Oddeyrarskóli

Call Directions Website

Oddeyrarskóli Þetta er fésbókarsíða Oddeyrarskóla, sem miðlar upplýsingum af heimasíðu skólans.

Miðvikudaginn 2. september var útivistardagur í Oddeyrarskóla.  Ekið var með alla nemendur skólans út á Dalvík þaðan sem...
04/09/2026

Miðvikudaginn 2. september var útivistardagur í Oddeyrarskóla. Ekið var með alla nemendur skólans út á Dalvík þaðan sem gengin var u.þ.b. 10 km leið inn Böggvistaðadal, fram að Kofa. Gengin var sama leið til baka en göngunni lauk í trjálundi rétt neðan við skíðaskálann, þar sem grillaðar pylsur biðu göngugarpanna. Það er skemmst frá því að segja að dagurinn heppnaðist mjög vel. Veðrið var ljómandi gott, krakkarnir stóðu sig eins og hetjur og mjög margir gengu alla leið. Mikið var af berjum á svæðinu og nutu bæði börn og fullorðnir þess að tína þau. Þetta var virkilega góður dagur og sérstaklega gaman hvað þátttaka nemenda var góð.

20/08/2026

Oddeyrarskóli verður settur mánudaginn 24. ágúst. Skólasetning er þrískipt en nemendur mæta í íþróttasalinn og fara síðan í heimastofur í fylgd kennara. Foreldrar eru velkomnir með á skólasetningu.

2.-4. bekkur klukkan 9:00

5.-7. bekkur klukkan 9:30

8.-10. bekkur klukkan 10:00

Nemendur og foreldrar í 1.bekk mæta í viðtal hjá umsjónarkennara. Frístund opnar eftir skólasetningu en þeir sem hafa verið í aðlögunarfrístund eru velkomnir í frístund frá klukkan 8:00.

Það ríkti skemmtileg stemning og mikil spenna á körfubolta- og fótboltavöllunum í dag sem og í íþróttahúsinu þegar hin á...
05/06/2026

Það ríkti skemmtileg stemning og mikil spenna á körfubolta- og fótboltavöllunum í dag sem og í íþróttahúsinu þegar hin árlega og bráðskemmtilega íþróttakeppni milli starfsmanna og nemenda fór fram. Þessi frábæri viðburður sýndi svo ekki varð um villst hversu öflug samstaða og jákvæður baráttuhugur býr í skólasamfélaginu okkar. Allir mættu til leiks fullir af eldmóði og tilbúnir að gefa allt sitt í leikinn!

Keppt var af miklum krafti í þremur skemmtilegum íþróttagreinum: körfubolta, fótbolta og blaki. Fjögur frábær lið mættu til leiks, staðráðin í að sýna sínar bestu hliðar. Nemendur í 8. bekk, 9. bekk og 10. bekk tefldu hvert um sig fram öflugum liðum sem sýndu glæsilega samvinnu og tækni. Á móti þeim stóð svo samstillt og reynslumikið lið starfsmanna skólans, sem sýndi að gamlir taktar ryðga ekki auðveldlega.

Það var dásamlegt að sjá hvernig þessi viðburður sameinaði alla. Nemendur og starfsmenn hvöttu hver annan áfram af miklum krafti og gleðin skein úr hverju andliti. Þótt keppnin hafi verið hörð var íþróttamennskan til fyrirmyndar og sýndi okkur að með samvinnu og jákvæðni getum við náð ótrúlegum árangri saman. Til hamingju öll með stórkostlegan dag – áfram við, sýnum áfram þennan flotta samstarfsanda í öllu sem við gerum!

Á myndinni má sjá sigurvegara dagsins sem koma úr röðum starfsmanna.

Það ríkti skemmtileg stemning og mikil spenna á körfubolta- og fótboltavöllunum í dag sem og í íþróttahúsinu þegar hin árlega og bráðskemmtilega íþróttakeppni milli starfsmanna og nemenda fór fram.…

Fulltrúar frá öllum þeim átta stjórnmálaflokkum sem eru í framboði í komandi bæjarstjórnarkosningum hafa verið að fara í...
06/05/2026

Fulltrúar frá öllum þeim átta stjórnmálaflokkum sem eru í framboði í komandi bæjarstjórnarkosningum hafa verið að fara í heimsóknir í skólana á Akureyri. Þar eru þeir að kynna sig og flokk sinn og ræða við nemendur á unglingastigi. Fyrir fundinn fengu nemendur í nemenda- og réttindaráði tíma til að kíkja á stefnuyfirlýsingu flokkanna og undirbúa spurningar. Nemendur komu með vel ígrundaðar og margar hverjar krefjandi spurningar sem snerta bæði bæjarmál, þeirra nærumhverfi, menntamál auk þjóðfélagsmála. Í lokin fengu aðrir nemendur færi á að spyrja þeirra spurninga sem höfðu kviknað er þeir hlustuðu á umræðurnar. Eftir umræðurnar voru haldnar kosningar þar sem nemendur gátu kosið þann flokk sem þeim leist best á.

