Vogar - Heilsueflandi samfélag

Call Website Contact the organization

Vogar - Heilsueflandi samfélag Sveitarfélagið Vogar gerðist þátttakandi í Heilsueflandi samfélagi - lýðuheilsuverkefni Landlæknis, þann 14. ágúst árið 2019.

Heilsuefling í Vogum fyrir alla aldurshópa með áherslu á vellíðan, hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl.

✨ Slökun í sundlauginni í Vogum á Jónsmessunni💙 Slökun í vatni með Aqua Jóga 📍 Íþróttamiðstöðin í Vogum 📅 Jónsmessa 24. ...
08/06/2026

✨ Slökun í sundlauginni í Vogum á Jónsmessunni

💙 Slökun í vatni með Aqua Jóga
📍 Íþróttamiðstöðin í Vogum
📅 Jónsmessa 24. júní

Á Jónsmessunótt er sagt að mörkin milli hins sýnilega og ósýnilega verði örlítið þynnri. Þetta er nótt kyrrðar, birtu og töfra.

Laugin verður hituð upp og fáið þið allan þann búnað sem þarf til að fljóta áreynslulaust í dýrmæta vatninu okkar á meðan slakandi tónlist og andrúmsloft hjálpa þér að sleppa tökunum og njóta augnabliksins.

✨ Kyrrð fyrir hugann
✨ Hvíld fyrir líkamann
✨ Næring fyrir sálina
✨ Töfrandi stund á björtustu nótt ársins

💧 Hentar öllum sem vilja slaka á og njóta.

📞 Skráning og nánari upplýsingar eru hjá Aqua Jóga
💰 Verð: 1.500 kr.

Innifalið er aðgangur í laugina og heitt seremóníu kakó.

Leyfðu vatninu að halda utan um þig á Jónsmessunótt 💙

05/06/2026

Viðburðadagatal heilsusumarsins í Sveitarfélagið Vogar.

Þetta er uppfært reglulega eftir því sem bætist við viðburðina.

Júní:
8. júní - mánudagur - Fuglaskoðun - fyrsta ganga sumarsins hjá göngufélaginu G 190. Lagt af stað frá íþróttamiðstöðinni k. 17:00. Öll velkomin en hundar ekki með í þetta sinn svo við styggjum ekki fuglana.

15. júní - mánudagur - folfnámskeið á vegum Saman í samfélagi. Staðsetning: Aragerði/Íþróttamiðstöð. 17:00 - 19:00. Öll velkomin en skráning er á viðburðinn á Facebook síðu Saman í samfélagi.

24. júní - Jónsmessu samflot í sundlauginni með Aqua jóga. Falleg kyrrðarstund í dásamlegu sumarorkunni.

Í ágúst verður heilsuvika í aðdraganda fjölskyldudaga. Fylgist með þegar nær dregur.

10. ágúst - skemmtiskokk

11. ágúst - gusa í saunaklefanum í sundlauginn. Pop-up event.

12. ágúst - Samflot í sundlauginni í sólmyrkvaorkunni með Aqua jóga.

13. ágúst - sundlaugapartý í sundlauginni

14. ágúst -

15. ágúst - íþróttastund fyrir börnin í íþróttasal

16. ágúst - ganga undir leiðsögn

FOLFNÁMSKEIÐ Í VOGUM 🥏Saman í samfélagi býður ykkur á folfnámskeið ! (endilega fylgið FB síðu Saman í samfélagi :DVið er...
05/06/2026

FOLFNÁMSKEIÐ Í VOGUM 🥏

Saman í samfélagi býður ykkur á folfnámskeið ! (endilega fylgið FB síðu Saman í samfélagi :D

Við erum svo ótrúlega heppin hérna í Vogum að eiga frábæra folf völlinn okkar við Aragerði. Því ekki að læra réttu handtökin og nýta folf völlinn í sumar, fyrir vinahópana, fjölskyldur, einn við æfingar eða hvað sem ykkur dettur í hug.

