Aðalfundur!
Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Tinds mun fara fram í húsnæði okkar að Námuvegi 2 þann 13. Apríl.
Boðið verður uppá veitingar fyrir fund klukkan 18:30 og fundur hefst 19:30.
Dagskrá fundarins er hefðbundinn aðalfundarstörf.
Björgunarsveitin Tindur
Hér getur almenningur fylgst með hvað Björgunarsveitin Tindur er að gera hverju sinni
15/03/2026
🚨⚠️Förum varlega⚠️🚨
Óvissustig er enn í gildi á Norðurlandi vegna snjóflóðahættu og hafa þó nokkur flóð fallið síðasta sólarhringinn á norðanverðum Tröllaskaga.
Á Ólafsfirði hafa fallið flóð úr nyrstu giljunum í Ósbrekkufjalli og náð yfir veg norðan við hesthúsabyggðina. Eitt af þessum flóðum er bara rétt norðan við hesthúsabyggðina.
Því hefur verið tekin ákvörðun um að loka Kleifavegi frá gatnamótunum við Ólafsfjarðarveg og banna aðgengi að hesthúsunum nema undir eftirliti og í samstarfi við lögregluna. Unnið er að útfærslu á því með eigendum hesthúsa á svæðinu.
Á Siglufirði hafa fallið flóð bæði úr Strengsgili og Jörundarskál og leiddi leiðgarðurinn þau áfram niður í tjörnina sunnan við bæinn án þess að nokkuð tjón yrði líkt og honum er ætlað.
Á Siglufirði viljum við vekja sérstaka athygli á því að komi til þess að snjóflóð falli í sjó fram úr Skollaskál, sem er handan fjarðarins á móti byggðinni, gæti sjávargangur valdið ursla í höfninni á Siglufirði og jafnvel náð uppá land.
Hvetjum við því fólk til að vera ekki að óþörfu á og við bryggjukantana á Siglufirði kæmi til þess að þetta myndi gerast.
Af gefnu tilefni viljum við líka vekja athygli fjallaskíðafólks, sem og öðrum sem eru á ferðinni um fjalllendi á þessu svæði, á því að óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og mat Veðurstofunnar að mikil hætta sé á snjóflóðum á svæðinu. Allar nánari upplýsingar má finna um það á síðu hennar.
https://gottvedur.is/snjoflod/kort/?zoom=9.14&lat=66.1375&lng=-18.9408&avalancheId=61276&mapType=avalanche-registrations&mapType=avalanche
Mynd þessi er tekin á Kleifavegi nú í morgun af flóðinu sem náði þar yfir veg.
05/01/2026
Minnum á opnunartíma á morgun/þrettándanum frá 14-16‼️🎇
31/12/2025
Förum varlega‼️
Tilkynning vegna sinuhættu! ⚠⚠
Slökkviliðsstjórar á öllu Norðurlandi biðla til fólks að fara afar varlega með skotelda og opinn eld í dag, Gamlársdag. Afar þurrt er í veðri, gróður á svæðinu er mjög þurr og því hætta á að ef eldur kemst í sinu getur að breiðst hratt út.
Fólk er beðið um að kveikja ekki eld nærri sinu, kjarri og háu grasi og ekki vera með flugelda þar sem hætta er á að glóð úr þeim geti komið af stað sinubruna.
31/12/2025
🎊FLUGELDASÝNING🎊
Við ætlum að minna fólk á hina árlegu flugeldasýningu🥳. Brennan hefst klukkan 20:00 og flugeldasýning klukkan 20:30!
‼️Besta útsýnið frá brennunni‼️
Hlökkum til að sjá sem flesta‼️
31/12/2025
HUGUM AÐ ÖRYGGINU‼️
Hugum að örygginu - Slysavarnafélagið Landsbjörg Flugeldagleraugu fyrir alla fjölskylduna fást hjá flugeldasölu björgunarsveitanna.
30/12/2025
‼️INNKÖLLUN Á "RAKETTUPAKKA 2" VEGNA GALLA‼️
Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.
Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á morgun, gamlársdag, þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.
Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.
29/12/2025
Tilboð dagsins‼️
🔥Tungubrenna
🎊Trítill
🚔Snjóbílar
Á aðeins 40.000kr‼️
Tryggið ykkur þetta tilboð sem gildir aðeins í dag‼️
29/12/2025
💥NÝJAR BJÖRGUNAR VÖRUR💥
Í ár komu út 4 nýjar björgunar vörur:
Fyrsta hjálp🩺
Snjóflóð🌨️
Björgunarhundar🦮
Fjarskipti📞
Opið frá klukkan 15-21‼️
28/12/2025
UPPFÆRT:GJAFALEIK LOKIÐ🎊
Það var hún Alda María Traustadóttir sem fékk vinninginn‼️
Þökkum öllum sem tóku þátt🥳
—————————————————————
Við hjá björgunarsveitinni Tind ætlum að henda í gjafaleik í tilefni flugeldasölunar‼️
Dregið út 30. Des
Í boði er:
Raketta🎆
Önundar-brenna🔥
Þorbjörn Laxakarl🎊
Fjallajeppar🏎️
Þið kunnið þetta, like’a, commenta og deila🥳
27/12/2025
Nú styttist í áramótin og þá fer ein af stærstu fjáröflunum okkar af stað.
Opnunartímarnir eru eftirfarandi, hlökkum til að sjá ykkur!
Ykkar styrkur skiptir okkur máli.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Telephone
Website
Address
Námuvegur 2
Ólafsfjörður
625
