Slökkvilið Ísafjarðarbæjar

Slökkvilið Ísafjarðarbæjar

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Slökkvilið Ísafjarðarbæjar, Fire station, Fjarðarstræti 28, Ísafjörður.

10/04/2026

Alltaf verið að styrkja sig

17/03/2026

Endurnýjun framundan hjá Slökkviliði Ísafjarðar. Við stefnum á kaup á krókheysi/tankbifreið með 10.000+ lítra vatnstank. Þetta mun tryggja betri viðbragð og flutningsgetu en núverandi bíll (frá 1999). Slík bifreið býður jafnframt upp á framtíðar­mögu­leika til að flytja annan búnað á opnum fleti sem nýtast við ólík öryggis‑ og viðbragðsverkefni.

16/02/2026

Þrír hlutir sem allir ættu að hafa heima:

✔️ Reykskynjarar
✔️ Slökkvitæki
✔️ Eldvarnarteppi

Tryggðu að heimilið sé varið — athugaðu búnaðinn í dag.
Öryggi byrjar hjá þér.

Photos from Björgunarfélag Ísafjarðar's post 11/02/2026
11/02/2026

🚨 Munum eftir 112-deginum – miðvikudaginn 11. febrúar! 🚨

Í ár fögnum við 30 árum frá því neyðarnúmerið 1-1-2 var tekið upp á Íslandi 🇮🇸
Fyrsta símtalinu var svarað 1. janúar 1996 og síðan þá hefur númerið sameinað alla helstu viðbragðsaðila landsins.

Dagurinn er haldinn af Neyðarlínan og starfsaðilum hennar víðsvegar um landið.

🏠 Opið hús í Guðmundarbúð

🕓 Kl. 16:15–17:30

Bílar og búnaður til sýnis.

🧇 Slysavarnadeildin Iðunn býður upp á nýbakaðar vöfflur 💛

Komdu og hittu okkur, lærðu meira um öryggi og njóttu samverunnar.

❤️ Allir hjartanlega velkomnir – sjáumst á 112-deginum!

10/02/2026

🚨 112-dagurinn 2026 verður haldinn á miðvikudaginn 11. febrúar nk. af hálfu Neyðarlínunnar og samstarfsaðila hennar víðsvegar um landið.

Í ár minnumst við þess að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi og fyrsta símtalinu í 1-1-2 svarað 1. janúar 1996.

👨‍🚒 Opið hús verður í Guðmundarbúð kl.16:15-17:30, Slökkvilið og björgunarsveit verða með bíla og búnað til sýnis þar. 🚒🚓🚑
Slysavarnadeildin Iðunn verður að sjálfsögðu með nýbakaðar vöfflur.
Allir hjartanlega velkomnir.

23/12/2025

⚠️ Veðurviðvörun – aðfangadagur ⚠️
Spáð er hvassviðri og úrkomu á morgun. Hugið að lausamunum og gangið úr skugga um að frárennsli sé opið svo vatn safnist ekki við hús eða í kjöllurum.
Með góðum undirbúningi eigum við öruggan aðfangadag 🎄

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir mikilli úrkomu og hvössum vindi á landinu næstu sólarhringa. Af þeim sökum er mikilvægt að þau sem hyggjast vera á ferðinni fylgist vel með veðurspám og færð áður en lagt er af stað.

Hvassast verður fyrripart aðfangadags á Vestfjörðum og Norðurlandi, þar sem búast má við stormi eða roki og hviðum yfir 40 m/s. Appelsínugul viðvörun verður í gildi á hluta landsins á aðfangadag, með hættu á foktjóni og skemmdum á mannvirkjum.

Með sunnanáttinni fylgir mikil rigning á sunnan- og vestanverðu landinu frá Þorláksmessu fram á aðfangadag, og verða gular viðvaranir vegna úrkomu. Á jóladag dregur úr rigningu, en væta verður áfram.

Sjá frétt Veðurstofa Íslands í fyrstu athugasemd.

23/12/2025

🎄✨ Gleðileg jól og farsælt nýtt ár! ✨🎄
Við hjá Slökkviliði Ísafjarðarbæjar sendum hlýjar hátíðarkveðjur til íbúa Ísafjarðarbæjar, nærsveitunga og allra landsmanna.

Við viljum þakka íbúum sérstaklega fyrir traustið sem okkur er sýnt og þann skilning sem ríkir í störfum okkar.
Jafnframt sendum við samstarfsaðilum okkar kærar þakkir fyrir gott samstarf, fagmennsku og samstöðu á árinu sem er að líða.

Við óskum ykkur öllum friðsælla jóla og farsældar á komandi ári ✨🚒

16/12/2025

🇵🇱 Pólska

🕯️ Adwent i Boże Narodzenie to czas ciepłego światła.
Zachowaj ostrożność przy używaniu świec i dekoracji świątecznych.
Polecamy świece na baterie – bezpieczna, świąteczna atmosfera.

Straż Pożarna Gminy Ísafjörður 🚒

🇬🇧 English

🕯️ Advent and Christmas are a time of cozy light.
Please use candles and decorations with care.
We recommend battery-operated candles for a safer holiday season.

Ísafjörður Municipal Fire Department 🚒

08/12/2025

Við viljum færa Neyðarlínan 112 okkar allra bestu þakkir fyrir frábæra heimsókn um síðustu helgi. 🌟
Hjördís Garðarsdóttir og Helgi Reynisson komu til okkar og kynntu starf Neyðarlínu fyrir sjúkraflutningafólki Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar.

Fræðslan var bæði gagnleg og áhugaverð, og ekki síður mikilvægt að efla enn frekar gott samstarf milli viðbragðsaðila.. Takk kærlega fyrir komuna – við hlökkum til áframhaldandi samstarfs!

Photos from Menntaskólinn á Ísafirði's post 05/12/2025
Want your business to be the top-listed Government Service in Ísafjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address


Fjarðarstræti 28
Ísafjörður
400