Sendiráð / Fastanefnd Íslands í Genf

Sendiráð / Fastanefnd Íslands í Genf

Teilen

Fastanefnd Íslands í Genf tók til starfa 1.

mars 1970 samhliða aðild Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) og varð í febrúar 2018 einnig að sendiráði gagnvart Sviss ásamt því að vera sendiráð gagnvart Liechtenstein og Páfagarði.

Photos from Sendiráð / Fastanefnd Íslands í Genf's post 19/05/2026

Á föstudaginn lauk 52. lotu Allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna (Universal Periodic Review eða UPR) sem felur í sér heildarúttekt á stöðu mannréttindamála innan aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna.

UPR fer fram þrisvar á ári í tveggja vikna löngum fundarlotum og er mikilvægur þáttur í starfi mannréttindaráðs Sameinðu þjóðanna.

Ferlið byggir á jafningjarýni - ríkin fara yfir stöðu mannréttindamála hjá hverju öðru og koma með ábendingar og áskoranir um það sem mætti betur fara.

Ísland tekur virkan þátt í úttekt allra ríkja og leggur áherslu á þrjú meginmál í tilmælum sínum: afnám dauðarefsinga, jafnréttismál (þ.m.t. kyn- og frjósemisheilbrigði) og réttindi hinsegin fólks.

Að þessu sinni voru 14 ríki tekin fyrir: Namibía, Níger, Mósambík, Eistland, Paragvæ, Belgía, Danmörk, Palaú, Sómalía, Seychelles-eyjar, Salómónseyjar, Lettland, Síerra Leóne og Singapúr.

17/05/2026

Þetta er ekki flókið. Við eigum öll að hafa frelsi til að vera við sjálf.

Í dag, 17. maí, er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Ísland beitir sér á alþjóðlegum vettvangi fyrir mannréttindum alls fólks og reynir að stuðla að lagalegum umbótum og berst gegn hvers konar ofbeldi, mismunun og fordómum í garð hinsegin fólks.

Mannréttindi eru fyrir alla – óháð kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu.

Photos from Sendiráð / Fastanefnd Íslands í Genf's post 05/05/2026

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands heimsótti í gær Vatíkanið og átti þar einkafund með Leó XIV páfa. Í kjölfarið fundaði hún með kardinálanum Pietro Parolin, ráðherra Páfastóls og Paul Richard Gallagher erkibiskup, sem fer með samskipti við ríki og alþjóðastofnanir.

Með henni í för voru Sif Gunnarsdóttur forsetaritari og Einar Gunnarsson sendiherra Íslands í Genf, en sendiráð Íslands í Genf er einnig tvíhliða sendiráð gagnvart Páfastóli.

Heimsóknin var vel heppnuð og styrkti samskipti Íslands og Páfastóls sem byggja á sameiginlegum gildum og áherslu á mannréttindi, frið, félagslegt réttlæti og trúfrelsi ásamt stuðningi við samstarf á alþjóðavettvangi.

Myndir: © Vatican Media

30/04/2026

🇮🇸Sendiráðið og fastanefndin flytur í nýtt skrifstofuhúsnæði í Green Village í Genf í næsta mánuði. Seinasti opnunardagur sendiráðsins á núverandi stað á Avenue Blanc 49, er þriðjudaginn 12. maí og opnum við á nýjum stað mánudaginn 18. maí.

📍Nýtt heimilisfang: Chemin du Pommier 42 (Kyoto building), 1218 Grand Saconnex

🗳️Seinasti dagur til að kjósa í utankjörfundarkosningu vegna sveitarstjórnarkosninga í sendiráðinu er því 12. maí á Avenue Blanc 49.

📧Bókanir sendar á [email protected]

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna komandi sveitarstjórnarkosninga 17/04/2026

🇮🇸 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla 🇮🇸

Í dag hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026.

Upplýsingar um kjörstaði og tímabókanir í Sviss og Liechtenstein:

🗳️Genf: Bóka þarf tíma með því að senda tölvupóst á [email protected]

🗳️Bern: Bóka þarf tíma hjá ræðismanni með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í +41 31 326 27 56

🗳️Zurich: Bóka þarf tíma hjá ræðismanni með því að senda tölvupóst á [email protected]

🗳️Liechtenstein: Bóka þarf tíma hjá ræðismanni með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í +423 340 0828

Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili og gildir í því sveitarfélagi sem viðkomandi er skráður með lögheimili í.

Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár: https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/sveitarstjornarkosningar-2026/

🔹Sýna þarf skilríki (vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini) á kjörstað.
🔹Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
🔹Athugið að senda þarf atkvæði beint á það sveitarfélag sem kjósandi er skráður með lögheimili í.
🔹Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna komandi sveitarstjórnarkosninga Kosning utan kjörfundar erlendis vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 hefst 17. apríl nk.

Photos from Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands's post 01/04/2026

Viðburðarríkri vetrarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna lokið. Sjá meira hér ⬇️

Photos from Sendiráð / Fastanefnd Íslands í Genf's post 27/03/2026

Sendinefnd Íslands er stödd í Kamerún á fjórtánda ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Mikilvægar umræður um umbætur á stofnuninni fara þar fram ásamt fundum um önnur lykilmál á borði stofnunarinnar þ.m.t vinnu við að sporna gegn skaðlegum ríkisstyrkjum í sjávarútvegi.

