16/09/2022
Í tilefni af alþjóðlega jafnlaunadeginum sem nú er haldinn í þriðja sinn munu sendiráðið í París og fastanefnd Íslands gagnvart OECD, í samstarfi við Efnahags- og framfarastofnunina OECD, standa fyrir rafrænum viðburði um fæðingarorlof þriðjudaginn 20. september kl. 08:00-09:30 (að íslenskum tíma).
Ísland átti frumkvæði að því að koma alþjóðlega jafnlaunadeginum á laggirnar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og er þetta í annað sinn sem sendiráðið og fastanefndin í París skipuleggja viðburð af þessu tilefni í samstarfi við OECD.
Umfjöllunarefni viðburðarins í þetta sinn er foreldraorlof. Meðal þátttakenda eru Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra, Jan Tinetti, innanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Manuel Lobo Antunes, sendiherra Portúgals hjá OECD, Matthias Cormann, framkvæmdastjóri OECD, Ulrik V. Knudsen, varaframkvæmdastjóri OECD, Tomoko Hasegawa frá samtökum atvinnurekenda í Japan og Putri Realita frá Danone. Þá verður rýni OECD í málaflokknum kynnt.
Markmiðið með alþjóðlega jafnlaunadeginum er að vekja athygli á aðgerðum sem stuðla að launajafnrétti og hvetja til frekari aðgerða til að markmið um jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf nái fram að ganga.
Viðburðurinn er öllum opinn og skráningarhlekk má nálgast hér: https://meetoecd1.zoom.us/.../WN_Q_eMsN-OQLuMpYEfRy3rCA
03/07/2020
The international Vidgís prize gets awarded for the first time | United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization
On the occasion of Vidgís Finnbogadóttir’s 90th birthday and 40th anniversary since her historical election as the President of Iceland, Icelandic Government, the University of Iceland and the Vidgís Finnbogadóttir Institute have decided to award the Vidgís Prize for achievement in the fiel...
10/06/2020
PARÍS - Fyrr í dag hittust ráðherrar OECD ríkja á fjarfundi til þess að bera saman bækur sínar um áhrif COVID-19 á hagkerfi aðildarríkja og til hvaða aðgerða hefði verið gripið. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat fundinn fyrir Íslands hönd. Fjarfundurinn var undanfari ráðherrafundar OECD sem fer fram í París í október. Nýjasta efnahagsspá OECD var einnig kynnt á fundinum en hana má nálgast hérna http://www.oecd.org/economic-outlook/
Í máli sínu kom fjármála- og efnahagsráðherra sérstaklega inn á hversu vel gengi að endurræsa hagkerfið og að góð skuldastaða ríkissjóðs hefði gert Íslandi kleift að styðja við bakið á bæði fyrirtækjum og heimilum. Stærsta spurningin væri eftir sem áður ferðaiðnaðurinn og því væri mikilvægt að auka alþjóðlega samvinnu við afnám ferðahindrana í kjölfar heimsfaraldursins. „Við þurfum einnig að koma á fót alþjóðlegu kerfi sem tryggir samhæfð viðbrögð á alþjóðavettvangi við aðrar áskoranir í framtíðinni sem hafa áhrif á alþjóðasamfélagið.“ Á næstu mánuðum yrði það síðan keppikefli íslenskra stjórnvalda að sporna gegn atvinnuleysi með því að skapa störf og auka sveigjanleikja á vinnumarkaði.
Ráðherrafundur OECD er venjulega haldinn í lok maí ár hvert en vegna COVID-19 var brugðið á það ráð að gangast fyrir tveimur hringborðsumræðum með þátttöku ráðherra aðildarríkjanna í aðdraganda ráðherrafundarins sem haldinn verður í október. Fyrri hringborðsumræðurnar fóru fram í dag og fjölluðu um helstu efnahagsaðgerðir aðildarríkja vegna COVID-19 og horfur í efnahagsmálum. Seinni fundurinn verður haldinn 8. júlí nk. og mun fjalla um áskoranir á vinnumarkaði í kjölfar COVID-19 faraldursins. Spánn leiðir ráðherrafund OECD þetta árið en helstu áherslur verða hvernig ríki geti endurreist efnahag sinn á sjálfbæran og grænan máta öllum haghöfum til góða.
Viðbrögð OECD við COVID-19 hafa þótt framúrskarandi og hefur stofnunin gefið út fjölmargar skýrslur og stefnumótunarskjöl á sérstakri vefsíðu tileinkaðri viðbrögðum við faraldrinum en áhugasamir finna frekari upplýsingar hér https://www.oecd.org/coronavirus/en/
What are the impacts and consequences of the coronavirus pandemic on our lives and our societies - our healthcare systems, our jobs and education, our businesses, financial markets and economies.
22/05/2020
Tackling the coronavirus (COVID-19) crisis together: OECD policy contributions for co‑ordinated action
What are the impacts and consequences of the coronavirus pandemic on our lives and our societies - our healthcare systems, our jobs and education, our businesses, financial markets and economies.