16/05/2026
Kveðja frá oddvita að morgni kjördags!
Þetta hefur verið stórkostleg kosningabarátta, ómetanlegt að fá að kynnast fjölbreyttri starfsemi í bænum og ræða við íbúa.
Við komum vel undirbúin inn í kjördag og tilbúin að takast á við verkefni næsta kjörtímabils 💪🧡
Kveðja frá oddvita Viðreisnar
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir
15/05/2026
Af hverju Viðreisn?
Frambjóðendur tóku sig saman og svöruðu spurningum sem geta hjálpað þér að skilja af hverju við buðum okkur fram fyrir og af hverju við ætlum að kjósa Viðreisn. Að geta speglað sig í einstaklingum í framboði er ómetanlegt tækifæri til þess að átta sig á hvar áherslulínurnar liggja. En, svo er líka mikilvægt að hafa gaman 😄
🧡 Hvaða frambjóðandi hefur sungið í tónverki með pönkhljómsveit?
🧡 Hvaða frambjóðandi hefur aldrei farið í Costco?
🧡 Hvaða frambjóðendur elska Kjarnaskóg meira en aðra staði á Akureyri?
🧡 Hvaða frambjóðandi telur næstu 4 ár vera kjörinn tími til að endurvekja 'Akureyrarmódelið í endurbættri mynd'?
ALLT um það og meira til í greininni!
X við C á kjörstað er atkvæði greitt með kraftmiklu fólki með gott vinnusiðferði sem elska spurninguna ,,af hverju?" ✔️
Af hverju Viðreisn?
Viðreisn býður fram krafta sína í fyrsta sinn á Akureyri í komandi sveitarstjórnarkosningum. Á listanum eru ólíkir einstaklingar sem deila þó mörgu sameigi
14/05/2026
Ertu Akureyringur að kjósa utankjörfundar á höfuðborgarsvæðinu? Komdu atkvæði þínu í Kópavog á morgun, föstudag og við komum þeim norður í talningu 💪🏻🧡
13/05/2026
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir oddviti Viðreisnar á Akureyri og Hafsteinn Árnason skrifa hér um skipulagsmál.
Í samtölum í vetur hafa vaknað fleiri spurningar en við hefðum getað ímyndað okkur. Við köllum eftir skýrri heildar framtíðarsýn um stærri svæði en ákveðna byggingarreiti.
,,Skipulagsvinnan hefur að verulegu leyti miðast við afmarkaða deiliskipulagsreiti, oft án skýrrar og sameiginlegrar heildarsýnar. Það er okkar tilfinning að það sé verið að sauma bútasaumsteppi þar sem reitirnir eru úr ósamstæðu afgangsefni."
Við höfum sérstakar áhyggjur af samgöngumálum og teljum vera sérstaklega aðkallandi verkefni að skipuleggja aðstöðu og akstursleiðir fyrir farþegaflutninga með rútum.
Vissir þú að það er ekki eitt sleppistæði fyrir rútur á Akureyri?
: Bútasaumsteppið Akureyri
Akureyri er í þróun frá því að vera bær yfir í að verða borg. Íbúafjöldinn er nú um 20 þúsund og sú þróun hefur leitt af sér fjölbreyttar áskoranir. Skipul
12/05/2026
🧡Akureyri er fyrir okkur öll!
🧡Án tillits til aldurs, kyns, fötlunar, heilsufars, uppruna, efnahags, búsetu eða annarra aðstæðna sem kunna að hafa áhrif á þátttöku, réttindi eða aðgengi.
🧡Grunnþjónusta byggi á einstaklingsmiðuðum, skilvirkum og faglegum lausnum.