Minnum á laugardagsopnun!
Opið á morgun, 6. júní kl. 13:00 - 17:00 🍀☀️☕️
Héraðsbókasafn A-Hún
Héraðsbókasafn A-Hún er almenningsbókasafn staðsett að Hnjúkabyggð 30 á Blönduósi (Húnabyggð).
Opið mán-fim. 13-17, þrið 10-16 og fyrsta laugardag í mánuði 13-17.
01/06/2026
Nyjar sumarbækur! ☀️
20/05/2026
SUMARLESTUR 2026 ☀️
Gúndi geithafur hvetur öll 6–12 ára börn til að hjálpa honum að finna gras til að bíta. Með vegabréf í hönd safna þau stimplum, happamiðum og fá skemmtileg þrautablöð – eftir því sem þau lesa meira!
Hvað þarf að gera?🧐
Vera með vegabréfið (má sækja hjá okkur á bókasafninu!)
Hefja lestur! 🥳
Markmiðið er að lesa í 15 mínútur á dag og merkja þá við hvert barnið er komið á leið Gúnda í grasleitinni miklu 🐐🌿🌱
Það er löng helgi framundan ... opið í dag kl. 13:00 - 17:00 og svo næst 26. maí (þriðjudagur)
☀️☀️☀️
18/05/2026
Nýjar bækur : )
13/05/2026
Við sendum 5 spurningar til þeirra frambjóðenda sem eru efstir á listum í Húnabyggð og munum birta svörin hér í þeirri röð sem þau berast til okkar : )
📚 SPURT & SVARAÐ: Jón Gíslason
🍀 Hversu mikilvægt finnst þér að hafa bókasafn í samfélaginu okkar?
,,Mjög mikilvægt er að allir hafi aðgengi að bókum til að lesa."
📖 Hvaða bók ertu að lesa - eða hlusta á - núna?
,,Heljarslóðarorrustu."
🌎Uppáhalds barnabókin:
,,Bróðir minn Ljónshjarta"
☀️Hefur þú kíkt á bókasafn á þessu ári? Ef ekki, hvað myndi fá þig til að gera það?
,,Já það hef ég gert."
💬 Hvaða bók finnst þér að allir ættu að lesa einu sinni um ævina?
,,Á Hverfanda Hveli"
13/05/2026
Við sendum 5 spurningar til þeirra frambjóðenda sem eru efstir á listum í Húnabyggð og munum birta svörin hér í þeirri röð sem þau berast til okkar : )
📚 SPURT & SVARAÐ: Emil Jóhann Þorsteinsson
🍀 Hversu mikilvægt finnst þér að hafa bókasafn í samfélaginu okkar?
,,Mér finnst það mjög mikilvægt þar sem bókasöfn eru mikil menningarsetur og góður staður fyrir fólk að koma á."
📖 Hvaða bók ertu að lesa - eða hlusta á - núna?
,,Er að hlusta á Klukkurnar eftir Agatha Christie."
👍Uppáhalds barnabókin:
,,Kiddi klaufi er alltaf góður."
😎Hefur þú kíkt á bókasafn á þessu ári? Ef ekki, hvað myndi fá þig til að gera það?
,,Já kíkti á bókasafnið í vetur."
💬 Hvaða bók finnst þér að allir ættu að lesa einu sinni um ævina?
,,Bækurnar hennar Birgittu H. Halldórsdóttur."
12/05/2026
Við sendum 5 spurningar til þeirra frambjóðenda sem eru efstir á listum í Húnabyggð og munum birta svörin hér í þeirri röð sem þau berast til okkar : )
📚 SPURT & SVARAÐ: Kolbrún Ágústa Guðnadóttir
🍀 Hversu mikilvægt finnst þér að hafa bókasafn í samfélaginu okkar?
,,Það er gríðarlega mikilvægt. Ég vona að það séu allir duglegri að nýta bókasafnið okkar en ég sjálf."
📖 Hvaða bók ertu að lesa - eða hlusta á - núna?
,,Ég er reyndar með bók á náttborðinu en hún er búin að vera þar mjög lengi og ég mæli ekkert með henni."
