16/06/2026
Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri hafa gefið gjörgæslu- og lyflækningadeild sjúkrahússins tíu nýjar BiPAP-öndunarvélar sem munu efla verulega getu SAk til að veita sjúklingum með öndunarfærabilun nauðsynlegan öndunarstuðning.
Að sögn Brynju Drafnar Tryggvadóttur, deildarstjóra gjörgæsludeildar, er með vélunum hægt að bjóða upp á fjölþætta meðferð fyrir fólk með ýmiss konar öndunarfærabilanir:
„Þetta eru öndunarvélar sem veita ytri öndunarstuðning og bjóða upp á fjölþætta meðferð, allt frá háflæði súrefnismeðferð yfir í öndunarstuðning með þrýstingi sem hjálpar fólki að draga andann. Vélarnar hafa einnig þann valmöguleika að nýtast sem varaöndunarvélar fyrir alvarlega veika sjúklinga sem eru sofandi í öndunarvél. Það tryggir að við eigum ávallt nægilega margar vélar til að veita nauðsynlegan stuðning,“ segir Brynja og bætir við "„Það er ómetanlegt fyrir okkur sem stofnun að fá gjafir og styrki líkt og Hollvinir veita okkur, enda skiptir það miklu máli að finna stuðning samfélagsins við starfsemi SAk. En fyrst og fremst er þetta auðvitað ómetanlegt fyrir sjúklingana okkar, því með þessum búnaði getum við veitt þeim bestu mögulegu þjónustu.“
Lesa má nánar um þessa góðu gjöf hér: https://island.is/s/sak/frett/hollvinir-sak-gefa-sjukrahusinu-a-akureyri-tiu-nyjar-bipap-oendunarvelar
Árlegt styrktar og árgjald Hollvina er 6.000 kr, hægt er að skrá sig hér: https://www.hollvinir.is/services
11/06/2026
Töluvert fleiri börn hafa komið í heiminn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri í ár, en á sama tíma í fyrra. Fréttastofa RÚV kíkti í heimsókn til okkar 🍼
Fæðingum fjölgar um meira en þriðjung á Akureyri - RÚV.is
Töluvert fleiri börn hafa komið í heiminn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri í ár, en á sama tíma í fyrra. Fréttastofa hitti barn númer 210 og nýbakaða foreldrana.
09/06/2026
Útskrift Sjúkraflutningaskólans 2026 fór fram á Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli þann 29. maí sl.
Útskrifaðir voru 265 nemendur eftir síðasta skólaár.
✅92 grunnréttindi sem sjúkraflutningamenn (EMT)
✅32 útskrifuðust með framhaldsmenntun (AEMT)
✅141 kláruðu vettvangsliðanám (EMR)
Ávarp fluttu Ingimar Eydal skólastjóri, Hermann Marinó Maggýjarson umsjónarmaður AEMT og bráðatæknir, Dagmar Lillja Hreiðarsdóttir nýútskrifaður grunnnemi EMT og Henrike Stuhff nýútskrifaður framhaldsnemi AEMT.
Vel var mætt og stemming góð!
03/06/2026
Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri hafa fært fæðingardeild nýtt ómskoðunartæki sem verður aðallega notað við fósturskimanir.
Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður stjórnar Hollvina, segir það sérstaklega gott að geta stutt við kvenna- og fæðingadeildina. „Við hjónin eignuðumst tvíbura löngu fyrir tímann, drengurinn okkar fæddist andvana, en stúlkan okkar vó aðeins 680 grömm við fæðingu og var vart hugað líf. Í dag er hún 19 ára gullmoli. Á deildinni lá ég í heilan mánuð, líklega eini karlmaðurinn sem hefur upplifað það. Þar kynntist ég þeim mesta mannkærleika sem ég hef upplifað á ævinni. Það er því einstakt að vera þátttakandi í því að styðja deildina með þessum hætti.„
Ragnheiður Baldursdóttir, forstöðulæknir fæðinga- og kvensjúkdómalækninga, segist afar þakklát fyrir gjöf Hollvina, tækið geti veitt verðmætar upplýsingar áður en barn fæðist. Myndirnar séu skýrar og gagnist mjög vel t.a.m. þegar verið sé að skoða heila og hjarta fósturs. Þá sé líka skemmtileg viðbót fyrir verðandi foreldra að þeir geti skannað QR-kóða á staðnum og hlaðið myndunum beint niður í símann sinn.
