22/12/2022
Vinnumálastofnun Norðurlandi eystra
Vinnumálastofnun heyrir undir velferðarráðherra og fer m.a. með yfirstjórn vinnumiðlunar
22/12/2022
07/06/2022
Ellen Jónína Sæmundsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra og Austurlandi.
Ellen er með B.A. gráðu í Samfélags- og hagþróunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og M.A. í Alþjóðasamskiptum frá háskólanum í Álaborg. Frá árinu 2017 hefur Ellen gengt starfi ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun ásamt því að hafa verið staðgengill forstöðumanns frá árinu 2019. Ellen sat í Vinnumarkaðsráði Norðurlands eystra á árunum 2018-2019 og situr meðal annars í stjórn Fjölsmiðjunnar á Akureyri og Starfsendurhæfingar Norðurlands.
Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar á svæðinu eru á Egilsstöðum og á Akureyri. Á skrifstofunum eru samtals níu starfsmenn sem sinna meðal annars ráðgjöf og vinnumiðlun.
Ellen tekur við starfinu af Soffíu Gísladóttur sem gengt hefur starfi forstöðumanns frá árinu 2008. Fyrsti starfsdagur Ellenar sem forstöðumaður var 1. mai sl.
31/12/2021
GLEÐILEGT ÁR
Starfsfólk Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra óskar landsmönnum öllum farsældar á nýju ári með þökk fyrir árið sem er að líða.
TENGSLANETIÐ ÞITT
Í atvinnuleit er mjög mikilvægt að nýta vel tengslanetið sitt. Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig hægt er að nýta það sem best.
Nánari upplýsingar á https://vinnumalastofnun.is/radgjof-og-thjonusta/radgjafathjonusta/atvinnuleitin
27/12/2021
SKRIFSTOFAN LOKAR TÍMABUNDIÐ
Þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra lokar tímabundið frá og með deginum í dag, mánudeginum 27. desember, vegna heimsfaraldursins.
Símaverið verður opið og hægt að hringja í 515-4800 fyrir upplýsingar. Einnig bendum við á snjallmennið Vinný á heimasíðunni, vinnumalastofnun.is.
24/12/2021
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Starfsfólk Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir samstarf og samveru á árinu sem er að líða.
22/12/2021
OPNUNARTÍMI UM HÁTÍÐARNAR
Skrifstofa Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra verður opin á eftirfarandi tímum um hátíðarnar:
Þorláksmessa – kl. 9:00-13:00
Aðfangadagur – Lokað
Jóladagur – Lokað
Annar í jólum – Lokað
27. – 30. desember – kl. 9:00-13:00
Gamlársdagur – Lokað
Nýársdagur – Lokað
2. janúar – Lokað
3. janúar – kl. 9:00-13:00
20/12/2021
HEFJUM STÖRF Á NORÐURLANDI EYSTRA
Alls hafa 509 einstaklingar fengið starf á Norðurlandi eystra í gegnum átakið Hefjum störf. Alls hafa 1.196 störf verið skráð inn í átakið á svæðinu síðan það hófst.
Átakinu lýkur um áramótin en hefðbundir ráðningarstyrkir verða ennþá í boði fyrir atvinnurekendur.
16/12/2021
Skráð atvinnuleysi á Norðurlandi eystra í nóvember var 4,1%
Atvinnuleysi á Norðurlandi eystra í október var 3,6%. Skráð atvinnuleysi á landinu öllu var 4,9% í nóvember og var það því óbreytt frá því í október.
Nánari upplýsingar má finna hér:https://vinnumalastofnun.is/media/3465/nov-2021-skyrsla.pdf
09/12/2021
DESEMBERUPPBÓT TIL ATVINNULEITENDA
Óskert desemberuppbót er 92.229 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára. Desemberuppbótin verður greidd út eigi síðar en 15. desember næstkomandi.
Nánar á https://vinnumalastofnun.is/frettir/2021/12/desemberuppbot-til-atvinnuleitenda
SETTU ÞÉR MARKMIÐ
Mikilvægt er fyrir atvinnuleitendur að setja sér skýr markmið í atvinnuleitinni. Í þessu myndbandi er farið yfir hvernig sé hægt að setja sér markmið og fylgja þeim eftir.
Nánar á https://vinnumalastofnun.is/radgjof-og-thjonusta/radgjafathjonusta/atvinnuleitin
06/12/2021
HEFJUM STÖRF TIL ÁRAMÓTA
Átakið Hefjum störf verður í gangi til áramóta. Því er enn möguleiki fyrir atvinnuleitendur og atvinnurekendur að nýta það.
Kynntu þér málið á https://www.vinnumalastofnun.is/atvinnurekandi/radningarstyrkir/hefjum-storf
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Address
Skipagata 14
Akureyri
600
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 13:00 |
| Tuesday | 09:00 - 13:00 |
| Wednesday | 09:00 - 13:00 |
| Thursday | 09:00 - 13:00 |
| Friday | 09:00 - 12:00 |
