Bókasafn VMA

Bókasafn VMA

Share

Bókasafn VMA þjónustar nemendur og starfsfólk skólans. Safnkostur saman stendur af bókum, tímaritum, geisladiskum og DVD myndum.

27/10/2022

Nú hvetjum við ungt fólk til að taka þátt í ritlistasamkeppni fyrir 16-25 ára á Norðurlandi eystra. Vegleg peningaverðlaun í boði.

13/10/2021

Ritlistasmiðja Ungskálda 2021

07/04/2021

Júlíus Gabríel er einn dyggasti viðskiptavinur safnisins en hann kemur í hverri viku til þess að velja sér bækur. Hann hefur sérstakt dálæti á stórum og þykkum doðröntum og ekki skemmir fyrir ef þær eru í eldri kantinum. Að þessu sinni voru það Lesbækur Morgunblaðsins frá árunum 1957, 1962 og 1982 og eintak af tímaritinu National Geographic frá 1979 sem urðu fyrir valinu ☺️

08/02/2021

Nýjar bækur á safninu.

18/12/2020

Óskum nemendum, samstarfsfólki og öðrum velunnurum bókasafns VMA gleðilegra bókajóla! Hlökkum til að hitta ykkur aftur á nýju ári ☺

Jólakveðja,
Hanna og Hildur

03/12/2020

Ljóð úr bókatitlum:

Jónas Hallgrímsson má ekki elska þig meira
Svo ekki berist burt með vindum fásinna
Við sólarlag.

30/11/2020

Ljóð dagsins úr bókatitlum:

Líf annarra en mín

Ég vildi ég væri ...
lýtalaus kynvera að vestan
ör Danadrottning
skyggna konan í orlofi
grænmetisætan í Guðrúnarhúsi
ósköp ung, há, feig og ljóshærð

08/09/2020

Bókasafnsdagurinn er í dag 8. september. Við hvetjum alla til að lesa hryllilega spennandi bækur, enda er það þema dagsins.

28/04/2020

Það er ekki mikið líf og fjör á bókasafninu þetta vorið. Það er þó nóg að verkefnum og tíminn nýttur í tiltekt, t.d. að henda gömlum tímaritum sem eru nú aðgengileg í gegnum hvar.is. Þó að safnið sé ekki opið nemendum þá aðstoðum við nemendur eftir þörfum. Við hvetjum nemendur til að hafa samband ef eitthvað er.

10/12/2019

Prófatíð er hafin í VMA og nemendur eru hvattir til að nýta bókasafnið til lestrar. Þó að úti blási vindar og snjói þá er alltaf notalegt á bókasafninu. Við lokum þó frá hádegi 10. des vegna yfirvofandi storms og opnum aftur á fimmtudaginn 12. desember.

04/11/2019

Hrekkjavökustemming á bókasafninu.

Want your business to be the top-listed Government Service in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Hringteigi 2
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 08:00 - 18:00
Tuesday 08:00 - 18:00
Wednesday 08:00 - 18:00
Thursday 08:00 - 18:00
Friday 08:00 - 15:00