26/05/2026
ESB umræðan í brennidepli
Laugardaginn 30. maí kl. 11:00 fáum við heimsókn frá Diljá Mist Einarsdóttir, þingkonu Sjálfstæðisflokkurinn og fulltrúa í utanríkismálanefnd.
Diljá Mist fer yfir stöðuna í málefnum ESB og helstu umræðupunkta dagsins.
📍 Unubakki 3a, Þorlákshöfn
☕ Síðasti fundur vetrarins áður en sumarið tekur við
Öll velkomin!
17/05/2026
Við á D-listanum í Ölfusi viljum þakka öllum þeim sem kusu okkur kærlega fyrir þann mikla stuðning sem okkur var sýndur. Úrslitin fóru fram úr okkar björtustu vonum og við tökum því trausti sem okkur er sýnt af mikilli auðmýkt 🤝🗳️
Við hlökkum til að vinna fyrir íbúa Ölfuss næstu fjögur árin af krafti og ábyrgð. Jafnframt viljum við þakka mótherjum okkar fyrir málefnalega og drengilega kosningabaráttu og hlökkum til samstarfsins á komandi kjörtímabili 💙
15/05/2026
Þeir sem vilja skella prófílmyndaramma á myndina sína á Facebook geta gert það með að smella á linkinn hér fyrir neðan.
Áfram D-listinn! Áfram af ábyrgð! 💙
Prófílmyndarammi — XD - Sjálfstæðisflokkurinn
🖼️ Settu XD ramma á prófílmyndina þína Veldu rammann sem þér líkar best, settu þína mynd inn, stilltu stærð og staðsetningu — svo sækir þú myndina þína og hún er tilbúin til birtingar á samfélagsmiðlum! 1. Veldu rammann þinn 🖼️ Forskoðun hér 2. Sæktu myndina þ...
15/05/2026
"Við viljum halda áfram að byggja upp öflugt samfélag þar sem þjónusta, atvinnulíf og lífsgæði íbúa eru í forgrunni. Við vitum að ýmislegt sem hefur verið gert, eða ekki gert, er umdeilt. Það er eðli starfs bæjarfulltrúa að þurfa, oft á tíðum, að taka erfiðar ákvarðanir og vega ólík sjónarmið hvert gegn öðru. Stundum eru mistök gerð, þá skiptir máli að staldra við, endurskoða, leiðrétta og læra af mistökunum. Við munum ávallt leggja okkur fram við að hlusta á raddir bæjarbúa og taka mið af þeim sjónarmiðum sem íbúar hafa fram að færa. Við teljum gott samtal, samvinnu og gagnkvæmt traust lykilinn að áframhaldandi farsælli uppbyggingu samfélagsins." 💙
Hlekkur á grein í fyrstu athugasemd.
15/05/2026
Við viljum halda áfram að byggja upp öflugt samfélag þar sem þjónusta, atvinnulíf og lífsgæði íbúa eru í forgrunni 💙