Sveitarfélagið Ölfus

Sveitarfélagið Ölfus

Share

Facebook síða Sveitarfélagsins Ölfuss. Heimasíða Ölfuss er www. olfus.is

Photos from Sveitarfélagið Ölfus's post 18/06/2026

Sumarnámskeið fyrir 11 - 14 ára krakka:
Spennandi ævintýra spunaspil með langa sögu þar sem spilarar setja sig í hlutverk hetju í fantasíu heimi. Á námskeiðinu verður farið yfir öll helstu atriði spilsins. Reynsluboltarnir í borðspilum þeir Þorsteinn Már, Garðar Smári og Emil Þórs verða þjálfarar á námskeiðinu. Þessu má enginn missa af 🤓

Photos from Sveitarfélagið Ölfus's post 18/06/2026

Skemmtilegt námskeið sem hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa áður prófað leir. Áhersla er lögð á sköpunargleði, tilraunir og notalega stemningu í litlum hópi. Námskeiðið hefst á mánudaginn :)
Sjá upplýsingar um önnur námskeið https://www.olfus.is/is/frettir/sumarnamskeid-fyrir-born-i-olfusi

Photos from Sveitarfélagið Ölfus's post 11/06/2026

Fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið eru í boði fyrir börn og unglinga í sumar. Í námskeiði í skapandi skrifum læra krakkarnir að skrifa og myndlýsa sögur, teikna og hanna sögupersónur. Námskeiðið er fyrir hádegi 22.-26. júní.
Sjá nánar á https://www.olfus.is/is/frettir/sumarnamskeid-fyrir-born-i-olfusi

VISS, vinnu- og hæfingarstöð í Þorlákshöfn leitar eftir leiðbeinanda | Sveitarfélagið Ölfus 10/06/2026

Okkur vantar leiðbeinanda á VISS í Þorlákshöfn. Frábær vinnustaður og fjölbreytt verkefni.

VISS, vinnu- og hæfingarstöð í Þorlákshöfn leitar eftir leiðbeinanda | Sveitarfélagið Ölfus VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinanda í 55%, starfshlutfall frá og með 15. ágúst 2026. Starfið er afleysing til eins árs með möguleika á áframhaldandi fastráðningu. Vinnutími er frá 09:00 til 13:00 alla virka daga. VISS er vinnustaður fyrir fólk með s...

Starf vélstjóra á hafnsögubát Þorlákshafnar | Sveitarfélagið Ölfus 10/06/2026

Okkur bráðvantar vélstjóra í okkar góða hóp starfsmanna á höfninni.

Starf vélstjóra á hafnsögubát Þorlákshafnar | Sveitarfélagið Ölfus Þorlákshafnarhöfn auglýsir laust til umsóknar 100% starf vélstjóra. Starfið er unnið í vaktavinnu. Þorlákshafnarhöfn er lifandi vinnustaður og verkefnin fjölbreytt. Starfsemi hafnarinnar vex hratt og því vantar okkur góðan liðsmann í okkar raðir. Æskilegt er að viðkomandi ge...

08/06/2026

Vegna viðgerðar á streng verður rafmagnslaust í Ölfusi milli Hveragerðis og Ölfusár frá kl. 23:00 þann 8.6.2026 til kl. 5:00 þann 9.6.2026.
Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof

Sjómannadags- og vatnahátíð 5. - 7. júní 2026 í Ölfusi 05/06/2026

Það verður sannkölluð ævintýrastemning fyrir unga sjóræningja í íþróttahúsinu þar sem krakkar og fjölskyldur geta tekið þátt í spennandi fjársjóðsleit og þrautabraut í anda Pirates of the Caribbean á morgun, föstudag kl 10:30.

Sjómannadags- og vatnahátíð 5. - 7. júní 2026 í Ölfusi Sjómannadags- og vatnahátíð 5. - 7. júní 2026 í Ölfusi

Want your business to be the top-listed Government Service in Þorlákshöfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hafnarbergi 1
Þorlákshöfn
815