Uppsveitir Árnessýslu

Call Website Contact the organization

Uppsveitir Árnessýslu Tourist Destination in South Iceland

Ert þú starfandi í ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu?Ef svo er þá er þér boðið á fund þriðjudaginn 3. nóvember nk. S...
02/11/2026

Ert þú starfandi í ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu?

Ef svo er þá er þér boðið á fund þriðjudaginn 3. nóvember nk.

Smelltu á fréttina hérna fyrir neðan fyrir frekari upplýsingar 👇

2. nóvember Ert þú starfandi í ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu? Sveitarfélög Uppsveita Árnessýslu hafa tekið þá ákvörðun að leggja af stað í vegferð þar sem vakin verður athygli á mikilvægi ferðaþjónustunnar í Uppsveitunum. Ástæðan eru þær auknu álögur se...

Uppsprettan!Þann 6.-7. nóvember 2026 verður Horseday-höllin í Ölfusi vettvangur hátíðar atvinnulífsins sem enginn ætti a...
12/10/2026

Uppsprettan!

Þann 6.-7. nóvember 2026 verður Horseday-höllin í Ölfusi vettvangur hátíðar atvinnulífsins sem enginn ætti að missa af!

Þetta er fyrsti heildstæði viðburður sunnlensks atvinnulífs, nýsköpunar og frumkvöðla!

🚀 Taktu þátt í þessu með okkur og mótum sögu Suðurlands er varðar framtíðaruppbyggingu saman! ✨

Kastljósinu verður beint að kraftinum, hugmyndunum og tækifærunum sem búa á Suðurlandi og þeim fjölbreyttu lausnum sem eru að móta framtíð atvinnulífs og samfélags á svæðinu.

Hátíðin sameinar ráðstefnu, sýningarsvæði, kynningar og tengslamyndun í lifandi og spennandi dagskrá þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki, fjárfestar, sveitarfélög, stuðningsaðilar og almenningur koma saman.

Gestir fá tækifæri til að kynnast nýjum hugmyndum, hitta fólkið á bak við fyrirtækin og sjá hvernig nýsköpun verður til í raunverulegu samhengi í matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu, orku, tækni, skapandi greinum og samfélagsþróun.

Á hátíðinni verður einnig kynnt nýsköpunarstefna Suðurlands, sem markar tímamót þar sem Suðurland verður fyrsti landshluti Íslands til að setja sér heildstæða stefnu um nýsköpun.

Kíktu á drög af dagskránni https://uppspretta.sass.is/is/p/gestir
Kíktu á upplýsingar fyrir sýnendur https://uppspretta.sass.is/is/p/uppspretta-synendur
Allar frekari upplýsingar má finna inná https://uppspretta.sass.is/is

Kallað eftir áhrifamati og raunverulegu samráði vegna gjaldtöku á Gullna hringnumFulltrúar sveitarfélaga og ferðaþjónust...
09/10/2026

Kallað eftir áhrifamati og raunverulegu samráði vegna gjaldtöku á Gullna hringnum

Fulltrúar sveitarfélaga og ferðaþjónustunnar kalla eftir áhrifamati og raunverulegu samráði vegna áforma um gjaldtöku á Gullna hringnum og hækkun virðisaukaskatts á baðlón.

Á fundi sem byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu boðaði til í vikunni komu fram miklar áhyggjur af fyrirhugaðri gjaldtöku á þremur áfangastöðum á Gullna hringnum og hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%. Í umræðum var lögð áhersla á að breytingarnar gætu haft víðtæk áhrif á rekstur fyrirtækja, atvinnulíf og áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu.

Á fundinum tóku meðal annars til máls fulltrúar sveitarfélaga í Uppsveitum, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Markaðsstofu Suðurlands og ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu.

Gjaldtaka á afmörkuðu svæði vekur áhyggjur

Fundarmenn gagnrýndu að fyrirhuguð gjaldtaka næði sérstaklega til áfangastaða á Gullna hringnum. Bent var á að öflug ferðaþjónusta á svæðinu hefði byggst upp með fjárfestingum, samstarfi og markvissri þróun þjónustu og ferðaleiða. Breytingar á aðsókn gætu því haft áhrif langt út fyrir þá staði þar sem gjaldið yrði innheimt. Í umræðum var einnig bent á að ferðamenn hefðu takmarkað fjármagn til ráðstöfunar og aukin gjaldtaka gæti dregið úr útgjöldum þeirra til gistingar, veitinga, afþreyingar og verslunar í nærsamfélaginu.

