Björgunarskipið Guðmundur í Tungu

Björgunarskipið Guðmundur í Tungu

Share

Guðmundur í Tungu er björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, staðsett á Ísafirði

Photos from Björgunarskipið Guðmundur í Tungu's post 23/04/2026

Áhöfnin á Guðmundi í Tungu hélt í morgun í æfingaferð til Patreksfjarðar en planið var að sýna þeim skipið og framkvæma prófanir en þeirra skip er væntanlegt með haustinu svo kjörið tækifæri að kynnast þessu.
Sannarlega skemmtilegt og fékk áhöfnin okkar höfðinglegar mótttökur frá heimamönnum sem buðu til hádegisverðar í húsnæði Blakks að lokinni æfingu.
Takk kærlega fyrir okkur !

Hampiðjan styrkir Guðmund í Tungu 16/04/2026

Viðskiptablaðið fjallar um veglega gjöf Hampiðjunnar til okkar

Hampiðjan styrkir Guðmund í Tungu Hampiðjan hefur afhent björgunarskipinu Guðmundi í Tungu dráttartaugar úr Robus ofurefninu að gjöf. Skipið er staðsett á Ísafirði og styrkir viðbragðsgetu á svæðinu verulega en það var tekið í notkun við hátíðlega athöfn í nóvember 2025.

Photos from Björgunarskipið Guðmundur í Tungu's post 08/03/2026

Nú um helgina var haldið enn eitt áhafnarnámskeiðið á Guðmund í Tungu, á námskeiði sem þessu er farið yfir ýmis atriði varðandi skipið og stjórntök þess.
Mikið er um að vera, æft og lært nánast vikulega um þessar mundir 💪

Photos from Björgunarskipið Guðmundur í Tungu's post 04/03/2026

Í kvöld tóku 7 áhafnarmeðlimir æfingu ,byrjað var á leitaræfingu með hitamyndavél þar sem verið var að prófa að leita á sjó að brúsum með heitu vatni,því næst var prófað að fara í land á Skutulsfjarðarbrautinni og það gekk mjög vel og það sýnir vel hversu grunnt skipið getur farið en það ristir 90 cm svo víða er hægt að fara í land sem er magnað en á stefninu er gúmmíkantur sem er þar af ástæðu.

Photos from Björgunarskipið Guðmundur í Tungu's post 28/02/2026

Gísli Jóns kvaddur-

Í dag afhentum við Björgunarfélagi Akraness björgunarskipið Gísla Jóns og héldu Akurnesingar af stað í nýja heimahöfn kl 16:00.

Skipið hefur verið á Ísafirði í rétt tæp sjö ár og staðið sig afbragðsvel. Um er að ræða mjög öflugt björgunarskip og það er gott til þess að vita að það er að fara í öruggar hendur Akurnesinga.

Það var við hæfi að það var Skarphéðinn Gíslason, elsti sonur Gísla Jóns sem sleppti spottanum. Hann sigldi svo ásamt fleirum í Guðmundi í Tungu að fylgja Gísla. Þegar siglt var út Ísafjarðardjúp, til móts þar sem björgunarafrekið á Agli rauða var, skein í stutta stund sól á Gísla sem var táknrænt.

Við óskum Akurnesingum innilega til hamingju með skipið og megi því og áhöfn farnast vel

Photos from Björgunarskipið Guðmundur í Tungu's post 26/01/2026

Við héldum æfingu í kvöld en æfingar hjá okkur hafa verið nokkrar undanfarið enda margt að læra á, krefjandi aðstæður í kvöld í miklum vindi en stjórntök voru m,a æfð.
10 áhafnarmeðlimir tóku þátt en þess má einnig geta að fjórir af þeim luku fimm daga grunnöryggisfræðslu STCW í Slysavarnaskóla sjómanna í liðinni viku 💪

Photos from Björgunarskipið Guðmundur í Tungu's post 16/12/2025

Áhöfn Guðmundar í Tungu tók sína fyrstu þyrluæfingu í kvöld og tóku 14 félagar þátt í æfingunni, það er mikilvægt að æfa og undirbúa félagsfólk undir aðstæður sem geta verið krefjandi.
Það mikilvægasta við svona æfingar er að læra og það gerðum við svo sannarlega og eins og oft hefur komið fram lofar nýja skipið góðu 🙂

16/12/2025

Æfing-Æfing-Æfing
Við verðum á æfingu eftir kl 19 í kvöld með þyrlu LHG svo ekki láta ykkur bregða ef þið heyrið smá þyrlunið 🙂

Want your business to be the top-listed Government Service in Ísafjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Ásgeirsgata
Ísafjörður
400