Orkubú Vestfjarða

Orkubú Vestfjarða

Share

Orkubú Vestfjarða ohf. Stakkanesi 1, 400 Ísafjörður
Sími: 450-3211 Tilgangur fyrirtækisins samkvæmt lögum nr. 66 31. maí 1976 er að:

1. Dreifing og sala raforku.

Virkja vatnsafl og jarðhita á Vestfjörðum þar sem hagkvæmt þykir.

2. Eiga og reka vatnsorkuver og dísilraforkustöðvar til raforkuframleiðslu, ásamt nauðsynlegum mannvirkjun til raforkuflutnings og raforkudreifingar.

3. Eiga og reka jarðvarmavirki og fjarvarmakyndistöðvar ásamt nauðsynlegu dreifikerfi.

4. Annast virkjunarrannsóknir og aðrar undirbúningsrannsóknir eftir því sem ákveðið er hverju

09/04/2026

Það er ennþá nóg til af varning hjá okkur. Selfie ljós, sólgleraugu, rúðusköfur, endurskin, súkkulaði o.fl. ☺️
Það er opið hjá okkur hér á Stakkanesinu og þið að sjálfsögðu velkomin að kíkja við og næla ykkur í varning ☺️

Photos from Orkubú Vestfjarða's post 08/04/2026

Verið velkomin til okkar á Stakkanes 1 og nælið ykkur í varning.
Hurðin er opin og allir velkomnir ☺️

07/04/2026

Misstir þú af selfie ljósunum sem slógu í gegn á Aldrei fór ég suður í ár ? Já eða gleraugunum frá því í fyrra eða jafnvel endurskininu frá því fyrir löngu ?

Þá bjóðum við þig velkomin til okkar í Orkubúið á Stakkanesi 1 á morgun frá 9-12 og 13-16. Selfie ljósin slógu í gegn og kláruðust fljótt og örugglega á föstudaginn, en við eigum meira fyrir ykkur sem viljið ☺️

Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða 2026 09/03/2026

Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða eru veittir árlega sem stuðningur við einstaklinga og félög sem vinna að áhugaverðum og samfélagslega mikilvægum verkefnum á Vestfjörðum. Við val á styrkþegum er leitast við að styrkja verkefni vítt og breitt um Vestfirði. Verkefnin geta tengst starfsemi ýmissa félaga á Vestfjörðum, æskulýðsstarfi, menningarstarfsemi, listum eða öðrum áhugaverðum verkefnum til eflingar fyrir vestfirskt samfélag.

Miðað er við að einstakar styrkveitingar geti verið á bilinu 50 til 300 þúsund

Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026.

Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða 2026 Orkubú Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki 2026

06/03/2026
Sumarstörf í boði 2026 03/03/2026

Sumarstörf í boði 2026

Auglýst er eftir flokkstjóra til að hafa umsjón með sumarvinnuflokki sem hefur starfsstöð á Ísafirði. Einnig er auglýst eftir ungu fólki til starfa hjá Orkubúinu í sumar.

Vakin er sérstök athygli á því að auglýst er eftir ungu fólki til sumarstarfa í vinnuflokka sem hafa starfsstöðvar á Ísafirði, Patreksfirði og á Hólmavík.

Umsóknarfrestur er til 7.04.2026.

Sumarstörf í boði 2026 Auglýst er eftir flokkstjóra til að hafa umsjón með sumarvinnuflokki sem hefur starfsstöð á Ísafirði. Einnig er auglýst eftir ungu fólki til starfa hjá Orkubúinu í sumar.

01/03/2026

Aðfaranótt laugardagsins 7 mars þarf að taka af rafmagnið í Bolungarvík. Rafmagnsleysið verður frá klukkan 00.10 til 06.00 vegna tengivinnu í Tjarnarkambi. Biðjumst við velvirðingar á því ónæði sem af þessu hlíst. Ekki verður truflun á hitaveitunni. Nánari upplýsingar í síma 4503202.

Photos from Orkubú Vestfjarða's post 25/12/2025

Uppfært
Línan er komin inn eftir viðgerð og eiga allir notendur að vera komnir með rafmagn.

Vinna er hafin við viðgerð á Gerðhamralínu, strengurinn fór í sundur í Hjarðardalsá og vonir standa til að viðgerð verði lokið með kvöldinu.

Orkubú Vestfjarða 10/11/2025

Kæru viðskiptavinir,

Orkubú Vestfjarða er nú með könnun þar sem við viljum meta þjónustu fyrirtækisins og fá skoðanir ykkar á nokkrum atriðum.
Svör ykkar eru afar mikilvæg. Það er einfalt að svara spurningalistanum og ætti einungis að taka örfáar mínútur.

Þrír heppnir þátttakendur verða drengir út og fær hver þeirra 30.000kr,- peningakort.

Orkubú Vestfjarða Orkubú Vestfjarða

Want your business to be the top-listed Government Service in Ísafjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Stakkanes 1
Ísafjörður
400