Framkvæmdastjóri SAF gerði grein fyrir aðkomu samtakanna að viðræðum við stjórnvöld og áréttaði að samtökin væru andvíg fyrirliggjandi áformum. Hann hafnaði því jafnframt að SAF hefði óskað eftir því að gjaldtakan yrði bundin við Gullna hringinn.

Hækkun á baðlón gæti dregið úr fjárfestingu

Sérstakar áhyggjur komu fram af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Fundarmenn töldu hana geta dregið úr fjárfestingu og veikt forsendur áframhaldandi uppbyggingar á landsbyggðinni.

Í umræðum var lögð áhersla á afleidd störf í tengslum við baðlón. Framkvæmdastjóri Fontana lýsti því að þegar fyrirtækið lokaði tímabundið vegna framkvæmda hefði samdráttur einnig orðið í gistingu, veitingum og verslun á Laugarvatni. Sú reynsla sýndi hversu náið rekstur fyrirtækja í nærsamfélaginu væri samtvinnaður. Einnig var bent á að baðlón væru mikilvægur hluti af vellíðunarferðamennsku og þeirri þjónustu sem laðar að ferðamenn sem nýta fjölbreytt framboð á svæðinu.

Kalla eftir gögnum og raunverulegu samráði

Fundarmenn kölluðu eftir heildstæðu áhrifamati á fyrirhugaðar breytingar. Fram kom gagnrýni á að fullnægjandi greiningar á áhrifum gjaldtökunnar og skattahækkunarinnar hefðu ekki verið kynntar.

Rætt var um að skoða þyrfti aðrar útfærslur, meðal annars gjaldtöku sem næði til fleiri áfangastaða eða þjóðgarða, ef stjórnvöld héldu áformunum til streitu. Ekki kom fram ein sameiginleg tillaga um slíka útfærslu, en rík áhersla var lögð á að fallið yrði frá hækkun virðisaukaskatts á baðlón.

Í lok fundar var hvatt til þess að sveitarfélög, fyrirtæki og samtök skiluðu rökstuddum umsögnum og kæmu sjónarmiðum sínum á framfæri við stjórnvöld. Jafnframt var lagt til að sveitarfélögin óskuðu eftir fundi með forsætis- og fjármálaráðherra. Skýr krafa kom fram um að ákvarðanir um framtíðargjaldtöku byggðust á gögnum, mati á áhrifum á nærsamfélög og raunverulegu samráði við þá sem standa að atvinnu og uppbyggingu á svæðinu.

Fulltrúar sveitarfélaga og ferðaþjónustunnar kalla eftir áhrifamati og raunverulegu samráði vegna áforma um gjaldtöku á Gullna hringnum og hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Á fundi sem byggðaþróuna…

Ferðaþjónustuaðilar í Uppsveitum ræddu gjaldtöku og rekstrarskilyrði við atvinnuvegaráðherra.Forsvarsmenn ferðaþjónustuf...
01/10/2026

Ferðaþjónustuaðilar í Uppsveitum ræddu gjaldtöku og rekstrarskilyrði við atvinnuvegaráðherra.

Forsvarsmenn ferðaþjónustufyrirtækja í Uppsveitum Árnessýslu funduðu með atvinnuvegaráðherra um stöðu og þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Á fundinum var meðal annars rætt um fyrirhugaða gjaldtöku á fjölsóttum ferðamannastöðum, skattabreytingar, leyfisveitingar og mikilvægi fyrirsjáanlegs rekstrarumhverfis.

Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu, opnaði fundinn og fjallaði um þá miklu uppbyggingu sem orðið hefur í ferðaþjónustu á svæðinu undanfarin ár. Hún benti á að Uppsveitirnar hefðu þróast úr því að vera fyrst og fremst viðkomustaður ferðamanna í áfangastað þar sem gestir dvelja lengur og nýta fjölbreytta þjónustu.

Rakel velti því jafnframt upp hvort fremur mætti tala um „Gullnu keðjuna“ en Gullna hringinn í ljósi fjölgunar áfangastaða og þeirrar uppbyggingar sem orðið hefur á svæðinu. Hún benti á að heilsársferðaþjónusta hefði skapað stöðugri störf, stutt við búsetu og aukið framboð þjónustu og afþreyingar fyrir íbúa.

Áhyggjur af áhrifum gjaldtöku

Knútur Rafn Ármann, framkvæmdastjóri og eigandi Friðheima, fjallaði um kynslóðaskipti í atvinnulífinu og fyrirhugaða gjaldtöku á náttúruperlum.

