótin sem og aðra daga.

Meðfylgjandi eru myndir af nýjum bakvaktabíl slökkviliðsins. Á pallinum er lítið en öflugt "One Seven" slökkvikerfi sem nýtist okkur í minni verkefni.

Photos from Brunavarnir Skagafjarðar's post 13/12/2022

Slökkviliðið hittist í kvöld á síðustu æfingu ársins. Farið var yfir búnað sjúkra- og slökkvibíla. Einnig var æfð meðferð handslökkvitækja af ýmsum gerðum og beitingu eldvarnateppis. Í lok æfingarinnar var nýtt "One Seven" slökkvikerfi á dælubílnum prófað, meira af því síðar :) Í lokin má bæta að veitingarnar voru ekki af verri gerðinni, þar sem konfektið, smákökurnar og klementínurnar stóðu við sitt.

01/12/2022

1. desember er dagur reykskynjarans, en hann er mikilvægasta öryggistæki heimilisins. Hvernig er staðan hjá þér?

30/11/2022
Want your business to be the top-listed Government Service in Sauðárkrókur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address

Sæmundargata
Sauðárkrókur
550