Í íÍþróttamiðstöðinni í Vogum er hægt að fá lánað grunnsett til að leika sér með fyrir litlar 500 kr.

Folf er vaxandi íþrótt á Íslandi, sem kemur ekki á óvart. Gallup-könnun frá 2023 sýndi að tæplega 20% þjóðarinnar hafði spilað að minnsta kosti eina lotu það ár. Meðal 18–24 ára ungmenna var hlutfallið yfir 48% — næstum helmingur ungs fólks! Þetta er sport sem hentar öllum aldurshópum: mjúkt fyrir liðina, góð hreyfing í frábæru náttúrulegu umhverfi og þarf ekki mikið til að byrja.

📅 15. júní | 17:00–19:00
📍 Aragerði við Íþróttamiðstöðin í Vogum.

Endilega skiljið eftir athugasemd ef þið hafið áhuga á að koma svo við getum gróflega áætlað fjölda - viðburðurinn er öllum að kostnaðarlausu 🤩

FOLFNÁMSKEIÐ Í VOGUM 🥏
Saman í samfélagi býður ykkur á folfnámskeið !

Frábært samstarfsverkefni GeoSilica Iceland og Röggu nagla hefur vakið mikla athygli. Vitundarvakning um breytingaskeið ...
04/06/2026

Frábært samstarfsverkefni GeoSilica Iceland og Röggu nagla hefur vakið mikla athygli. Vitundarvakning um breytingaskeið kvenna hefur vart farið framhjá landsmönnum, sem er frábært!

Fyrirlesturinn á erindi til allra sem vilja kynna sér einkenni breytingaskeiðsins og hvað er hægt að gera til að styðja við heils og betri lífsgæði á þessu lífsskeiði 🩷

Mikil ánægja ríkti á fræðslukvöldinu Bestar á Breytó sem haldið var í Álfagerði í Vogum þann 19. maí síðastliðinn. Kvöldið var samstarfsverkefni Sveitarfél

Frá SAMAN-hópurinn☀️Sumarfrí er handan við hornið hjá framhaldsskólanemum á Íslandi og það er auðvitað fagnaðarefni hjá ...
04/06/2026

Frá SAMAN-hópurinn

☀️Sumarfrí er handan við hornið hjá framhaldsskólanemum á Íslandi og það er auðvitað fagnaðarefni hjá flestum.

🎈Saman-hópurinn vill minna forsjáraðila unglinga á framhaldsskólaaldri að vita hvar þau eru, með hverjum og passa að þau séu ekki í eftirlitslausu partý-i.

🔑Rannsóknir sýna að skýr mörk og aðhald er verndandi þáttur í lífi barna.

Veljum jákvæðni hvern dag 😃
02/06/2026

Veljum jákvæðni hvern dag 😃

Gleðilegi júní ☺️ Virknidagatal með jákvæðum tillögum fyrir hvern dag bit.ly/virknidagatal

Á heimasíðu sveitarfélagsins má sjá kort af gönguleiðum í bæjarfélaginu. Hver er uppáhalds gönguleiðin þín?
01/06/2026

Á heimasíðu sveitarfélagsins má sjá kort af gönguleiðum í bæjarfélaginu.

Hver er uppáhalds gönguleiðin þín?

Eins og síðustu dagar bera vitni um þá er sumarið loksins komið.Þá er ekki úr vegi að minna íbúa og gesti á fallegu nátt...
22/05/2026

Eins og síðustu dagar bera vitni um þá er sumarið loksins komið.
Þá er ekki úr vegi að minna íbúa og gesti á fallegu náttúruna og möguleikana til útvistar hér í Vogum og í kringum bæinn 🤸‍♀️

