29/05/2026
🚨Ef einhver vill hjálpa viðbragðsaðilum að gera æfinguna sem raunverulegasta þá vantar enn leikara 👇
Björgunar og slysavarnamál
Félagið er skráð í almannaheillaskrá
Kt 441198-2059
banki 0154-26-021043
Síða Björgunarfélags Ísafjarðar
Félagið er skráð í Almannaheillaskrá Ríkisskattstjóra. Bankaupplýsingar
Kennitala 441198-2059
banki 0154-26-021043
Allar myndir eru eign félagsins, heimilt er að deila færslum en óheimilt er að vista myndir og birta þær svo, nema með sérstöku leyfi
29/05/2026
🚨Ef einhver vill hjálpa viðbragðsaðilum að gera æfinguna sem raunverulegasta þá vantar enn leikara 👇
26/05/2026
🚨Það vantar leikara á laugardaginn 🚨
Þann 30 maí nk. mun ISAVIA standa fyrir reglulegri æfingu fyrir viðbragðsaðila ef til hópslyss kæmi á Ísafjarðarflugvelli.
Það er nauðsynlegt í æfingum sem þessum að hafa einstaklinga sem leika slasaða þannig að æfingin geti verið sem raunverulegust fyrir viðbragðsaðila.
Hér auglýsir ISAVIA eftir leikurum, sjá viðhengið.
10/05/2026
Um helgina hafa félagsmenn okkar annast verkefni fyrir HG og skrúbbað og bónað skrokk Júlíusar Geirmundssonar hátt og lágt, skipið er nú eins og nýtt og fer í sparibúningnum í næstu veiðiferð 💪
09/05/2026
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard bauð gestum og gangandi að skoða varðskipið Freyju í Ísafjarðarhöfn í dag vegna 100 ára afmælis, af því tilefni fórum við í heimsókn og afhentum við Einari Valssyni skipherra smá glaðning.
Samstarf okkar við LHG er farsælt og dýrmætt en í fjölmörgum björgunaraðgerðum vinnum við í umboði þeirra og með þeim.
Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna á Ísafjörð.
30/04/2026
Í gær var haldinn aðalfundur hjá okkur þar sem venjuleg aðalfundarstörf fóru fram og farið yfir árið 2025 í máli og myndum.
Öflugt fólk stendur að rekstri félagsins og félagið verður ekki sterkara en fólkið sem því tilheyrir.
Vikulega taka á bilinu 40-60 manns þátt í okkar starfi sem er rekstur björgunarsveitar og unglingadeildar sem hefur verið starfandi frá 1944.
Að loknum aðalfundi komu frambjóðendur Viðreisnar í sveitarstjórnarkostningum í heimsókn og fengu smá smjörþef af því sem brennur á okkar fólki og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.
16/04/2026
Hampiðjan styrkir Guðmund í Tungu með veglegri gjöf.
Umfjöllun Fiskifrétta er hér í athugasemd 👇
14/04/2026
Aðalfundur Björgunarfélags Ísafjarðar fer fram:
📍 Guðmundarbúð
📅 29. apríl
⏰ Kl. 20:00
Dagskrá:
• Skýrsla stjórnar og reikningar
• Lagabreytingar
• Kosningar
• Önnur mál
🗳️ Viltu taka stærra hlutverk?
Framboð til stjórnar skulu berast fyrir lok 22. apríl á:
📧 [email protected]
🤝 Saman stöndum við vaktina.
Sjáumst!
09/04/2026
Vorfundur smábátasjómanna verður sýndur í beinni útsendingu kl 17 í dag í Guðmundarbúð.
🚨Vorfundur smábátasjómanna 🚨
Samgöngustofa, Félag smábátaeigenda og Slysavarnafélagið Landsbjörg standa sameiginlega að vorfundi smábátasjómanna sem haldinn verður á vefnum fimmtudaginn 9. apríl kl. 17:00–18:30.
Markmið fundarins er að efla öryggi sjómanna með fræðslu, kynningu á nýju efni og samtali um verklag og búnað um borð.
Fundurinn er ætlaður öllum sem starfa á smábátum sem og öðrum áhugasömum um öryggi á sjó.
Björgunarfélag Ísafjarðar ætlar að bjóða sjómönnum til að koma sama í húsi félagsins Guðmundarbúð og fylgjast með fundinum í beinu streymi.
Dagskrá:
📍Opnun: Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda.
📍Dagskrá og önnur mál, Þorsteinn Þorkelsson sérfræðingur hjá Samgöngustofu.
📍Umræður og sýnikennsla um frágang, uppsetningu og losun björgunarbáta. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson starfsmenn Samgöngustofu.
📍Hættumat um borð. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson.
Kaffihlé
📍Frumsýning á nýjum auglýsingum Slysvarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu um frágang og uppsetningu björgunarbáta og mikilvægi gátlista áður en lagt er af stað úr höfn.
📍Aggan, öryggisapp fyrir smábáta, Gísli Níls Einarsson hjá Alda Öryggi.
📍Kynning og umræður um öryggismál smábáta. Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna.
📍Áherslur aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar vegna strandveiða.
📍Skútan lögskráningarkerfi sjómanna notkun og forsendur. Bjarki Sigþórsson, fagstjóri náms og skírteinamála sjófarenda hjá Samgöngustofu.
📍Umræður ef tími gefst til (fundarmönnum verður líka boðið að senda spurningar inn á fundinn sem verður svarað á fundinum eða eftir hann gefist ekki tími til).
Áhugasömum gefst möguleiki að hitta aðra sjómenn, ræða málin og njóta léttra kaffiveitinga.
📸 Ingvar Jakobsson
08/04/2026

30/03/2026
Félagar okkar fóru í smá könnunarleiðangur í kvöld um Skutulsfjörð en sú spurning kom upp, hvað gerum við ef Skutulsfjarðarbrautin er lokuð vegna snjóflóðahættu en hluti byggðarinnar er í fjarðarbotninum.
Svarið er hér í myndum en á nýja skipinu er hægt að komast að brúnni við flugvöllinn og setja fólk í land eða taka um borð 👌