Náttúrufræðistofnun

Náttúrufræðistofnun

Share

Náttúrufræðistofnun er ríkisstofnun og heyrir til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Varð til 1.júlí 2024 við sameiningu NÍ, LMÍ og RAMÝ

Starfsstöðvarnar Náttúrufræðistofnunar Íslands eru fimm. Höfuðstöðvar eru á Akranesi en þar að auki eru starfsstöðvar í Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Borgum á Akureyri, á Mývatni og á Breiðdalsvík. Starfssviði Náttúrufræðistofnunar Íslands má skipta í þrjá meginflokka:

• Að skrá, varðveita, flokka og kortleggja lífríki og jarðmyndanir landsins og skrá upplýsingar um þessa þætti í gagnagrunna

Ný rannsókn varpar ljósi á framvindu jökulhlaupa 15/06/2026

Við vekjum athygli á grein sem kom nýverið út í tímaritinu Jökli. Hún varpar ljósi á myndun og framvindu jökulhlaupa frá Mýrdalsjökli og Hofsjökli.

Meðal höfunda greinarinnar er Joaquín M.C. Belart, sérfræðingur fjarkönnunar hjá Náttúrufræðistofnun.

Ný rannsókn varpar ljósi á framvindu jökulhlaupa Ný grein í tímaritinu Jökli varpar ljósi á myndun og framvindu jökulhlaupa undir íslenskum jöklum. Niðurstöðurnar benda til þess að hitastig jökulhlaupsvatns geti verið mjög breytilegt og haft mikil áhrif á þróun hlaupanna.

Málþing um íslenska refinn 12/06/2026

Misstir þú af málþingi um íslenska refinn?

Hægt að horfa á upptöku af málþinginu á YouTube. Þar fjalla sérfræðingar ýmsa þætti sem tengjast líffræði íslenska refastofnsins og vöktun hans.

🎥 Horfðu á upptökuna hér:

Málþing um íslenska refinn Á málþinginu verður fjallað um ýmsa þætti sem tengjast líffræði ísl...

Málþing um íslenska refinn 08/06/2026

Á morgun verður haldið málþing um íslenska refinn.

Klukkan 13:00 í Eddu, húsi íslenskunnar og í streymi.

Málþing um íslenska refinn Málþing um íslenska refinn verður haldið þriðjudaginn 9. júní 2026 kl. 13 í Eddu, húsi íslenskunnar. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi á netinu.

Mývatn vaknar af vetrardvala - RÚV.is 08/06/2026

🪰 Í fréttatíma RÚV í gær var rætt við líffræðinginn Sölva Rúnar Vignisson hjá Náttúrufræðistofnun um hvernig Mývatn er nú að vakna til lífsins eftir veturinn.

Mývatn vaknar af vetrardvala - RÚV.is Eftir napurt vor fyrir norðan er Mývatn að vakna til lífsins með tilheyrandi mýflugum og fuglalífi. Búist er við mikilli flugu í sumar, eins og síðasta sumar.

Our planet is sending signals too hot to ignore #NowForClimate 05/06/2026

🌍 Í dag er alþjóðlegur umhverfisdagur Sameinuðu þjóðanna.

Dagurinn í ár er sameiginlegt ákall um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum.

Jörðin sendir okkur skýr merki, t.d. hækkandi sjávarstaða, hitabylgjur, skógareldar og bráðnun jökla. Vísindamenn hafa í áratugi varað við þróuninni og bent á nauðsyn þess að grípa til aðgerða. Nú er ljóst að áhrif loftslagsbreytinga eru farin að hafa áhrif víða um heim.

Samhliða þessu sjást þó einnig merki um jákvæðar breytingar. Sífellt meiri áhersla er lögð á endurnýjanlega orku, vistkerfi eru endurheimt og samfélög víða um heim leita leiða til að draga úr áhrifum á loftslag og náttúru.

Í ár hvetur umhverfisáætlun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) okkur öll til að stíga fram og taka þátt í að móta sjálfbærari framtíð.

Alþjóðlegi umhverfisdagurinn er áminning um að tími til aðgerða er núna. 🌱

Our planet is sending signals too hot to ignore #NowForClimate The planet doesn’t argue. It doesn’t negotiate. It is sending us si...

Photos from Náttúrufræðistofnun's post 03/06/2026

Náttúrufræðistofnun hefur tekið við höfðinglegri gjöf frá Iðunni Elsu Kristinsdóttur, dóttur þeirra Kristins J. Albertssonar og Sigríðar Ágústsdóttur. Um er að ræða tvo fallega vasa eftir Sigríði, sem nam myndlist í Frakklandi og tók síðar þátt í vinnustofum í Bretlandi.

Kristinn gegndi stöðu forstöðumanns Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnunar frá 1999 til 2015 og stóðu vasarnir um árabil á bókasafni setursins í Borgum á Akureyri. Með gjöfinni hafa þeir nú aftur ratað til stofnunarinnar.

Náttúrufræðistofnun þakkar Iðunni Elsu kærlega fyrir þessa hlýlegu gjöf.

Photos from Náttúrufræðistofnun's post 03/06/2026

📷 Veistu hvar þessar loftmyndir voru teknar?

Við fundum nýlega nokkrar óstaðsettar loftmyndir í skönnuðu safni eldri loftmynda og nú leitum við til almennings eftir hjálp við að bera kennsl á staðina.

Myndirnar voru teknar yfir Tröllaskaga þann 27. júlí 1951 úr um 1500 m hæð og skarast að hluta. Þær sýna fjalllendi en nákvæm staðsetning er óþekkt.

Kannast einhver við landslagið?

Allar ábendingar eru vel þegnar!

Forstjóri Náttúrufræðistofnunar í stjórn EuroGeographics 27/05/2026

Á ársfundi EuroGeographics, samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu, sem haldinn var í Belgíu dagana 18.–19. maí, var Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar, kjörin í stjórn samtakanna.

Forstjóri Náttúrufræðistofnunar í stjórn EuroGeographics Á ársfundi EuroGeographics, samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu, sem haldinn var í Belgíu dagana 18.–19. maí, var kosið í stjórn samtakanna. Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnun, var kjörin í stjórn og mun sitja þar næstu tvö árin.

Want your business to be the top-listed Government Service in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Smiðjuvöllum 28
Akranes
300

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 12:00