🏊 Sund sund sund. Fyrir okkur er augljósasti kosturinn að koma við í sundlauginni. Synda nokkrar ferðir (eða margar), njóta heitu pottanna og nýja saunaklefans á milli þess sem þið sólið ykkur á sólbekkjunum. Sundlaugin í Vogum er fræg (sáu þið ekki örugglega áramótaskaupið) og fólk kemur langt að til að njóta fegurstu aðstöðunnar og kyrrðarinnar 🥰

🚴 Þeir sem eiga hjól ættu að nýta góðar stundir til að hjóla inn Vatnsleysuströnd og út að Stapa og í áttina að Njarðvík. Það er líka hægt að hjóla að Reykjanesbraut og undir hringtorgið og fara meðfram brautinni utanvegar (þeir sem eru á góðum dekkjum þ.e.a.s.). Hefur þú hjólað hérna í kring og ertu með meðmæli að góðri hjólaleið?

🏃 Mikið er af göngustígum sem henta vel í gönguferðir og skokk. Vinsælt að fara í Háabjalla, labba meðfram Stapanum, fara inn á Strönd og þess vegna innanbæjar, enda fallegt bæjarstæði og mikið líf núna þegar það er orðið svo bjart allan daginn. Hvaða leið er þín uppáhalds?

👣 Aragerði er dásamlegur áningastaður inn í miðjum bænum, hvort sem það er fyrir gesti eða íbúa. Þar er hægt að sitja með krökkunum í lautarferð, grilla pylsur þegar það er barnaafmæli, fara í útileiki, sitja í kyrrðinni eða hvað sem er. Aparólan og hoppubelgurinn eru vinsæl leiktæki fyrir börnin en hefur fullorðan fólkið prufað? Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í Aragerði?

⛰ Folfvöllurinn. Ekki má gleyma 9 holu folfvellinum sem er við íþróttamiðstöðina og Aragerði. Fljótlega verður hægt að leigja folfsett í íþróttamiðstöðinni (frá 1. júní) og hvetjum við öll til að koma og prufa.

⛳ Golfklúbbur Vatnsleysustrandar við Kálfatjörn er einn vinsælasti ferðamannastaður sveitarfélagsins. Glæsilegur 9 holu völlur og öll aðstaða til fyrirmyndar.

🏊 Saunagus og sjósund nýtur sífellt vaxandi vinsælda og er það nú stundað árið um kring hér í Vogum. Tilvalið að skoða heimasíðu Saunagus Reykjanes til að sjá hvort þau eru ekki með tíma sem hentar þér. Mælum svo sannarlega með.

Þetta er alls ekki tæmandi upptalning og hvetjum við ykkur til að setja í athugasemdir það sem ykkur finnst gaman að gera hér í Vogum og í kring yfir sumartímann 😃

694653549_122109517286782431_4657593994086059198_n.jpg
You can't edit this content.
Íþróttamiðstöðin í Vogum

Virknidagatalið fyrir maí 2026 berst seint en gott er að skoða tillögurnar sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt ...
21/05/2026

Virknidagatalið fyrir maí 2026 berst seint en gott er að skoða tillögurnar sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins 🥰

Fleiri dagatöl má finna á síðunni velvirk.is

Landsmót UMFÍ 50 + fer fram dagana 26. - 28. júní í Hrafnagilshverfi. Einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík.Mótið er ...
19/05/2026

Landsmót UMFÍ 50 + fer fram dagana 26. - 28. júní í Hrafnagilshverfi. Einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík.

Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.

Mótið hefst á föstudagsmorgni og lýkur um miðjan dag á sunnudegi. Keppnisgreinar fara fram alla dagana og því er ómögulegt að taka þátt í þeim öllum. Markmiðið er að velja nokkrar greinar og prófa eitthvað nýtt.

Frábær skemmtun, hvetjum öll til þátttöku😃

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið fer fram dagana 26. - 28. júní í Hrafnagilshverfi. Einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík.

Address

Vogar
190

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vogar - Heilsueflandi samfélag posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Vogar - Heilsueflandi samfélag:

Shortcuts

Share