17/04/2026
Takk fyrir
Takk fyrir
Miðvikudaginn 15. apríl var aðalfundur hjá Bf. Blöndu. Á þeim fundi var m.a rætt um Ud. Hrútey og lýstu fundarmenn ánægju með hvernig til hefur tekist. Einn fundarmaður var heldri félagi, sem hefur að mestu dregið sig í hlé. Hann fagnaði starfi unglingadeildarinnar og ákvað að færa unglingastarfinu 100.000.- að gjöf. Við færum Lárusi B. Jónssyni bestu þakkir fyrir höfðinglega gjöf.
-meðfylgjandi mynd er tekin við undirbúning fyrir leitaræfingu
15/04/2026
Aðalfundur félagsins var haldinn í kvöld við góða mætingu. Farið var í gegnum hefðbundin aðalfundarstörf og starf félagsins á liðnu ári. Stjórnarmenn buðu síðan uppá veglegar kræsingar í kaffihléi. Tveir stjórnarmenn létu af störfum og þökkum við þeim fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins en þeir eru Þorgils Magnússon formaður og Ármann Óli Birgisson stjórnarmaður/ritari. Nýjir í stjórn eru Kristín Frímannsdóttir ritari og Richard Zharikov meðstjórnandi en þau voru sem varamenn. Formaður félagsins var kjörinn Hjálmar Björn Guðmundsson, varamenn í stjórn eru Sigursteinn V Hjálmarsson og Una Ósk Guðmundsdóttir.
Sigurður Rúnar Magnússon er áfram gjaldkeri félagsins og Björn Svanur Þórisson tók við sem varaformaður.
Á mynd frá vinstri
Sigurður, Hjálmar, Richard, Kristín, Björn, Una og Sigursteinn.
30/12/2025
ATH ATH
INNKÖLLUN Á "RAKETTUPAKKA 2" VEGNA GALLA!
Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld, þriðjudagskvöld, ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.
Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á gamlársdag, þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.
Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.