Samfylkingin á Akranesi

Directions Website Contact the organization

Samfylkingin á Akranesi Samfylkingin - Jafnaðarflokkur Íslands

Því miður fellur bæjarmálafundur niður n.k sunnudag, 20.september kl.11. Næsti fundur verður 11.október kl.11.
18/09/2026

Því miður fellur bæjarmálafundur niður n.k sunnudag, 20.september kl.11.

Næsti fundur verður 11.október kl.11.

🌱 Spennandi tækifæri fyrir AkranesViljayfirlýsing um uppbyggingu gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa er spennandi skref í a...
04/09/2026

🌱 Spennandi tækifæri fyrir Akranes

Viljayfirlýsing um uppbyggingu gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa er spennandi skref í atvinnuuppbyggingu á Akranesi.

Verkefnið getur skapað ný störf og aukin tækifæri til verðmætasköpunar. Sérstaklega er áhugavert að horft sé til nýtingar glatvarma frá gagnaverum, til dæmis í ylrækt og matvælaframleiðslu.

Við í Samfylkingunni á Akranesi fögnum metnaðarfullum hugmyndum sem geta styrkt og eflt fjölbreytt atvinnulíf á Akranesi. 🌹

https://www.akranes.is/is/frettir/vilja-byggja-upp-gagnaverssvaedi-i-grjotkeldufloa?fbclid=IwZnRzaAUGi-hwZG9mBWZkaWQWUNt1lpt5xlfybdl63J2dq4kMfvq40mV4dG4DYWVtAjExAHNydGMGYXBwX2lkCjY2Mjg1NjgzNzkAAR5dXSfTtC4e1yJMCxVUN0I_jGbypQ-5eiL6GrtjHEalrKFVgGUQOU4C0lcevg_aem_U2XVvEjm7EXER3I19bqaJQ

Akraneskaupstaður og félag í eigu Alexanders Eiríkssonar, Bjarna Ármannssonar og Benedikts Bjarnasonar hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gagn

28/08/2026

🗳️ Þarf utankjörstaðaatkvæðið þitt að komast á réttan stað?

Ási verður í húsnæði Samfylkingarfélagsins á Akranesi laugardaginn 29. ágúst frá kl. 10:00–14:30.

Stillholt 16 - 18 Akranes.

Ef þú ert með utankjörstaðaatkvæði sem þarf að koma áfram fyrir lokun kjörstaða getur þú komið því til Ása. Hann sér um að það komist á réttan stað í tæka tíð.

Einfalt og þægilegt. ❤️

Endilega deilið þessu áfram svo upplýsingarnar nái til þeirra sem gætu þurft á þessu að halda.

Frábær tíðindi fyrir Akranes!! ❤️🌹Samkomulag í höfn um stækkun Höfða og fjölgun um allt að 60 hjúkrunarrými!Höfði er ein...
30/06/2026

Frábær tíðindi fyrir Akranes!! ❤️🌹

Samkomulag í höfn um stækkun Höfða og fjölgun um allt að 60 hjúkrunarrými!

Höfði er ein af grunnstoðunum í þjónustu við eldri Skagamenn og um leið einn stærsti vinnustaður bæjarins.

Samfylkingin hefur staðið í brúnni í þessu máli í nokkur ár og barist fyrir stækkuninni, og nú er hún loksins að verða að veruleika.Við þökkum ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

Þann 19. mars 2025 var skrifað undir samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila, sem síðan var fest í lög 16. júní sama ár.

Með því færðist ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila alfarið yfir til ríkisins, og fjöldi mála sem höfðu setið föst árum saman, eins og Höfði, eru nú loks komin á hreyfingu. Þetta er eitt af stóru verkunum sem kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum.
Það er grunnstoð í sterku velferðarkerfi að allir landsmenn geti treyst á örugga þjónustu þegar aldurinn færist yfir og þörfin kallar.

Enn er verk að vinna, en nú skiptir mestu að við Skagamenn höldum áfram að þrýsta á framgang málsins og tryggjum að framkvæmdir gangi eftir í samræmi við samkomulag dagsins.

❤️🌹 Til hamingju, Akranes! 🌹❤️

Tryggjum Önnu í bæjarstjórn - setjum X við S í dag🌹
16/05/2026

Tryggjum Önnu í bæjarstjórn - setjum X við S í dag🌹

Vantar þig far á kjörstað í dag?Heyrðu í okkur🌹
16/05/2026

Vantar þig far á kjörstað í dag?
Heyrðu í okkur🌹

16/05/2026

Kjósum Samfylkinguna í dag🌹

Margrét Bjarnadóttir skipar 11. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi🌹Margrét er fædd og uppalin á Akranesi, dóttir ...
15/05/2026

Margrét Bjarnadóttir skipar 11. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi🌹

Margrét er fædd og uppalin á Akranesi, dóttir hjónanna Bjarna Vésteinssonar og Steinunnar Sigurðardóttur. Hún er elst þriggja systkina. Margrét er gift Þorláki G Halldórssyni fiskverkanda og golfkennara. Saman eiga þau 4 uppkomin börn og ein litla 5 ára dömu, barnabörnin eru 3.

Margrét flutti til Noregs árið 1997 og hóf þá nám í tannfræði við Tannlæknaháskólann í Osló. Eftir námið flutti hún til Reykjavíkur og starfaði þar á tannlæknastofu. Hún flutti aftur til Noregs og bætti við sig námi í kennslu- og uppeldisfræði, ásamt því að vinna á tannlæknastofum í Ski og Sætre.10 árum seinna sneri hún aftur heim. Frá 2018 bjó Margrét og fjölskylda í Grindavík þar sem Þorlákur rak fiskverkun sína. Fjölskyldan flutti upp á Akranes eftir að íbúar Grindavíkur þurftu að yfirgefa bæinn 10. nóvember 2023. Í dag starfar Margrét á tannlæknastofunni 2Gómar hérna á Akranesi.

Margrét hefur haft áhuga á bæjarmálum frá unglingsaldri, þrátt fyrir búsetu erlendis hefur hún ávalt fylgst vel með gangi mála í heimabæ sínum. Velferðarmál eru henni efst í huga ásamt góðu atvinnulífi. Að hennar sögn er mikilvægt að taka vel á móti fyrirtækjum sem hafa áhuga á því að hefja starfsemi hérna á Akranesi. Íþróttalíf og fjölbreyttar tómstundir skipta miklu máli í góðu bæjarfélagi.

Í frítíma sínum nýtur Margrét að eiga tíma með fjölskyldu sinni og vinum. Einnig skipar golfíþróttin stóran sess í lífi fjölskyldunnar.

Það erum við sem gerum góðan bæ betri🌹Hlekkur í athugasemd👇
15/05/2026

Það erum við sem gerum góðan bæ betri🌹
Hlekkur í athugasemd👇

Address

Stillholt 16-18
Akranes
300

Opening Hours

Monday 17:00 - 19:00
Tuesday 17:00 - 22:00
Wednesday 17:00 - 19:00
Thursday 17:00 - 19:00
Friday 15:00 - 22:00
Saturday 10:00 - 22:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samfylkingin á Akranesi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Samfylkingin á Akranesi:

Shortcuts

Share