Nemendur lærðu mikið af undirbúningnum og fundinum og efldu skilning sinn á stjórnmálum, á meðan fulltrúar stjórnmálaflokkanna fengu að kynnast sjónarmiðum og hugsunum ungmenna.

Fulltrúar frá öllum þeim átta stjórnmálaflokkum sem eru í framboði í komandi bæjarstjórnarkosningum hafa verið að fara í heimsóknir í skólana á Akureyri. Þar eru þeir að kynna sig og flokk sinn og …

Réttindaskóli UNICEF er hugmyndafræði og hagnýtt verkefni sem tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Í tengslum ...
18/02/2026

Réttindaskóli UNICEF er hugmyndafræði og hagnýtt verkefni sem tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Í tengslum við innleiðingu Oddeyrarskóla sem Réttindakóli UNICEF tóku nemendur réttindaráðsins sig saman og útbjuggu þessa glæsilegu hugmyndakassa. Þessir hugmyndakassar eru hugsaðir sem leið fyrir nemendur skólans til þess að koma skoðunum sínum á framfæri.

Nemendurnir töldu það mikilvægt að hafa tvo kassa sem væru staðsettir á ólíkum stöðum í skólanum. Annar kassinn er staðsettur á móti bókasafninu, nálægt matsalnum og frístundinni. Þessi staðsetning varð fyrir valinu vegna þess að allir nemendur skólans ganga þá reglulega framhjá honum á hverjum degi, sem gerir hann einstaklega sýnilegan og aðgengilegan öllum. Hinn kassinn er staðsettur við borð ritara hjá starfsmanna inngangi skólans. Þessi staðsetning varð fyrir valinu vegna þess að hún býður upp á auðveldan aðgang nemenda að starfsfólki skólans ef þau þurfa aðstoð við að skrifa niður hugmyndirnar sínar og einnig til þess að bjóða upp á rými til þess að skila inn hugmyndum án mögulegra afskiptasemi samnemenda sinna.

Eftir vetrarfrí munu nemendur réttindaráðsins fara inn í bekkinn sinn og kynna hugmyndakassana. Stjórnendur skólans fara síðan reglulega yfir hugmyndirnar, skoða raunhæfar úrbætur og upplýsa nemendur um hvað er hægt að framkvæma, hvað ekki og hvers vegna.

Réttindaskóli UNICEF er hugmyndafræði og hagnýtt verkefni sem tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Í tengslum við innleiðingu Oddeyrarskóla sem Réttindakóli UNICEF tóku nemendur réttindar…

05/02/2026

Við förum í Hlíðarfjall í dag :)

Fimmtudaginn 5. febrúar fara nemendur og starfsmenn Oddeyrarskóla upp í Hlíðarfjall og eyða morgninum þar úti við. Spáð ...
04/02/2026

Fimmtudaginn 5. febrúar fara nemendur og starfsmenn Oddeyrarskóla upp í Hlíðarfjall og eyða morgninum þar úti við. Spáð er nokkru frosti svo mikilvægt er að vera vel klæddur. Þá þurfa nemendur að taka með sér gott nesti. Skóli er styttri en venjulega þennan dag og lýkur eftir að heim og komið og búið er að borða hádegismat. Frístund er opin.

Nemendur í 1. – 7. bekk mæta á venjulegum tíma kl. 8:10 en nemendur í 8. – 10. bekk mega mæta klukkan 8:30.

Fimmtudaginn 5. febrúar fara nemendur og starfsmenn Oddeyrarskóla upp í Hlíðarfjall og eyða morgninum þar úti við. Spáð er nokkru frosti svo mikilvægt er að vera vel klæddur. Þá þurfa nemendur að t…

Árshátíð Oddeyrarskóla verður haldin fimmtudaginn 29. janúar. Að morgni eru sýningar fyrir alla nemendur skólans en efti...
22/01/2026

Árshátíð Oddeyrarskóla verður haldin fimmtudaginn 29. janúar. Að morgni eru sýningar fyrir alla nemendur skólans en eftir hádegi eru foreldrasýningar. Að þessu sinni verða sýningar tvær. Ekkert kostar inn á sjálfar sýningarnar en frjáls framlög á reikning nemendafélagsins eru vel þegin, 0302-13-000229, kt. 4509082580.

