Brunavarnir Austur-Húnvetninga

Brunavarnir Austur-Húnvetninga

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Brunavarnir Austur-Húnvetninga, Fire protection service, Efstubraut 2, Blönduós.

Brunavarnir Austur-Húnvetninga er slökkvilið sveitarfélagsins Húnabyggðar og er með starfsstöð á Blönduósi. Í liðinu eru um 25 hlutastarfandi slökkviliðsmenn ásamt slökkviliðsstjóra sem er í fullu starfi.

09/02/2026

Í tilefni af 112 deginum næsta miðvikudag, 11. feb.🚨þá verður hópakstur um þéttbýli Húnabyggðar kl. 17 🚒🚓🚑 síðan er ölum boðið að koma í húsnæðis Björgunarsveitarinnar Blöndu að Miðholti milli kl. 17.30 og 18.30 til að skoða bifreiðar og búnað viðbragðsaðila á svæðinu.

01/12/2025

🔥 Dagur reykskynjarans – 1. desember 🔥

Það er mikilvægt að prófa reykskynjarann að lámarki einu sinni á ári og skipta reglulega um rafhlöðu, þetta magnaða öryggistæki getur bjargað mannslífum!

https://www.vertueldklar.is/

10/02/2025

Í tilefni af 112 deginum á morgun🚨þá verður hópakstur um þéttbýli Húnabyggðar kl. 17 🚒🚓🚑 síðan er ölum boðið að koma í húsnæðis Björgunarsveitarinnar Blöndu að Miðholti milli kl. 17.30 og 18.30 til að skoða bifreiðar og búnað viðbragðsaðila á svæðinu.

01/12/2024

Dagur reykskynjarans er 1. desember ár hvert. Hefur þú athugað hvernig þínum reykskynjara líður? Ýttu á takkann! Það getur bjargað öllu.❤🔋🧯

Photos from Brunavarnir Austur-Húnvetninga's post 10/09/2024

Auglýsum eftir nýjum liðsmönnum !!!🧑‍🚒👩‍🚒👨‍🚒Umsóknarfrestur er til og með 24. september 2024! 📝 Fyrir áhugasama þá verður haldið kynningarkvöld þann 18. september næstkomandi kl. 20:00 á slökkvistöðinni að Efstubraut 2.🚒

Photos from Brunavarnir Austur-Húnvetninga's post 14/05/2024

Síðasta laugardag var haldin stór hópslysaæfing á Norðurlandi vestra þar sem allar viðbragðseiningar í landshlutanum æfðu viðbrögð við hópslysi. Frábær þáttaka var hjá viðbragðsaðilum og tuttugu sjálfboðaliðar komu að því að leika slasaða til að gera æfinguna sem raunverulegasta. Æfingin var hin besta og gríðalegur lærdómur sem hlýst af fyrir alla aðila sem að henni komu. Liðsmenn Brunavarna Austur-Húnvetninga þakka öllum þeim sem tóku þátt og lögðu hönd á plóg til að láta þessa þörfu æfingu verða að veruleika.

06/05/2024

Hópslysaæfing framundan á NV🚓🚒🚑

Næstkomandi laugardag 11. maí, verður haldin stór hópslysaæfing í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. Vettvangur "slyssins" verður ofan Blönduóss eða á gatnamótum Ennisbrautar og Neðribyggðarvegar. Af þeim sökum verður Ennisbraut lokuð við Mýrarbraut og Þverárfjallsveg frá kl.11:00 og fram eftir degi. Það má reikna með því að bifreiðum sem ætlaðar eru til neyðaraksturs verði ekið með forgangsmerkjum á þessum tíma um Ennisbraut og Húnabraut að fjöldahjálparstöð og söfnunarsvæði slasaðra sem verður í íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Það skal tekið fram að æfingar sem þessar eru bráðnauðsynlegar til að æfa viðbragð og stjórnskipulag. Reikna má með því að heildarfjöldi þeirra sem að æfingunni komi muni verða vel á annað hundrað. Þar er um að ræða viðbragðseiningar úr Skagafirði og báðum Húnavatnssýslum.

03/05/2024

Vertu með í að vera eldklár!!

Vinnur þú brunapottinn? 🔥

Taktu þátt í swipe leiknum okkar til þess að athuga hvort þú sért eldklár 👉🏼 https://bit.ly/ertueldklar

Þeir sem taka þátt eiga möguleika á að vinna:

👉🏼 10 reykskynjarar
👉🏼 6 slökkvitæki
👉🏼 5 eldvarnarteppi
👉🏼 3 gjafabréf að andvirði 10.000 kr.

112 dagurinn í Húnabyggð 11/02/2024

112 dagurinn🚨 Í dag kl. 15:30 ætla viðbragðsaðilar að keyra hring um bæinn. Eftir aksturinn verður áhugasömum boðið að skoða tæki og búnað við lögreglustöðina.🚒

112 dagurinn í Húnabyggð 112 dagurinn er á morgun og af því tilefni ætla viðbragðsaðilar í Húnabyggð að hittast á planinu við lögreglustöðina kl. 15:30 og fara þaðan rúnt um bæinn okkar og enda svo rúntinn fyrir framan lögreglustöðina.

02/12/2023
Want your business to be the top-listed Government Service in Blönduós?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Efstubraut 2
Blönduós
540