28/05/2026
Hannes Petersen háls-, nef- og eyrnalæknir við Sjúkrahúsið á Akureyri hélt nýverið fyrirlestur á Evrópuþingi háls-, nef- og eyrnalækna sem haldið er annað hvert ár og er stærsta fagþing Evrópu á þessu sviði. Forseti þingsins bauð Hannesi sérstaklega að flytja fyrirlestur um rannsóknir sínar á sviði jafnvægisvísinda á þinginu, en jafnframt viðurkenningu fyrir framlag sitt til rannsókna á þessu sviði.
Hannes hefur um árabil sinnt rannsóknum sem einkum hafa beinst að hreyfiveiki og jafnvægisvandamálum hjá öldruðum. Þá hefur hann einnig verið virkur þátttakandi í rannsóknum Hjartaverndar í gegnum tíðina. Á ferli sínum hefur hann birt yfir 100 vísindagreinar.
„Það er alltaf sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að hitta samstarfsmenn og vini úr faginu víðs vegar að úr Evrópu og fylgjast með því sem efst er á baugi í rannsóknum og klínísku starfi. Að fá jafnframt viðurkenningu fyrir rannsóknarstarf sem maður hefur sinnt í gegnum árin er bæði mikill heiður og hvatning. Auðvitað vonar maður að þessi rannsóknarvinna hafi skilað aukinni þekkingu og betri skilningi sem nýtist sjúklingum til framtíðar,“ segir Hannes Petersen.
Á þinginu komu saman sérfræðingar alls staðar að úr Evrópu til að ræða nýjustu framfarir og rannsóknir á sviði háls-, nef- og eyrnalækninga, þar á meðal jafnvægis- og heyrnarrannsóknir, greiningu og meðferð sjúkdóma auk nýjunga í tækni og meðferð.
22/05/2026
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðjón Hauksson í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri frá 1. júní næstkomandi til fimm ára.
Við bjóðum Guðjón hjartanlega velkominn til starfa á SAk!
Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins segir:
"Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðjón Hauksson í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri frá 1. júní næstkomandi til fimm ára. Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. febrúar síðastliðinn. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við álit ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Guðjón hæfastan umsækjenda til að gegna embættinu.
Guðjón hefur víðtæka menntun og starfsreynslu á sviði heilbrigðismála og heilbrigðisþjónustu. Hann lauk B.S. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands (HÍ) árið 2006, meistaragráðu frá Boston University School of Public Health á sviði rannsókna tengdum heilbrigðisþjónustu árið 2012 og meistaragráðu í heilsuhagfræði frá HÍ árið 2015.
Guðjón er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og hefur gegnt því embætti frá árinu 2017 en áður var hann deildarstjóri sjúkradeildar við sömu stofnun í fjögur ár. Hann hefur m.a. starfað sem sérfræðingur hjá Lyfjagreiðslunefnd, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og sem verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur á Landspítala.
Eins og fram kemur í áliti hæfnisnefndar hefur Guðjón öðlast mjög breiða þekkingu á heilbrigðiskerfinu í störfum sínum. Sem forstjóri HSA í nærri áratug hefur hann einnig mikla þekkingu og reynslu af áætlanagerð og fjármálum hins opinbera og á sviði mannauðsmála og stjórnsýslu.
Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands verður auglýst laust til umsóknar innan skamms".
17/05/2026
Í dag er Dagur íslenskra lækna haldinn hátíðlegur og er honum ætlað að vekja athygli á mikilvægu framlagi lækna til heilbrigðisþjónustu og samfélagsins alls. Á hverjum degi sinna læknar fjölbreyttum og krefjandi verkefnum við greiningu, meðferð, ráðgjöf, rannsóknir og þróun þjónustu í þágu sjúklinga.
Sjúkrahúsið á Akureyri óskar læknum sínum og öllum læknum landsins innilega til hamingju með daginn og þakkar þeim fyrir sitt ómetanlega framlag.
