Landmælingar Íslands

Landmælingar Íslands

Share

Landmælingar Íslands hafa það meginhlutverk að sinna landmælingum og vinnslu landupplýsinga.

24/10/2025

ATHUGIÐ – Landmælingar Íslands eru ekki lengur starfandi sem sjálfstæð stofnun

Landmælingar Íslands sameinuðust Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn á síðasta ári undir heitinu Náttúrufræðistofnun.

Upplýsingar og þjónusta sem áður voru á vegum Landmælinga Íslands eru nú aðgengilegar á nýjum miðlum og vef Náttúrufræðistofnunar.

Fylgstu með okkur hér:
🌐 https://www.natt.is/is
📱 https://www.facebook.com/natturufraedistofnun
📱 https://www.instagram.com/natturufraedistofnun/
📱 https://www.linkedin.com/company/natturufraedistofnun/
📱 https://bsky.app/profile/nattstofnun.bsky.social

Takk fyrir að fylgja okkur á nýjum slóðum!

14/06/2024

Í tilefni 80 ára afmælis íslenska lýðveldisins þann 17. júní smelltum við í eitt kort þar sem þemað er Ísland og nöfn kjörinna forseta íslenska lýðveldisins sem gegnt hafa embættinu þar til nú en það eru þau Sveinn, Ásgeir, Kristján, Vigdís, Ólafur og Guðni.

🇮🇸 Til hamingju með daginn næsta mánudag🎈

Smellið hér til að skoða kortið í vefsjá https://ornefnasja.lmi.is/mapview/?application=ornefnasja&l=is&c=500000,500000&z=1.0&ls=673,7844,666

03/06/2024

Halla Tómasdóttir var kjörin sjöundi forseti Íslands á laugardaginn. Okkur langaði að heiðra hana og bjuggum til kort sem vísar í nafnið Halla. Það eru til fjögur örnefni með nafnið Halla í nf; tindur, varða, sker og tún, 17 örnefni sem byrja á Höllu t.d. Höllubjarg, Hölluhvilft, Höllubrekka og tveir Hölluhólar og síðan eru þrjú bæjarnöfn (heimilsföng) sem hefjast á Höllu 😊
Til hamingju Halla 🇮🇸

Smellið hér til að skoða kortið: https://ornefnasja.lmi.is/mapview/?application=ornefnasja&l=is&c=500000,500000&z=1.0&ls=673,7708,666

21/05/2024

Sameinað sveit­ar­félag Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar varð til með samein­ingu sem tók gildi á hvíta­sunnu­degi, 19. maí, 2024. Kosið verður um nafn samhliða forsetakosningum 1. júní. Sveitarfélög landsins eru nú orðin 63. Sjá betur í sveitarfélagasjánni https://markasja.gis.is/mapview/?application=markasja

18/04/2024

Ný mynd og nýir útreikningar af hrauninu.

Mánudaginn 15. apríl fór myndmælingateymi Náttúrufræðistofnunar (NÍ) og Landmælinga Íslands (LMÍ) í flug yfir gosstöðvarnar. Niðurstöður mælingaflugsins sýna að flatarmál hraunbreiðunnar þann 15. apríl var 6,15 km2 og rúmmál 33,2 ± 0,8 milljón m3. Útbreiðsla og þykkt hraunbreiðunnar er sýnd á korti hér að neðan.

Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina er stöðugt og gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk. Hraunbreiðan heldur áfram að byggjast upp nærri gígunum en hraun rennur einnig í lokuðum rásum um 1 km í suðaustur og eru virk svæði í hraunbreiðunni til móts við Hagafell. Landris í Svartsengi heldur áfram á stöðugum hraða. Þetta bendir til að u.þ.b. helmingur af kvikunni sem er að koma af dýpi sé að safnast fyrir í kvikuhólfinu en hinn helmingur er að flæða upp á yfirborð i Sundhnúksgígaröðinni.

Hægt er að lesa nánar um eldgosið við Sundhnúk hér: https://www.vedur.is/um-vi/frettir/jardhraeringar-grindavik

Sundhnúksgígar eruption 7-08.04.2024 time: 13:20 - 3D model by Náttúrufræðistofnun Íslands - Sketchfab 09/04/2024

Í gær var eldgosasvæðið myndað af myndmælingateymi LMÍ og NÍ, hægt að skoða hana m.a. í https://umbrotasja.gis.is/ , einnig er komin ný útlína af hrauninu, teiknuð eftur mynd gærdagsins.

Sundhnúksgígar eruption 7-08.04.2024 time: 13:20 - 3D model by Náttúrufræðistofnun Íslands - Sketchfab English below: Þrívíddarlíkön af gossvæðinu við Sundhnúksgíga unnin af myndmælingateymi Náttúrufræðistofnunar Íslands og Landmælinga Íslands. Verkefnið er unnið í samstarfi við Almannavarnir og Háskóla Ísland. 3D models of the eruption site at Sundhnúksgígar created by the...

Sundhnúksgígar eruption -7- 20.03.2024 time: 9am - 3D model by Náttúrufræðistofnun Íslands - Sketchfab 22/03/2024

Myndmælingateymi NÍ og LMÍ hefur unnið þrívíddarlíkan af gossvæðinu við Sundhnúksgíga. Myndirnar sem líkanið er unnið eftir voru teknar úr flugvél um kl. 9 þann 20. mars 2024 og myndmælt í Agisoft Metashape. Verkefnið er unnið í samstarfi við Almannavarnir og Háskóla Íslands.

Sundhnúksgígar eruption -7- 20.03.2024 time: 9am - 3D model by Náttúrufræðistofnun Íslands - Sketchfab English below: Þrívíddarlíkön af gossvæðinu við Sundhnúksgíga unnin af myndmælingateymi Náttúrufræðistofnunar Íslands og Landmælinga Íslands. Verkefnið er unnið í samstarfi við Almannavarnir og Háskóla Ísland. 3D models of the eruption site at Sundhnúksgígar created by the...

08/03/2024

Í dag á alþjóðlegum baráttudegi kvenna datt okkur í hug að búa til kort með örnefnum sem vísa í nöfn nokkurra íslenskra kvenskörunga í gegnum tíðina; Auður Auðuns, Auður djúpúðga, Brák, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Hallgerður langbrók, Jóhanna Sigurðardóttir, Katrín Jakobsdóttir, Sigríður frá Brattholti og Vigdís Finnbogadóttir
Smellið hér til að skoða kortið: https://ornefnasja.lmi.is/mapview/?application=ornefnasja&l=is&c=606491,512151&z=1.0&ls=673,7452,666

04/03/2024

Gömul kort eru til ýmissa hluta nytsamleg. Í Hönnunarsafni Íslands stendur nú yfir sýning þar sem meðal annars eru sýndir skartgripir sem gerðir eru úr gömlum landakortum frá Landmælingum Íslands. Sýningin verður opin til 26. maí.

Want your business to be the top-listed Government Service in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Smiðjuvellir 28
Akranes
300

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 14:00