Hann lýsti áhyggjum af áhrifum gjaldtöku á Þingvöllum, við Gullfoss og Geysi á fyrirtæki og samfélög í Uppsveitum, þar sem ferðaþjónusta hefur mikið vægi í atvinnulífi svæðisins. Hann kallaði eftir því að aðrar leiðir yrðu einnig skoðaðar, meðal annars komugjald eða náttúrupassi sem næði til landsins alls.

Í umræðum var einnig bent á mikilvægi þess að meta samanlögð áhrif fyrirhugaðra gjalda og annarra breytinga á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar. Óvissa og skammur fyrirvari gætu haft áhrif á fjárfestingar, verðlagningu og skipulag ferða og þar með á atvinnulíf og þjónustu í nærsamfélaginu.

Ráðherra sagði markmið fyrirhugaðs náttúru- og innviðagjalds vera að fjármagna uppbyggingu og viðhald innviða ásamt markaðsstarfi, rannsóknum og greiningum. Markmiðið væri ekki að beina ferðamönnum frá Gullna hringnum. Hún hvatti hagsmunaaðila til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í samráðsferlinu.

Baðlón og leyfismál

Bryndís Björnsdóttir fjallaði um uppbyggingu Laugarás Lagoon og mikilvægi fyrirtækja á landsbyggðinni þegar kemur að því að skapa heilsársstörf og auka verðmætasköpun.
Hún lýsti áhyggjum af fyrirhuguðum skattabreytingum á baðlón og benti á að aukinn kostnaður gæti skilað sér í hærra verði til gesta, jafnt Íslendinga sem erlendra ferðamanna.

Hákon rakti reynslu sína af uppbyggingu og rekstri Hótels Brúar og þeim hindrunum sem hann hefði mætt í tengslum við leyfisveitingar og eftirlit. Í umræðum var kallað eftir styttri afgreiðslutíma, skýrari kröfum og auknu jafnræði milli rekstraraðila og landshluta.

Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, stýrði fundinum og ítrekaði í lok hans vilja fundargesta til áframhaldandi samtals við stjórnvöld um þau mál sem rædd voru og mikilvægi þess að sjónarmið fyrirtækja og sveitarfélaga á svæðinu komi fram í áframhaldandi vinnu.

Ráðherra tók undir mikilvægi samráðs og sagði ábendingar fundarins og umsagnir í samráðsferlinu verða mikilvægt innlegg í áframhaldandi vinnslu málanna.

120 konur búnar að skrá sig a þetta glæsilega skemmtikvöld kvenfélaganna í Uppsveitum. Örfáir miðar eftir. Ertu með?
29/09/2026

120 konur búnar að skrá sig a þetta glæsilega skemmtikvöld kvenfélaganna í Uppsveitum. Örfáir miðar eftir. Ertu með?

Frístunda- og íþróttahlaðborð Uppsveitanna um helgina (26. sept). ---- english below ----Kjörið tækifæri fyrir unga sem ...
24/09/2026

Frístunda- og íþróttahlaðborð Uppsveitanna um helgina (26. sept).
---- english below ----

Kjörið tækifæri fyrir unga sem aldna að kynna sér það félagastarf sem er í boði í Uppsveitunum. Sjáumst í íþróttahúsinu á Laugarvatni á laugardaginn klukkan 10:00

---- english ----
Leisure and sports Fair of Uppsveitir this weekend (26. sept.)

A perfect opportunity for young and old alike to explore the club activities available in the Uppsveitir area. See you at the sports hall in Laugarvatn this Saturday at 10:00am

Ert þú með hugmynd sem getur eflt atvinnulíf, nýsköpun eða menningu hér á Suðurlandi?Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur...
21/09/2026

Ert þú með hugmynd sem getur eflt atvinnulíf, nýsköpun eða menningu hér á Suðurlandi?

Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur nú formlega opnað fyrir umsóknir!

Sjóðurinn er gríðarlega mikilvægur bakhjarl fyrir framsækin verkefni og er lykiltæki til að koma hugmyndum í framkvæmd.

👉 Umsóknarfrestur rennur út 21. október kl. 14:00.
🤝Ekki gleyma að kynna ykkur úthlutunarreglurnar vel og nýta ykkur gjaldfrjálsa ráðgjöf hjá okkar frábæru byggðaþróunarfulltrúum áður en sótt er um!

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga auglýsa nú eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Suðurlands fyrir árið 2026. Sjóðurinn opnaði formlega fyrir umsóknir ...

Address

South
Selfoss
801

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Uppsveitir Árnessýslu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Uppsveitir Árnessýslu:

Shortcuts

Share