Lögreglan á Vestfjörðum

Lögreglan á Vestfjörðum

Share

Lögreglan á Vestfjörðum sinnir löggæslu á svæðinu norðan Bæjarhrepps og Dalabyggðar. Lögreglustöðvar í umdæminu eru á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.

Lögreglan á Vestfjörðum hefur það sem meginmarkmið að auka öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa, starfa og fara um umdæmið. Innlegg eða athugasemdir á síðu lögreglunnar á Vestfjörðum sem falla ekki að skilyrðum Facebook (sjá hér: www.facebook.com/terms.php?ref=pf) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa, innihalda ásakanir um refsiverða háttsemi eða

02/06/2026

Hópslysaæfing Ísafjarðarflugvelli.

Síðastliðin laugardag, 30. maí 2026, stóð ISAVIA og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fyrir reglulegri æfingu við viðbrögðum við hópslysi á flugvellinum í Skutulsfirði.

Þó æfingin hafi tekið aðeins part úr degi var undirbúningurinn mun lengri, enda þiggja viðbragðsaðilar upprifjunarnámskeið, skrifborðsæfingar og fleira er nauðsynlegur þáttur í slíkum æfingum.

Æfingin þótti takast mjög vel, en tilgangurinn er sá að samhæfa viðbragð ólíkra viðbragðseininga þannig að nauðsynleg aðstoð berist fljótt og örugglega og öll meðferð slasaðra og annarra sem hlut eiga að máli sé fagleg.

Öllum viðbragðsaðilum sem tóku þátt í æfingunni og ekki síður leikurunum eru færðar bestu þakkir fyrir þátttökuna.

Varúð til ökumanna á Ísafirði 31/05/2026

Varúð hætta á ferð! ! !

Varúð til ökumanna á Ísafirði Akbraut Pollgötu, frá Pollgötublokk (gatnamót Pollgata/Skipagata) og Suðurgötu, að kyndistöð Orkubús Vestfjarða (gatnamót Suðurgata/Mjósund) er mjög hál.

LÖGREGLUSAMÞYKKT fyrir sveitarfélagið Ísafjarðarbæ. | Stjórnartíðindi 28/05/2026

Lögreglan á Vestfjörðum vill minna á að samkvæmt 21. gr. lögreglusamþykktar Ísafjarðarbæjar er óheimilt að leggja vörubifreiðum sem eru 5 tonn að leyfðri heildarþyngd eða meira og fólksflutningabifreiðum sem flytja mega 10 farþega eða fleiri í íbúðarhverfum.
Eigendum og stjórnendum slíkra ökutækja er bent á þetta og mun lögregla hafa eftirlit með slíkum lagningum á næstunni.

Lögreglusamþykkt Ísafjarðarbæjar er hér fyrir fróðleiksþyrsta.

LÖGREGLUSAMÞYKKT fyrir sveitarfélagið Ísafjarðarbæ. | Stjórnartíðindi Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

21/05/2026

Útivistarreglurnar.

Lögreglan á Vestfjörðum vill minna börn og foreldra á útivistarreglurnar og þá árlegu breytingu sem tilheyrir sumrinu, en þá mega börn vera örlítið lengur úti en að vetri til, með leyfi foreldra/forráðamanna.

Gleðilegt sumar.

21/05/2026

Æfing viðbragðsaðila ef hópslys yrði - Ísafjörður.

Þann 30 maí nk. mun ISAVIA standa fyrir reglulegri æfingu fyrir viðbragðsaðila ef til hópslyss kæmi á Ísafjarðarflugvelli.

Það er nauðsynlegt í æfingum sem þessum að hafa einstaklinga sem leika slasaða þannig að æfingin geti verið sem raunverulegust fyrir viðbragðsaðila.

Í æfingum sem þessum taka þátt heilbrigðisstarfsfólk, sjúkraflutningafólk, slökkvilið, björgunarsveitafólk, viðbragðsaðilar frá RKÍ og lögreglan.

Hér auglýsir ISAVIA eftir leikurum, sjá viðhengið.

11/05/2026

Varúð - Vegavinna.

Starfsmenn Vegagerðarinnar eru í óðaönn að vinna að vegabótum og ekki vanþörf á eftir veturinn. Þetta á við um mest alla vegi á Vestfjörðum.

Viðeigandi umferðarskilti eru jafnan sett upp áður en kemur að þeim vegaköflum sem unnið er að hverju sinni. Og þá jafnan með hraðatakmörkunum.

Allt of algengt er að ökumenn virði ekki þessi varúðarskilaboð og hægi ekki nægjanlega á sér og aki jafnvel of nærri starfsmönnum sem eru við þessa vinnu.

Lögreglan vill hvetja ökumenn til að virða þau varnaðarorð sem felast í þessum umferðarskiltum enda eru þau til þess að öryggis sé gætt og enginn hljóti skaða af.

