19/06/2026
Nú er Hinsegin hátíð á Norðurlandi Eystra! Við hvetjum ykkur til að mæta á viðburði hátíðarinnar en einnig til þess að lesa hinsegin bókmenntir 🏳🌈🏳️⚧️
Nánar um viðburði hátíðarinnar á https://www.hinseginhatid.is/
16/06/2026
🧺 Lautarferðarkörfur til útláns 🧺
Í hverri körfu er lautarferðarteppi og fjölnota bolli sem nota má undir drykk eða t.d. til að týna ber.
Það má fara með körfurnar hvert sem er en lánstími er 14 dagar!
15/06/2026
Sumarsmiðjurnar eru alla morgna í vikunni nema á Þjóðhátíðardaginn 17. júní en þá er lokað á Amtsbókasafninu 🌞🍉
Íslenskuþjálfun Rauða krossins fellur því niður á miðvikudaginn en verður á sínum stað á fimmtudaginn 🇮🇸
11/06/2026
Spurning vikunnar er á sínum stað 👌
10/06/2026
Það var frábær mæting í fyrstu smiðju sumarsins í morgun þar sem málað var á steina og krukkur. Á morgun, 11. júní, verður ræktunarsmiðja þar sem krakkarnir fá að planta fræjum með garðyrkjufræðingi 🪴
Sumarsmiðjurnar eru hugsaðar fyrir 7-12 ára börn og nánari upplýsingar um þær má finna undir viðburðum á www.amtsbok.is eða undir viðburðum (events) hér á Facebookinu okkar 📆
Við viljum minna á að þetta er ekki gæsla, börn eru alltaf á ábyrgð forráðamanna 🥰
10/06/2026
Skíðaþjónustan skoðar hjól til 17:00 í dag, einnig er hægt að þvo hjólin sín með sérstökum burstum og sápu ásamt því að prufa hjálma og rafhjól! Kíkið við ❤️
10/06/2026
Hér má sjá vinsælustu bækur ungmennadeildar í janúar til og með maí á Amtsbókasafninu!
Hefur þú lesið þær?
1. Silfurberg (Sesselía Ólafs)
2. Harry Potter og viskusteinninn (J.K. Rowling)
3. Sólgos (Arndís Þórarinsdóttir)
4. Silfurgengið (Brynhildur Þórarinsdóttir)
5. Hungurleikarnir (Suzanne Collins)
6. Vanmáttug (Lauren Roberts)
7. Harry Potter og fönixreglan (J.K. Rowling)
8. Sól rís á sláttudegi (Suzanne Collins)
9. Eldar kvikna (Suzanne Collins)
10. Draumar (Bergþór Ólafsson)
11. Álfareiðin (Gunnar Theodór Eggertsson)
12. Hrím (Hildur Knútsdóttir)
13. Skuldadagur (Bergrún Íris og Simmi)
14. Allt er svart í myrkrinu (Elísabet Thoroddsen)
15. Vetrarfrí (Hildur Knútsdóttir)
09/06/2026
Alltaf nóg um að vera á Amtsbókasafninu 🥰