03/04/2026
Kría, félag sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi, heldur aðalfund 9. apríl kl. 17:30 að Austurströnd 3.
Dagskrá er svohljóðandi skv. samþykktum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla um fjárhag.
3. Umræður um skýrslur.
4. Kosning stjórnar. (Kosið er annað hvert ár svo þessi liður fellur niður)
5. Árgjald ákveðið.
6. Lagabreytingar.
7. Önnur mál.
Við hvetjum allar sjálfstæðiskonur á Seltjarnarnesi til að fylgja Kríu á Facebook.
Kveðja,
Stjórn Kríu
07/02/2026
Kjörstaður hefur opnað! 💙
Kosið verður milli klukkan 9:00-18:00 í sal Sjálfstæðisfélags Seltirninga á Austurströnd 3.
Allir sem eru skráðir í Sjálfstæðisflokkinn með lögheimili á Seltjarnarnesi geta tekið þátt. Hægt verður að skrá sig í flokkinn á staðnum á kjördag.
Kjósa skal 5 manns, hvorki fleiri né færri svo kjörseðill teljist gildur.
Muna þarf að taka með löggild skilríki.
Hægt verður að kjósa í anddyri fyrir þá sem ekki treysta sér upp stigann.
Fjölmennum á kjörstað og stillum upp sterkum lista 🙌💙
05/01/2026
Nú er tækifærið að enn fleiri sem brenna fyrir Seltjarnarnesbæ vinni að bæjarmálunum með okkur 💙
Verið velkomin í starfið ! - Sjálfstæðisfélag Seltirninga
Kæru Seltirningar! Fyrir hönd Sjálfstæðisfélags Seltirninga vil ég hvetja alla þá sem hafa áhuga á því að gefa kost á sér að bjóða sig fram til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Framboðsfrestur rennur út 10. janúar en ...
04/12/2025
Kría, félag sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi, fagnar nýlegri ákvörðun Valhúsaskóla um að innleiða símabann og óskaði eftir stuttu innleggi frá Helgu Þórdísi Jónsdóttur, skólastjóra Valhúsaskóla. Símamál hafa verið til umræðu í skólanefnd og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hvatt til skýrari reglna í Valhúsaskóla í þágu betra námsumhverfis. Nú hefur skólinn tekið mikilvægt skref og innleitt símafrið og er það fyrst og fremst skólastjórnendum að þakka, sem unnu að innleiðingunni af mikilli fagmennsku. Frábært fyrir nemendur, kennara og allt skólasamfélagið á Nesinu! 💙
👉 Lestu viðtalið í fyrstu athugasemd
29/10/2025
Kría, félag sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi bauð til vel sótts fundar um menntamál fimmtudaginn 9. október sl. í húsnæði UMI Studio að Austurströnd 1.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, fjallaði um góðan árangur Kópavogsmódelisins svokallaða í leikskólamálum. Gjaldfrjáls leikskóli 30 klst. á viku með tekjutengdum afsláttum fyrir viðbótarstundir hefur stórbætt mönnun á leikskólum bæjarins og stuðlað að bættu starfsumhverfi barnanna og starfsfólks. Þá ræddi Ásdís einnig samráðsferli hagsmunaaðila sem hefur átt sér stað um innleiðingu matsferils í öllum árgöngum 4.-10. bekkjar frá árinu 2026 og svaraði spurningum fundargesta.
Pálína Magnúsdóttir sagði gestum frá starfsemi UMI Studio en þar er hægt að mæta í alls kyns jógatíma og fá snyrtimeðferðir í fallegu og notalegu umhverfi. Það er virkilega ánægjulegt að hafa slíka þjónustu innan bæjarmarkanna.
Við þökkum góðum gestum fyrir komuna og notalega samverustund!
Hægt er að skrá sig í Kríu á mínum síðum xd.is undir flokkurinn - félagsaðild. Viðburðir Kríu eru öllum opnir.
03/10/2025
Haustfögnuður Kríu í UMI Studio!
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, heimsækir Kríu, félag sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi, fimmtudaginn 9. október kl. 20.
Ásdís mun meðal annars ræða fyrirhugaðar aðgerðir Kópavogs í menntamálum og segja frá helstu áherslum í þeim efnum. Þetta er einstakt tækifæri til að heyra beint frá bæjarstjóra um hennar framtíðarsýn. Þá ræðir hún um árangur bæjarins í leikskólamálum eftir innleiðingu Kópavogsmódelsins svokallaða.
Fundurinn verður haldinn í UMI Studio sem er í eigu Seltirningsins Maríönnu Pálsdóttur.
Að loknu erindi Ásdísar gefst tækifæri til umræðna og spurninga. Léttar veitingar verða í boði og hvetjum við konur á Seltjarnarnesi til þess að nýta tækifærið til að hittast, spjalla og njóta kvöldsins saman.
Við hlökkum til að sjá ykkur! 🩵
Stjórn Kríu
💌 Kría vekur athygli á að hægt er að skrá sig í félag sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi undir mínar síður á heimasíðu sjálfstæðisflokksins: xd.is