Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri

Share

Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 25. maí 1929. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri eru Heimir Örn Árnason og Lára Halldóra Eiríksdóttir.

Almennar fyrirspurnir um stjórnmálastarfið má senda á netfangið [email protected] eða með því að hafa samband við Ásgeir Örn Blöndal, formann fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, á [email protected] eða í síma 669 7963.

04/06/2026

Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Geislagötu 5 laugardaginn 6. júní kl. 10:30.

Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Rætt um stöðuna í pólitíkinni; þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB, samgöngu- og fjármálaáætlun, stofnun innviðafélags og öryggis- og varnarmál - helstu málin sem eru í þinginu nú þegar styttist í þinglok.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.

Allir velkomnir - heitt á könnunni.

Photos from Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri's post 20/05/2026

Takk fyrir traustið í sveitarstjórnarkosningunum 💙

Sjálfstæðisflokkurinn er nú stærsta stjórnmálaaflið í Akureyrarbæ og erum við bæði þakklát og stolt af þeim stuðningi sem við fundum fyrir í þessari kosningabaráttu.

Síðustu vikur hafa verið einstaklega skemmtilegar og gefandi. Við viljum sérstaklega þakka öllum þeim fjölmörgu íbúum sem mættu á viðburðina okkar, tóku þátt í samtalinu og deildu með okkur sínum hugmyndum og áherslum fyrir enn betri Akureyrarbæ.

Takk fyrir traustið, við hlökkum til að halda áfram að vinna fyrir ykkur öll næstu fjögur árin 💙

16/05/2026

Í kvöld bjóðum við ykkur velkomin á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins á Akureyri á kosningaskrifstofunni okkar að Furuvöllum 5.

Síðustu vikur hafa verið ótrúlega skemmtilegar og við erum innilega þakklát fyrir allan stuðninginn, samtölin og hlýjar móttökur 💙

Hlökkum til að eiga kvöldið með ykkur!

16/05/2026

TÖKUM NÆSTU SKREF

„Við stóðum við þau loforð sem við gáfum á kjörtímabilinu og erum stolt af þeim verkum sem hafa áunnist undir okkar stjórn. Það er okkur hjartans mál að Akureyrarbær standi ekki í stað heldur vaxi og dafni sem öflugt samfélag þar sem fólk sér tækifæri og horfir björtum augum til framtíðar.“

Grein á kjördegi eftir Berglindi Ósk Guðmundsdóttir, oddvita Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Sjá hlekk í fyrstu athugasemd 🔗

16/05/2026

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í kosningakaffi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í Lóni á Hótel Akureyri kl. 13:00–16:00 ☕️

Komið við, eigið notalega stund með okkur og nýtum kosningaréttinn 💙

Hlökkum til að sjá ykkur!

16/05/2026

Gleðilegan kjördag 🇮🇸
Nýtum kosningaréttinn og setjum X við D fyrir enn betri Akureyrarbæ! 💙

15/05/2026

„Ég óska eftir þínum stuðningi 16. maí fyrir enn betri Akureyrarbæ.

Fyrir mér er Akureyrarbær ekki bara sveitarfélag þar sem gott er að búa heldur samfélag sem á skilið skýra sýn, ábyrga forystu og metnað til að halda áfram að þróast og byggjast upp.

Ég er ótrúlega stolt af Akureyrarbæ og því öfluga samfélagi sem hér er. Á síðasta kjörtímabili höfum við sýnt að með ábyrgri fjármálastjórn, traustum rekstri og sterkri samvinnu er hægt að skapa svigrúm til að gera enn betur fyrir bæjarbúa, fjölskyldur og atvinnulíf.

Margt gott hefur áunnist og ég trúi því að við getum tekið næstu skref saman og byggt upp enn sterkara, framsæknara og öflugra samfélag fyrir okkur öll,“

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.

15/05/2026

Þú veist best hvernig þínum peningum er varið.
Við ætlum að létta byrðar heimila og fyrirtækja um leið og við stýrum rekstri bæjarins af ábyrgð.
💙 XD

15/05/2026

Flækjum ekki hlutina að óþörfu! Við viljum einfalda hlutina, hraða ákvörðunum þar sem þörf er á og finna lausnir sem virka í raun fyrir þig og þína.
💙 XD

15/05/2026

Við höfum náð góðum árangri í því að bæta þjónustu og starfsemi bæjarins. Nú viljum við halda áfram að gera stjórnsýsluna skilvirkari og þjónustuna aðgengilegri fyrir þig.
💙 XD

Want your business to be the top-listed Government Service in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Geislagata 5
Akureyri
600