Fyrri sýning klukkan 14:30

bekkur, 2. bekkur, 5. bekkur, 6. bekkur, 9. bekkur og 10. bekkur
Seinni sýning kl. 16:00

3. bekkur, 4. bekkur, 7. bekkur, 8. bekkur og 10. bekkur

Kaffisala foreldrafélagsins er eftir báðar sýningar. Við hvetjum alla til að staldra við og gæða sér á glæsilegum veitingum og styrkja þar með foreldrafélagið. Verð er 1500 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn. Hægt er að kaupa miða á kaffihlaðborðið fyrirfram hjá ritara frá og með mánudeginum 26. janúar með því að mæta í skólann en stefnt er að því að fá posa að láni svo hægt sé að greiða með korti. Einnig má kaupa miða með því að leggja inn á reikninginn 0302-13-000229, kt. 4509082580, en þá er nauðsynlegt að senda póst til [email protected] og þá er hægt að senda nemendur með miðana heim. Ekki er hægt að leggja inn vegna miðakaupa á sýningardegi og fá miða með þessum hætti þar sem foreldrar hitta ekki börn sín fyrir sýningar en foreldreldrafélagið verður líka með miðasölu um leið og afhending á brauði fer fram að morgni sýningardags.

Foreldrasýningar eru ekki ætlaðar fyrir nemendur þar sem þeir sjá öll atriði að morgni. Þá viljum við vinsamlegast biðja foreldra um að sitja í sal allan sýningartímann, ekki fara þegar búið er að horfa á atriði hjá sínu barni.
https://oddeyrarskoli.is/arshatid-oddeyrarskola-2026/

Oddeyrarskóli býður foreldrum barna í 1.-5. bekk að taka þátt í einstöku námskeiði. Námskeiðið er á vegum Föruneyti barn...
05/01/2026

Oddeyrarskóli býður foreldrum barna í 1.-5. bekk að taka þátt í einstöku námskeiði. Námskeiðið er á vegum Föruneyti barna hjá Miðstöð menntunar og
skólaþjónustu og Oddeyrarskóla. Námkeiðið heitir Tengjumst í leik (e. Invest in play). Leiðbeinendur eru Linda Rós Rögnvaldsdóttir verkefnastjóri og Margrét Th.
Aðalgeirsdóttir deildarstjóri. Markmiðið með námskeiðinu er að styrkja tengslin milli
foreldra og barna og skapa meira jafnvægi og gleði á heimilinu.

Námskeiðið hefst 26. janúar.

Oddeyrarskóli býður foreldrum barna í 1.-5. bekk að taka þátt í einstöku námskeiði. Námskeiðið er á vegum Föruneyti barna hjá Miðstöð menntunar ogskólaþjónustu og Oddeyrarskóla. Námkeiðið heitir Te…

Þann 15. október var uppbrotsdagur í skólanum, fjölgreindardagur og þemað að þessu sinni var hrekkjavaka. Hefðbundin stu...
17/10/2025

Þann 15. október var uppbrotsdagur í skólanum, fjölgreindardagur og þemað að þessu sinni var hrekkjavaka. Hefðbundin stundatafla var lögð til hliðar og nemendum skipt í hópa þvert á árganga þannig að í hverjum hóp voru nemendur frá 1. og upp í 10. bekk. Elstu nemendur í hverjum hóp voru hópstjórar og báru ábyrgð á að nemendur í þeirra hóp væru á réttum stað. Unglingarnir stóðu sig sérstaklega vel og voru yngri nemendum frábær fyrirmynd. Nemendur fóru á alls 10 stöðvar og voru mismundi verkefni í gangi á hverjum stað. Dagurinn gekk ljómandi vel og langflestir nemendur og starfsmenn ánægðir með tilbreytinguna og skemmtu sér vel. Í lokin söfnuðust allir saman í íþróttasalnum þar sem heilsueflingarnefnd skólans veitti viðurkenningu fyrir verkefnið göngum í skólann en bæði starfsmenn og nemendur tóku þátt. Þá var veitt viðurkenning á hverju stigi fyrir ÍSÍ skólahlaupið sem fram fór í september.

Þann 15. október var uppbrotsdagur í skólanum, fjölgreindardagur og þemað að þessu sinni var hrekkjavaka. Hefðbundin stundatafla var lögð til hliðar og nemendum skipt í hópa þvert á árganga þannig …

Address

Grenivellir
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 07:45 - 16:00
Tuesday 07:45 - 16:00
Wednesday 07:45 - 16:00
Thursday 07:45 - 16:00
Friday 07:45 - 16:00

Telephone

+3544609551

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Oddeyrarskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share