17/03/2026
Minnum á íbúa fundinn Miðvikudaginn 18. mars kl. 14:00 verður haldinn íbúafundur um brunavarnir í dreifbýli sveitarfélagsins. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd.
Íbúafundur um brunavarnir í dreifbýli
Miðvikudaginn 18. mars kl. 14:00 verður haldinn íbúafundur um brunavarnir í dreifbýli sveitarfélagsins.
11/03/2026
Íbúafundur um brunavarnir í dreifbýli
Miðvikudaginn 18. mars kl. 14:00 verður haldinn íbúafundur um brunavarnir í dreifbýli sveitarfélagsins.
28/11/2025
Nóvemberæfing hjá Slökkviliði Vesturbyggðar var með öðruvísi sniði en gengur og gerist, slökkviliðsmenn fengu að takast á við útköll og atburði í gegnum sýndarveruleikaheim.
Það voru slökkviliðsmenn frá Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Brunavarnir Suðurnesja í samvinnu við HMS sem höfðu veg og vanda að undirbúningi og framkvæmd æfingarinnar sem haldin var í Félagsheimili Patreksfjarðar.
Allir þátttakendur fara í gegnum fjögur verkefni. Eitt þeirra snýst um að læra á búnaðinn og kynnast umhverfinu, en hin þrjú eru fjölbreytt slökkviliðsverkefni þar sem hver og einn fær að vinna í raunhæfum æfingum við fjölbreyttar aðstæður.
Æfingarnar reyndu á skilningarvit slökkviliðsmanna þar sem þeir þurfa að huga að öllum þeim þáttum sem þarf að hugsa um í útkalli. Þó slíkur hermir komu ekki í stað hefðbundinna æfinga er hann gríðarlega mikilvæg viðbót í æfingarflóru slökkviliðsmanna sérstaklega í hlutastarfandi liði eins og í Fjallabyggð.
Flame sýndarveruleikabúnaðurinn setur slökkviliðsmanninn í aðstæður þar sem hann þarf að t.a.m. takast á við eld og við þær aðstæður hitnar vesti sem er undir slökkvigallanum líkt og gerist þegar tekist er á við alvöru eld og staðið er nærri honum.
Það var samdóma álit allra þeirra slökkviliðsmanna sem tóku þátt að æfingar sem þessar séu mikilvægar og verði hluti af árlegu æfingarferli slökkviliðsins.
Meðfylgjandi myndir eru frá verkefninu.
21/11/2025
Starfsfólk í slökkvilið
Slökkviliðið óskar eftir að ráða starfsfólk til að sinna slökkvistörfum á þremur stöðvum liðsins; Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal.
19/11/2025
Slökkvilið Vesturbyggðar býður upp á fræðslu um eldvarnir og öryggi bæði til stofnana og fyrirtæja.
Hér er verið að fræða starfsmenn Hvest á Patreksfirði.
13/10/2025
Á laugardaginn var vel heppnuð æfing þar sem slökkvilið Vesturbyggðar æfðu að klippa bíla og slökkva eld i bílum með segli one7 og vatni.
Virkilega gaman að sjá hvað seglið gerir mikið í bruna í bíl🔥