Betri sveit- fyrir okkur öll

Betri sveit- fyrir okkur öll

Share

Betri sveit – fyrir fólkið.
Íbúalýðræði, samvinna og sanngirni. Við byggjum betra sveitarfélag – saman í Grímsnes og Grafningshreppi.

Sveitarstjórn - 617. fundur - 03.06.2026 12/06/2026

Í upphafi kjörtímabils nýrrar sveitarstjórnar.

Þau voru mörg og stór málin sem voru á dagskrá á 617. fundi sveitarstjórnar sem haldinn var í stjórnsýsluhúsinu Borg þann 3. júní síðastliðinn. Þetta var fyrsti fundur nýs kjörtímabils þar sem nýir fulltrúar skiptu með sér verkum.

Samvinna meirihluta og minnihluta í sveitarstjórnum byggist á gagnkvæmu trausti, upplýsingamiðlun og virðingu fyrir ólíkum hlutverkum. Þó að meirihlutinn fari með stjórn sveitarfélagsins kveða lög og góðir stjórnsýsluhættir á um að minnihlutinn eigi rétt á aðkomu að málum. Góð samvinna í sveitarstjórn er oftar en ekki lykillinn að árangursríkri stjórnsýslu, öflugri uppbyggingu og bættri þjónustu við íbúa sveitarfélaga.

Sveitarstjórnarfulltrúar eru og eiga að vera sjálfstæðir í störfum sínum, einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála eins og kveðið er á um í sveitarstjórnarlögum.

Við sögðum það í aðdraganda kosninganna að við vildum stækka borðið og sú afstaða okkar hefur ekki tekið breytingum, síður en svo. Framundan eru fjögur ár þar sem við munum starfa af heilindum fyrir íbúa sveitarfélagsins og tryggja að allar raddir fái að heyrast við borðið.

Andres Bertelsen, fulltrúi Ö-lista í sveitarstjórn: [email protected]
Ragna Ívars, varamaður í sveitarstjórn: [email protected]

Hér má nálgast fundargerð fyrsta fundar sveitarstjórnar á þessu kjörtímabili:

Sveitarstjórn - 617. fundur - 03.06.2026 Ragnheiður Eggertsdóttir setti fundinn sem sá fulltrúi sem hefur lengstan starfsaldur í sveitarstjórn og stýrði honum í samræmi við sveitarstjórnarlög þar til oddviti var kjörinn.

16/05/2026

🌿 Gleðilegan kjördag 🌿

Í dag veljum við ekki bara fólk í sveitarstjórn.
Við veljum hvernig samfélag við viljum byggja saman næstu árin.

Við í Betri sveit trúum á samfélag þar sem allir fá að tilheyra, þar sem rödd fólks skiptir máli og þar sem stjórnsýslan vinnur fyrir íbúana af ábyrgð, gagnsæi og heilindum.

Við viljum þakka öllum þeim sem hafa átt samtal við okkur síðustu vikur, komið með hugmyndir, gagnrýni, stuðning og trú á betri framtíð fyrir sveitarfélagið okkar.

Nú er komið að ykkur, kæru íbúar.
Nýtið kosningaréttinn. Rödd ykkar skiptir máli.

X - Ö
Betri sveit- fyrir okkur öll 🌱

15/05/2026

Skilaboð til þín 💚

15/05/2026

Við biðjum ekki aðeins um atkvæði. Við biðjum um traust.
Atkvæði þitt mun skipta máli 💚

15/05/2026

Við viljum vinna fyrir okkur öll 💛
Andres Bertelsen

14/05/2026

Við skiptum öll máli 💚

Photos from Betri sveit- fyrir okkur öll's post 14/05/2026

Gróðrarstöðin Sunna á Sólheimum bauð gestum að koma í dag að tína sér tómata í fötur. Takk fyrir okkur

14/05/2026

Við viljum vinna fyrir okkur öll 💚

14/05/2026

Við viljum vinna fyrir okkur öll 💛
Ragna Ívars

Þess vegna bið ég ykkur um að setja X við Ö 14/05/2026

„Kosningarnar snúast ekki um okkur gegn ykkur. Þær snúast um framtíð sveitarfélagsins okkar.“

Heimir Karls

Þess vegna bið ég ykkur um að setja X við Ö Í Grímsnes- og Grafningshreppi stöndum við á tímamótum. Við búum í einu fallegasta sveitarfélagi landsins, þar sem náttúran, kyrrðin og samfélagið skapa einstök lífsgæði. En fegurðin ein og sér næg…

Want your business to be the top-listed Government Service in Selfoss?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address

Herjólfsstígur 20
Selfoss
805