17/05/2026
Takk! 💙
Við erum gríðarlega þakklát fyrir þann stuðning sem kjósendur sýndu okkur í gær.
Við hlutum flest atkvæði - 33,6% og þrjá bæjarfulltrúa.
Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og frjálsra hafið formlegar viðræður um meirihluta í bæjarstjórn Akraneskaupsstaðar.
15/05/2026
Akstur á kjörstað 🚙
Hafðu samband við okkur í skilaboðum og við skutlum þér á kjörstað 💙
15/05/2026
Viktor Elvar Viktorsson býður fram krafta sína til setu í bæjarstjórn á Akranesi 💙
„Ég er tilbúinn að láta verkin tala, taka ákvarðanir og standa í lappirnar!”
Setjum X við D 16. maí og tryggjum Viktor í bæjarstjórn💙
Settu X við D
16. maí
15/05/2026
Þú skaffar vinnuna, við efnið.
Saman gerum við umhverfið fallegra 💙
Væri það ekki næs?
15/05/2026
Sjáumst á leiknum! 💙
Við bjóðum öllum frítt á leik Kára og Hvíta riddarans klukkan 19:15.
Áfram Kári! 💙
Kári - Hvíti Riddarinn í boði X-D á Akranesi!
Káramenn sem hafa heldur betur farið vel af stað og eru efsta sæti 2.deildar taka á móti Hvíta Riddaranum í Akraneshöll á föstudagskvöldið klukkan 19:15.
Eftir frábæra sigra á móti KFG og KFA í fyrstu tveimur umferðunum taka Káramenn á móti Hvíta Riddaranum sem eru taplausir eftir jafntefli gegn Víking Ólafsvík og Selfossi.
Það er ljóst að þetta verður krefjandi leikur og mikilvægur fyrir Káramenn sem vilja ólmir halda toppsætinu og Matthías Daði vill örugglega bæta við þriðju þrennunni í röð, en Matti var valinn leikmaður 1.umferðar og 2.umferðar í 2.deild.
Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi býður öllum á leikinn.
Frábært framtak sem við hvetjum alla til að nýta sér og mæta á leikinn og styðja Káramenn til sigurs.
Kaffi og veitingasala á staðnum.
Minnum einnig á ársmiðasölu Kára sem er stór liður í tekjuöflun félagsins:
https://stubb.is/kari/passes
Áfram Kári!
15/05/2026
💙 Á morgun göngum við til kosninga!
🚙 Í dag hins vegar, frá klukkan 10 og á meðan birgðir endast þá erum við á ferðinni með góss.
🧁 Má bjóða ykkur D vítamin, blátt powerade, bollaköku eða bara knús?
📣 Við komum hvert sem er, á vinnustaðinn, verkstaðinn, heimahús – þú þarft bara að kalla!
Skrifaðu hér undir eða sendu okkur skilaboð.