Photos from Sendiráð / Fastanefnd Íslands í Genf's post 24/03/2026

Um helgina heimsótti Sinfóníuhljómsveit Íslands Sviss og hélt þrenna tónleika sem hluta af Evrópuferð hljómsveitarinnar, í Genf, Bern og Zurich. Hljómsveitin, undir stjórn Eva Ollikainen, flutti ARCHORA eftir íslenska tónskáldið Önnu Þorvaldsdóttur, sellókonsert eftir Edward Elgar með stórglæsilegum flutningi Kian Soltani og sinfóníu nr. 2 eftir Jean Sibelius. Hljómsveitin hlaut frábærar viðtökur Svisslendinga á öllum tónleikunum 👏🏼

Sendiráð Íslands bauð hljómsveitinni til móttöku að loknum tónleikum í Zurich til að fagna vel heppnuðu ferðalagi þeirra um Sviss.

Sendiráðið þakkar Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir stórkostlega tónleika. Við erum stolt af því að sjá íslenska menningu blómstra á alþjóðavettvangi.

18/03/2026

The Parliamentary Assembly of the Council of Europe (PACE), in partnership with the Government of Iceland, has issued a call for nominations for the 2026 Vigdís Prize for Women’s Empowerment. The deadline for submitting nominations for this third edition of the Prize is 27 March 2026.

Launched in 2023 and named after Vigdís Finnbogadóttir, the first woman in the world to be elected as a Head of State, this annual Prize consists of a sum of 60,000 euros and a trophy. It rewards outstanding individuals, organisations or initiatives that have demonstrated significant commitment to empowering women and girls in all their diversity.

Individuals, civil society groups, associations or private companies may be nominated for the Prize. Nominations should be submitted in English or French, and must be supported by the signatures of at least five sponsors.

For more information: https://tinyurl.com/5r8kvysz

Photos from Sendiráð / Fastanefnd Íslands í Genf's post 13/03/2026

Nú stendur yfir vetrarlota mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sem er oft kölluð barnalotan þar sem ályktanir og umræður um málefni barna eru í forgrunni. Málefni barna eru eitt af áherslumálum Íslands í mannréttindaráðssetunni og er því búið að vera nóg um að vera hjá okkur!

Ísland stóð fyrir hliðarviðburði í samvinnu við Úkraínu og Eistland á mánudaginn um vernd úkraínskra barna. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, erindreki Evrópuráðsins í málefnum úkraínskra barn, hélt þar framsöguræðu. Fjallað var um flóknar áskoranir í tengslum við endurkomu, aðlögun og endurhæfingu úkraínskra barna sem hafa orðið fyrir áhrifum af stríðinu, þar á meðal þeirra sem hafa verið ólöglega numin á brott af rússneskum stjórnvöldum. Brottnám úkraínskra barna er ein alvarlegasta birtingarmynd mannréttindabrota í innrásarstríði Rússlands. Áhersla var því lögð á mikilvægi þess að efla alþjóðleg og innlend úrræði sem vinna að heimkomu og vernd þessara barna. Þá efndi fastanefnd Íslands til funda með Þórdísi Kolbrúnu og líkt þenkjandi ríkjum um mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu og frekari vernd fyrir úkraínsk börn.

Á miðvikudag stóð Ísland ásamt alþjóðlegum samtökum Child Helpline International fyrir hliðarviðburðinum “Every Call Matters: Strengthening Child Protection through Child Helplines and International Standards”. Á viðburðinum var fjallað um mikilvægi hjálparlína fyrir börn, sem fyrsta aðgengi þeirra að stuðningi þegar þau verða fyrir ofbeldi, vanrækslu eða vegna andlegrar vanlíðan. Einnig var rætt um hvernig alþjóðlegir staðlar geta styrkt gæði, aðgengi og áreiðanleika í þeirri þjónustu sem hjálparlínur veita. Sérstök áhersla var lögð á nýja tækninefnd ISO um réttindi barna sem stofnuð var síðastliðinn mánudag að frumkvæði íslenskra stjórnvalda og Páll Magnússon, sendiráðunautur hjá fastanefnd Íslands í Genf fer með formennsku í. Markmið með stofnun nefndarinnar er að þróa alþjóðlega staðla sem styðja við innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Þá tók fastanefndin í Genf einnig þátt í samningaviðræðum um ályktun um réttindi barnsins auk þess sem sóttir voru ýmsir aðrir hliðarviðburðir um mikilvægi þess að réttindi barna séu virt.

Í tilefni af barnalotunni og áherslu Íslands á málefni barna í mannréttindaráðinu buðum við börnum á vegum ráðgjafarhóps barna og ungmenna hjá umboðsmanni barna og ungmennum á vegum Landssambands ungmennafélaga (LUF) á samráðsfund í utanríkisráðuneytinu í síðustu viku. Þar áttu sér stað fjörugar umræður um málefni barna og ungmenna sem og ýmis mannréttindamál. Við þökkum fyrir áhugavert og gott samtal!

Wollen Sie Ihr Service zum Top-Regierungsdienstleistung in Geneva machen?

Klicken Sie hier, um Ihren Gesponserten Eintrag zu erhalten.

Lage

Webseite

http://www.mfa.is/geneva, https://outlook.office.com/book/[email protected].

Adresse


Chemin Du Pommier 42
Geneva
1218

Öffnungszeiten

Montag 09:00 - 16:00
Dienstag 09:00 - 16:00
Mittwoch 09:00 - 16:00
Donnerstag 09:00 - 16:00
Freitag 09:00 - 15:00