👍Uppáhalds barnabókin:
,,Ég man að ég hafði mjög gaman af Dagbók Berts þegar ég var krakki. Taldi mig svo hafa dottið í lukkupottinn nýlega þegar ég komst yfir slíka bækur og hóf að kynna dæturnar fyrir alvöru barnabókmenntum. Ég las ekki margar bls. áður en ég lokaði þeim aftur. Þær eru barn síns tíma þó ekki sé meira sagt."
😎Hefur þú kíkt á bókasafn á þessu ári? Ef ekki, hvað myndi fá þig til að gera það?
,,Nei því miður, ég hef ekki gert það ennþá, en ég er búin að vera á leiðinni. Held að kvöldopnun myndi verða til þessa að ég kæmi því í verk."
💬 Hvaða bók finnst þér að allir ættu að lesa einu sinni um ævina?
,,Mér finnst að það eigi allir að lesa ævisögur fólks úr sinni heimabyggð. Mér finnst menningararfur falinn í frásögnum þeirra sem voru hér á undan okkur. Ég get t.d. nefnt Ævisögu Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði, ég hef lesið hana oftar en einu sinni."
12/05/2026
Við sendum 5 spurningar til þeirra frambjóðenda sem eru efstir á listum í Húnabyggð og munum birta svörin hér í þeirri röð sem þau berast til okkar : )
📚 SPURT & SVARAÐ: Helgi Páll Gíslason
🍀 Hversu mikilvægt finnst þér að hafa bókasafn í samfélaginu okkar?
,,Allt menningarstarf er mikilvægt hverju samfélagi."
📖 Hvaða bók ertu að lesa - eða hlusta á - núna?
,,Verð að viðurkenna að ég les ekki mikið, en þessa dagana les ég ekkert nema fjárbókina."
🌎Uppáhalds barnabókin:
,,Tvímælalaust er það ,,Helgi skoðar heiminn”."
😎Hefur þú kíkt á bókasafn á þessu ári? Ef ekki, hvað myndi fá þig til að gera það?
,,Já, hef farið i tengslum við vinnu."
💬 Hvaða bók finnst þér að allir ættu að lesa einu sinni um ævina?
,,Njála og Sjálfstætt fólk."
11/05/2026
Við sendum 5 spurningar til þeirra frambjóðenda sem eru efstir á listum í Húnabyggð og munum birta svörin hér í þeirri röð sem þau berast til okkar : )
📚 SPURT & SVARAÐ: Grímur Rúnar Lárusson
🍀 Hversu mikilvægt finnst þér að hafa bókasafn í samfélaginu okkar?
,,Mér finnst ekki bara mikilvægt heldur nauðsynlegt að hafa bókasafn í samfélaginu. Bókasafn Húnabyggðar er góður samverustaður fyrir fjölskyldur, skóla og leikskólahópa til að koma saman, skoða og lesa bækur. Bókasafnið viðheldur menningu, styður menntun og eykur lífsgæði íbúa."
📖 Hvaða bók ertu að lesa - eða hlusta á - núna?
,,Ég viðurkenni að ég er ekki nógu duglegur að lesa eða hlusta á bækur. Ég hlusta hins vegar mjög mikið á Í ljósi sögunnar með Veru Illugadóttur. Ég er svo fanatískur að ég hlusta stundum oft og mörgum sinnum á sama þáttinn. Þessa dagana eru það þættirnir um Fram leiðangur Fridtjof Nansen og félaga sem eru í uppáhaldi. Frábærir þættir!"
🥳Uppáhalds barnabókin:
,,Ætli það séu ekki bækurnar um Einar Áskel. Skil pabba hans alltaf meira og meira með hverju árinu sem líður."
😎Hefur þú kíkt á bókasafn á þessu ári? Ef ekki, hvað myndi fá þig til að gera það?
,,Hef ekki farið á þessu ári en fór síðast í haust. Ég þyrfti að vera duglegri við það því mér finnst alltaf jafn notalegt að vera þar með krakkana."
💬 Hvaða bók finnst þér að allir ættu að lesa einu sinni um ævina?
,,Ég ætla að koma með mjög leiðinlegt svar hér og segja Stjórnsýsluréttur - Málsmeðferð eftir Pál Hreinsson. Algjör biblía fyrir stjórnsýslunörda!"
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Address
Hnjúkabyggð 30
Blönduós
540
