05/10/2024
Nú standa söfnunarkassar í Bónus og á Olís-stöðvum fyrir birkifræ haustsins. Þar má líka taka ókeypis söfnunaröskjur til að tína í. Tau- eða bréfpokar henta líka undir fræið.
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Söfnum og sáum birkifræi, Nature Preserve, Gömlu-Gróðrarstöðinni Krókeyri, Akureyri.
Land og skógur efnir árlega til landssöfnunar á birkifræi og hvetur landsmenn til að sá fræinu á svæðum þar sem birki gæti sprottið upp í friði og dreift sér út sjálft með tíð og tíma.
05/10/2024
Nú standa söfnunarkassar í Bónus og á Olís-stöðvum fyrir birkifræ haustsins. Þar má líka taka ókeypis söfnunaröskjur til að tína í. Tau- eða bréfpokar henta líka undir fræið.
04/10/2024
Fiðrildi? Nei, birkifræ.
04/10/2024
Hér er bara eitt birkifræ. Það er í miðjunni. Hitt er allt saman slíður sem mynda frærekilinn. Milli slíðranna leynast fræin.
Prentmet Oddi er einn af bakhjörlum Birkiverkefnisins. Þeirra framlag er hönnun og frameiðsla á Birkiöskjunni sem almenningur notar til að safna birkifræunum. Myndbandið sýnir öskjuna í framleiðslu . Nú er um að gera skella sér í birkimó og hjálpa til við að græða landið. Öskjurnar er hægt að nálgast í Bónus og Olis 🌱
14/09/2023
Þótt lítið fræ sé nú á birki í flestum landshlutum þarf ekki að örvænta. Til eru svolitlar birgðir af birkifræi hjá Skógræktinni. Hafið samband við fræstjórann okkar og þá getið þið fengið send 100 grömm í pakka til að sá á beitarfriðuðum svæðum. Af hundrað grömmum af birkifræi geta sprottið þúsundir trjáa. Annars er fræsöfnunarátakið Söfnum og sáum birkifræi formlega hafið og um að gera að taka þátt í því að safna og sá birkifræi.
13/09/2023
Söfnun ársins hefst formlega í dag í Heiðmörk.
Mest af birkifræi í Vesturbyggð í ár Skógræktarfélag Reykjavíkur býður til formlegrar opnunar á landsátaki Skógræktarinnar og Landgræðslunnar í söfnun og sáningu á birkifræi fyrir árið 2023 mi
22/06/2023
Skógardagurinn mikli og Líf í lundi Líf og fjör verður í skógum víða um land um næstu helgi. Skógardagurinn fer fram í Hallormsstaðaskógi og skógræktarfélög bjóða til fjölbreyttra viðburða un
10/05/2023
Skemmtilegt verkefni með birkið hjá nemendum í vöruhönnun hjá Listaháskóla Íslands.
Sýningin Birkiverk Fyrsta árs nemar í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands sýna fimmtudaginn 11. maí ýmis verkefni sín sem tengjast birki á einn eða annan hátt á sýningu sem þ
20/10/2022
Nú er lag að tína birkifræ því veðurspáin er góð. Svo má skila fræi á Olísstöðvum og í Bónusverslunum. Eða þá sá því á góðum stöðum þar sem þess er óskað að upp vaxi birkiskóglendi. Skógræktin Landgræðslan Olís Prentmet Oddi Kvenfélagasamband Íslands LIONS á Íslandi Landvernd umhverfisverndarsamtök
Birkifræbankinn kallar eftir fræjum Landsverkefnið Söfnum og sáum birkifræi hvetur landsmenn til að skila nú á söfnunarstöðvar því fræi sem safnast hefur. Nokkuð vantar upp á að markmið ársin
19/10/2022
Til hvers söfnum við og sáum birkifræi? Jú, meðal annars til þess að verja landið fyrir niðurbroti náttúruaflanna. Verjum landið með því að breiða út birki, gulvíði og annan trjágróður.
Birki og gulvíðir bjarga bökkunum Í ljós er komið að birki og gulvíðir duga mjög vel til að draga úr rofi við ár og læki. Það staðfesta rannsóknir dr. Söru L. Rathburn, jarðfræðiprofessors
06/10/2022
Það var gaman í Guðmundarlundi hjá ungum sem eldri sem tíndu þar fræ fjórða október. Nóg er af fræi en leita þarf að trjám sem gefa. Það gerir þetta bara meira spennandi og skemmtilegt.
Skógræktin Landgræðslan Prentmet Oddi Bónus Olís Landvernd umhverfisverndarsamtök Kvenfélagasamband Íslands
Nóg af fræi á Suðvesturlandi ef vel er að gáð Vel gekk að safna birkifræi í Guðmundarlundi, reit Skógræktarfélags Kópavogs, þegar félagið bauð félagsfólki sínu og almenningi að fræðast um söfnun og sán
06/10/2022
Auk Bónusverslana eru stöðvar Olís um allt land með öskjur fyrir birkifræ og þar er líka hægt að skila fræi í öskjunum eða í bréf- og taupokum. Gott er að þurrka fræin en jafnvel þótt þau hafi verið þurrkuð er varasamt að geyma þau í plastpokum eða þéttum ílátum því þá vilja þau mygla. Birkibændur
Nú stendur yfir söfnun á birkifræjum í samstarfi við vini okkar Skógræktin og Landgræðslan, en sáning birkiskóga er mikilvæg fyrir umhverfið og loftslagið 🌱 Þú getur nálgast og skilað söfnunarkössum á næstu Olísstöð eða í Bónus, hvort sem þú ætlar að safna miklu eða litlu 🌱