15/06/2026
Við verðum með opið hús í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 á þjóðhátíðardaginn. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Bein framlög til BFÁ: 0586-26-1500 kt. 4704830839
SWIFT: GLITISRE
IBAN: IS690586260015004704830839
15/06/2026
Við verðum með opið hús í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 á þjóðhátíðardaginn. Hlökkum til að sjá sem flesta.
19/05/2026
Aðalfundur Björgunarfélags Árborgar var haldinn 20. apríl síðastliðinn. Á fundinum voru varaformaður, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur kjörnir til tveggja ára. Formaður og tveir meðstjórnendur voru kjörnir til tveggja ára á aðalfundi 2025 og því var ekki kosið um þau embætti.
Stjórn BFÁ 2026-2027 skipa: Sveinn Ægir Birgisson, formaður, Daníel Máni Davíðsson, varaformaður, Jóhann Valgeir Helgason, gjaldkeri og Katrín Rut Sigurgeirsdóttir, Bjarki Þór Sævarsson, Óðinn Thor Harðarson og Hjalti Snær Helgason, meðstjórnendur.
19/04/2026
Á föstudaginn tók félagið við rausnarlegum styrk frá stúkum Oddfellowreglunnar á Selfossi, þar sem 13 björgunarsveitir á Suðurlandi voru styrktar um samtals 20 milljónir króna.
Hlutur okkar var 1.819.420 krónur. Styrkurinn gerir það að verkum að við getum endurnýjað björgunarbát fyrir leit og björgun á Ölfusá og ám og vötnum í kringum Suðurland allt.
Það er ómetanlegt að eiga slíka bakhjarla sem eru tilbúnir að styðja við starfsemi björgunarsveita með þessum hætti. Við erum afar þakklát fyrir stuðning systra og bræðra Oddfellowreglunnar á Selfossi.
14/03/2026
- Gönguskíðamönnum bjargað af Hofsjökli
Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í gærmorgun eftir að neyðarboð barst frá þremur gönguskíðamönnum á Hofsjökli.
Björgunarfélag Árborgar sendi þrjá hópa til aðstoðar, á vélsleðum, breyttum jeppa og snjóbíl. Um hádegi náðu vélsleðamennirnir til hópsins og fluttu niður af jöklinum.
Til móts við þá komu snjóbíll félagsins og bílar annarra björgunarsveita af svæðinu sem fluttu hópinn áfram til byggða.
Síðasti hópur var að koma heim í hús um miðnætti, verkefnið tók því alls um 16 klukkustundir. Í verkefni af þessu tagi er lykilatriði að búa að öflugum tækjaflota og vel þjálfuðum mannskap.
20/02/2026
Það er aldrei áhættunnar virði að ganga út á ísinn á Ölfusá. Ekki þarf að spyrja að leikslokum ef ísinn myndi brotna. Við hvetjum íbúa eindregið til að virða ánna og njota hennar af bakkanum.
Varhugaverðar aðstæður við Ölfusá.
Lögreglunni á Suðurlandi barst um hádegið tilkynning um að fólk væri á ísnum á Ölfusá. Mjög hættulegt er að fara út á ísinn enda er hann aldrei öruggur.
Lögreglan á Suðurlandi brýnir fyrir fólki að fara alls ekki út á ísinn og hvetur foreldra til að brýna það fyrir börnum.
02/02/2026
Nýverið tókum við á móti góðum gestum til þess að ræða húsnæðisstækkun og starfsemi björgunarfélagsins. Við buðum þingmönnum Suðurkjördæmis til okkar og áttum þar gott og málefnalegt samtal. Jafnframt tókum við á móti fulltrúum stjórnar og skrifstofu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Um áramót rann út ákvæði um 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á verkstað. Í stað þess að framlengja það að fullu var það lækkað í 60%, sem mun hafa áhrif á uppbyggingu húsnæðis björgunarsveita um allt land. Það voru því vonbrigði að sjá stuðninginn minnka, þegar væntingar stóðu til þess að hann yrði efldur.
Fundurinn gaf því mikilvægt tækifæri til þess að ræða þessi mál opinskátt og koma sjónarmiðum okkar á framfæri. Það er von okkar að samtalið muni leiða til lausna sem styrkja starfsemi björgunarsveita til framtíðar.
Við þökkum þingmönnum fyrir gott samtal og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við stjórnvöld um að tryggja trausta og sjálfbæra umgjörð um þetta mikilvæga starf.
05/01/2026
Við minnum á þrettándaopnun í flugeldasölunni hjá okkur í Björgunarfélagi Árborgar. Við erum í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 á Selfossi. Enn nóg til!
Opið í flugeldasölunni í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 á þrettándanum.
Kveðjum jólin með stæl!
04/01/2026
Opið í flugeldasölunni í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 á þrettándanum.
Kveðjum jólin með stæl!
02/01/2026
Nýtt ár er runnið í garð en fagnaðarlætin eru ekki alveg búin, vitið til. Við byrjum helgina á flugeldasýningu á Stokkseyrarbryggju í boði Björgunarfélags Árborgar í kvöld kl. 20. Missið ekki af þessu!
Björgunarfélag Árborgar
01/01/2026