Ökumenn mega búast við því að lögreglan gefi þessu gaum, þ.e.a.s. að umferðartakmarkanir séu virtar.

Meðfylgjandi mynd Vegagerðarinnar minnir okkur á að gæta skal varúðar í þessum aðstæðum.

05/05/2026

Lögregla hefur reglubundið eftirlit með skotvopnamálum. Má þar nefna leyfismál, vörslur slíkra vopna og eftirlit með skotvopnaskápum.
Í tengslum við það geta eigendur skotvopna átt von á heimsókn lögreglu til að kanna vörslur skotvopna og skotfæra.
Samkvæmt breytingu á vopnalögum frá því snemma árs 2024 skulu öll skotvopn geymd í viðurkenndum skotvopnaskápum, en fyrir breytinguna var þetta ekki krafa fyrr en við fjórða skotvopn. Þá skulu skotvopn geymd á lögheimilum eigenda sinna, nema sérstök undanþága komi til.
Þá er rétt að benda á að þó heimilt sé að lána skotvopn öðrum aðila með gilt skotvopnaleyfi skal slíkt lán ávallt vera skriflegt og skal lánþegi geta framvísað slíku leyfi sé þess óskað. Ef lánið er til lengri tíma en 4 vikna skal tilkynna lögreglu um lánið í gegnum island.is (Lánstilkynning skotvopns).

Talsvert hefur verið um það í eftirliti lögreglu að í fórum manna finnist gömul skotvopn sem í flestum tilfellum reynast hafa gengið ,,mann fram af manni" en eru ekki skráð á þann sem varslar þau. Afar mikilvægt er að skotvopnaleyfishafar séu meðvitaðir um að óheimilt er að varsla skotvopn án tilskilinna leyfa.
Þeim sem kunna að hafa slík vopn í sínum fórum er bent á að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum á [email protected] eða í síma 444 0400 en þá er í flestum tilfellum hægt að fá vopnin skráð á sig, enda ofast mögulegt að finna uppruna þeirra.
Einnig er hægt að skila inn til lögreglu slíkum vopnum og láta farga þeim án frekari eftirmála. Finnist slík vopn við eftirlit lögreglu kann það að hafa frekari eftirmála í för með sér.

Að lokum er rétt að brýna fyrir skotvopnaleyfishöfum að tryggja að skotvopnaleyfi sé í gildi, enda gera vopnalögin engan greinarmun á útrunnu leyfi og leyfisleysi.
Hægt er að skoða eigin leyfi og skráð skotvopn á island.is – Mínar síður – Skírteini – Skotvopnaleyfi.

22/04/2026

Eyðing sprengiefnis á Óshlíð í dag, miðvikudaginn 22. apríl.
Sprengusérfræðingar Landhelgisgæslu Íslands komu til Bolungarvíkur í dag til að ganga frá og farga sprengiefni sem komið var á tíma.
Í framhaldinu verður sprengiefnið sprengt á Óshlíð eftir kl 16:30 í dag, miðvikudag. Sprengingarnar verða framkvæmdar í áföngum og geta tekið nokkurn tíma.
Af þeim sökum er Bolvíkingum, ábúendum þar nærri og öðrum þar á svæðinu, bent á að þrátt fyrir ítrekaðan hávaða meðan á þessu stendur er ekki hætta á ferðum.

07/04/2026

Páskahelgin gekk stóráfallalaust fyrir sig á Vestfjörðum. Fjórir gistu þó fangageymslur á Ísafirði, vegna óláta og líkamsárása. Rannsókn þeirra mála er lokið og þau upplýst. Einn hinna handteknu var með fíkniefni í fórum sínum.

Rokkhátíðin Aldrei fór ég suður, fór fram á Ísafirði um páskana í 22. sinn. Fjöldi fólks sótti hátíðina sem fór almennt vel fram.

20 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku, vítt og breitt um umdæmið.
Enginn var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og er það mjög jákvætt sér í lagi þar sem lögregla var með öflugt eftirlit með slíku.

Tilkynning barst um umferðarslys á Flateyrarvegi á 2. degi páska hvar tveir voru sagðir slasaðir. Er lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang kom í ljós að um minniháttar meiðsl virtist að ræða.

Á 2. degi páska urðu lögreglumenn við eftirlit í nágrenni Ísafjarðar, varir við megna kannabislykt. Eftir að hafa rakið lyktina að húsi í nágrenninu kom í ljós að innandyra var allnokkur kannabisræktun. Einn var handtekinn vegna málsins og hald lagt á hin ræktuðu efni og ræktunarbúnað.

Want your business to be the top-listed Government Service in Ísafjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hafnarstræti 1
Ísafjörður
400