02/06/2026
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar fór fram fyrr í dag. Okkar fulltrúar Sindri S. Kristjánsson og Hanna Dóra Markúsdóttir voru vitaskuld á sínum stað og stóðu sína vakt með prýði.
Næsti bæjarstjórnarfundur, og sá síðasti fyrir sumarhlé, verður 16. júní næstkomandi og verður boðað til bæjarmálafundar hjá okkur í aðdraganda hans.
29/05/2026
Bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin í Laugardagskaffið í fyrramálið milli 10:00 og 12:00.
Þetta verður síðasta Laugardagskaffið fyrir sumarhlé.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
23/05/2026
Oddvitinn okkar, Sindri S. Kristjánsson, skrifar:
🌹 Til ykkar allra sem greiddu Samfylkingunni á Akureyri atkvæði sitt vil ég segja: Hjartans þakkir frá okkur öllum sem buðu fram fyrir Samfylkinguna að þessu sinni. Takk fyrir stuðninginn, því hann er langt því frá sjálfsagður, og takk fyrir öll þau hlýju orð í okkar garð, bæði fyrir kosningar og núna í vikunni sem er að líða.
Sindri S. Kristjánsson oddviti Samfylkingin Akureyri skrifar. Grein í fyrstu ummælum.
21/05/2026
Laugardagskaffið snýr aftur eftir kosningar 🌹🌹🌹
🥳Hittumst í Sunnuhlíð þann 23. maí milli kl. 10 og 12, fögnum okkar frábæru bæjarfulltrúum og árangri í kosningunum.
🧐Svo þarf auðvitað að ræða málin, kryfjja samstarfssamning nýs meirihluta og spá í spilin.
☕️Eins og venjulega boðið upp á kaffi og með því.
18/05/2026
🌹Takk fyrir traustið!
🌹 Niðurstöður liggja fyrir og við erum afskaplega stolt og ánægð með aukningu fylgis, og að ná inn nýjum manni, á milli kjörtímabila.
🌹Meirihlutinn féll og ljóst að skilaboð um aukinn jöfnuð, íbúalýðræði og meiri velferð átti upp á pallborðið hjá kjósendum Akureyrarbæjar.
🌹Bæjarfulltrúarnir okkar tveir, Sindri og Hanna Dóra, ásamt komandi nefndarfólki, munu að sjálfsögðu halda þeim gildum á lofti næsta kjörtímabil og vinna að jafnara og sterkara samfélagi fyrir okkur öll.
16/05/2026
Enn er hægt að kjósa utankjörfundar, bæði í borginni og á Akureyri. Samfylkingin á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri vinnur saman að því að koma atkvæðum á réttan stað ❤️
16/05/2026
🌹 Við trúum því að jöfn samfélög séu sterk samfélög. Við viljum létta ykkur daglega lífið og göngum einbeitt og samstíga í verkefnin sem framundan eru og vonumst eftir sterku umboði bæjarbúa til þess.
🌹Til hamingju með daginn!
Við trúum því að jöfn samfélög séu sterk samfélög.
Tengill á kveðju frá efstu þremur í athugasemd.
16/05/2026
🌹Gleðilegan kjördag! Við hvetjum ykkur til að nýta kosningaréttinn og treystum á ykkar stuðning í dag!
🌹Verið velkomin í kosningakaffi á Leyni, við göngugötuna, milli klukkan 14:00 og 17:00 og á kosningavöku í Sunnuhlíð klukkan 22:00
15/05/2026
🌹 Hægt er að setja þennan fína ramma á forsíðumynd sína með að ýta á hlekkinn hér að neðan og hlaða upp eigin mynd.