01/10/2026
🎉 Í dag fagnar Guðbjörg E. Ingólfsdóttir 50 ára starfsafmæli sem er einstakur áfangi.
Gugga á Gaflinum eins og hún er gjarnan kölluð hóf störf hjá Fiskifélaginu þann 1. október 1976 og hefur því helgað störf sín sjávarútveginum og stjórnsýslu hans hálfa öld. Þegar verkefni hennar fluttust til Fiskistofu 1. janúar 1999 fylgdi hún með og hefur síðan verið órjúfanlegur hluti af starfseminni.
⚓️ Í gegnum árin hefur Gugga séð til þess að aflaskráning sé rétt og áreiðanleg og er þekkt fyrir einstaka þjónustulund og jákvætt viðmót.
🙂 Eftir 50 ár í starfi segir hún að það sé skemmtilegt að mæta til vinnu og mætir jafnan með bros á vör.
🌟 Starfsfólk Fiskistofu óskar Guggu innilega til hamingju með 50 ára starfsafmælið og óskum henni velfarnaðar og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
🎊 Innilegar hamingjuóskir með þennan merka áfanga okkar kæra Guðbjörg E Ingólfsdóttir