12/05/2026
Nýr sérfræðingur í geðlækningum við geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri
Ásgeir Bragason lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1978 og hóf í kjölfarið nám í læknisfræði við Háskóla Íslands, þaðan sem hann útskrifaðist árið 1984. Að loknu kandídatsári starfaði hann sem aðstoðarlæknir á geðdeild Borgarspítalans.
Árið 1986 hóf hann störf sem fyrsti aðstoðarlæknir á nýrri geðdeild við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Rúmu ári síðar flutti hann ásamt fjölskyldu sinni til Noregs þar sem hann starfaði meðal annars við Ullevål-sjúkrahúsið í Ósló, Blakstad-sjúkrahúsið í Asker og Statens Senter for Epilepsi í Sandvika. Hann lauk sérfræðiviðurkenningu í geðlækningum árið 1992.
Eftir að Ásgeir varð sérfræðingur starfaði hann um árabil við öldrunargeðdeildir í Noregi, fyrst á Blakstad-sjúkrahúsinu og síðar á Søndre Borgen í Asker þar sem hann gegndi stöðu yfirlæknis í nær áratug. Að því loknu tók hann þátt í uppbyggingu göngudeildar í Ósló áður en hann hóf störf á Diakonhjemmet sykehus í Ósló, þar sem hann hefur síðustu 20 ár sinnt samráðsgeðlækningum.
Ásgeir hefur jafnframt verið virkur í starfi norska geðlæknafélagsins um áratugaskeið, meðal annars innan öldrunargeðlækninga og samráðsgeðlækninga. Sérsvið hans eru öldrunargeðlækningar og samráðsgeðlækningar.
„Það er tilhlökkunarefni fyrir mig að koma aftur til Akureyrar, þar sem ég átti minnisverðan og lærdómsríkan tíma fyrir réttum 40 árum, þegar ég var með í því að setja á stofn deildina sem ég núna mun vinna við,“ segir Ásgeir.
Við bjóðum Ásgeir hjartanlega velkominn til starfa á SAk!
12/05/2026
🌙 Ný rannsókn SAk varpar ljósi á svefn barna og kæfisvefn
Nýlega birtist vísindagrein sem fjallar um kæfisvefn hjá börnum.
Rannsóknin náði til 371 barns á aldrinum 4–9 ára, sem samsvarar um 29% barna í almennu þýði á rannsóknarsvæðinu. Við rannsóknina var notast við svefnmælitæki sem gerir kleift að framkvæma heimamælingar á svefni barna.
Niðurstöðurnar benda til þess að ógreindur kæfisvefn sé algengari hjá börnum en áður var talið og að ofþyngd og offita tengjast aukinni áhættu á alvarlegum kæfisvefni. Rannsóknin er hluti af stærra rannsóknarverkefni á SAk sem miðar að bættri greiningu og meðferð kæfisvefns hjá börnum.
Verkefnið er leitt af þverfaglegum hópi starfsfólks á SAk.
Umsjónarmenn verkefnisins eru Hannes Petersen, háls-, nef- og eyrnalæknir, Laufey Hrólfsdóttir, deildarstjóri mennta- og vísinda og Gróa Björk Jóhannesdóttir, forstöðulæknir barnalækninga. Ingibjörg Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur var fyrsti höfundur þessarar greinar. Samstarfsaðilar verkefnisins eru Sólveig Dóra Magnúsdóttir, eigandi SleepImage, og Þórhallur Ingi Halldórsson, prófessor við matvæla- og næringarfræðideild HÍ. Auk þess taka þátt í verkefninu Erla Guðbjörg Hallgrímsdóttir sérnámsgrunnslæknir og Magnús Ingi Birkisson sérnámslæknir.
👉 Lesa greinina:
https://www.frontiersin.org/journals/sleep/articles/10.3389/frsle.2025.1691091/full
12/05/2026
Í dag, 12. maí, er alþjóðlegur dagur hjúkrunarfræðinga. Dagurinn markar fæðingardag Florence Nightingale, brautryðjanda á sviði nútímahjúkrunar.
Árlega er dagurinn haldinn hátíðlegur til að varpa ljósi á það mikilvæga framlag sem hjúkrunarfræðingar leggja til samfélagsins.
Til hamingju með daginn hjúkrunarfræðingar!