03/01/2026
Viltu vera vinur Hornbjargsvita ? Og hjálpa okkur við uppbyggingu staðarins ?
Það eina sem þarf til er að kaupa þetta fína merki sem hægt er að pressa á jakkann sinn eða bakpokann.
Við verðum með það til sölu í Vitanum og á skrifstofu Ferðafélags Íslands í vetur á 10.000 kr og hægt að senda hvert á land sem er.
Kveðja Vitaverðirnir.
18/06/2025
Við erum búin að opna Vitann, fjögurra daga vinnuferð lokið og allt málað, lagfært og snyrt. Kaffi og hjónabandssæla hjá Vitavörðunum
17/06/2024
Gleðilega þjóðhátíð. Sumarið komið í Hornbjargsvita. FÍ sjálfboðaliðar í vinnuferð í vitanum um helgina og það var svo sannarlega tekið til hendinni undir stjórn Dóra skálavarðar.
16/12/2023
Okkar næsti nágranni fallin, við sendum samúðarkveðjur í Árneshrepp.
Gjögurviti fallinn - RÚV.is
Vitinn við Gjögurflugvöll hefur líkega fallið í hvassviðri í gær. Hann hafði staðið í rúma öld, en látið verulega á sjá síðustu ár.
27/11/2023
Óli fallinn frá, okkur vitafólkinu þykir vænt um minningu Óla komma og höldum merki hans hátt á lofti í vitanum.
Eitt sinn kom gestur í Hornbjargsvita og fékk kaffi og trakteringar í eldhúsinu
Þá stóð Óli við eldhúsglugganum og hafði á orði ‘’ það er hvergi í vestur Evrópu fallegra útsýni úr eldhúsglugganum en í Látravík’’
En það gæti kannski verið fegurra í Austrinu ?
Óli kommi fallinn frá - Vísir
Ólafur Þ. Jónsson, fyrrverandi vitavörður í Hornbjargsvita og betur þekktur sem Óli kommi, lést í síðustu viku 89 ára gamall.
06/08/2023
Síðasta kvöldið í vitanum þetta árið lokum á morgun og siglum heim.
04/08/2023
Þeir gerast nú ekki öllu flottari snúrustaurarnir
30/07/2023
Ekkert annað að gera en baka og hafa það gott einn í þokunni.
17/07/2023
Það gekk á ýmsu hjá okkur í gær, sem betur fer sluppu allir heilir en með ansi mikið af blautu dóti.