30/05/2026
Síðasti tíminn fyrir sumarfrí nk þriðjudag
Bókasafn Bolungarvíkur er staðsett að Aðalstræti 21. Opnunartímar eru:
Þriðjudagar: 15-17
Miðvikudagar:15-17
Fimmtudagar: 15-17
30/05/2026
Síðasti tíminn fyrir sumarfrí nk þriðjudag
29/05/2026
Bókmenntahátíð Flateyrar hefst í dag!
Viðburðaröð dagsins ‼️‼️‼️
📝 Í dag munu Eliza Reid og Ólafur Guðsteinn Kristjánsson spjalla um bókmenntir og tungumál kl. 15:00 í Samkomhúsið á Flateyri (í Grunndatíg 21 https://maps.app.goo.gl/PWuQzphCo9n7jMwv7 )
⏰ Svo mun Heiðrún Ólafsdóttir tala við Birta Ósmann Þórhallsdóttir og Brynju Hjálmsdóttir um skáldskap og umbreytingu kl. 18:00 í Bryggjukaffi
🇻🇪 Eftir það halda Luis Miguel Isava, Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur og Helen Hafgnýr Cova málþing um bókmenntir frá Venesúela kl. 19:30 í samkomuhúsinu. Þar verðum við m.a með goðan mat og drykk frá Venesúela!!
📣📣📣 ATH
Mig langar að minna ykkur á að Bryggjukaffi er opið frá kl 11:00 og þangað til viðburðinum þar lýkur.
Gamla Bókabúðin verður opinn frá 10:00 til 17:00 á meðan hátíðin stendur.
Viðburðaröðin í dag er styrkt af Bryggjukaffi Karíba Útgáfa Verkalýðsfélag Vestfirðinga Wild Westfjords og Höllvinasamtök Samkomuhússins
21/05/2026
Tímarit og bækur!
20/05/2026
Í dag byrjar skráning í sumarlestur/lestrar-sprett bókasafnsins. Í ár er það Gúndi geithafur sem þarf á hjálp krakkanna að halda. Í heimahaga þar sem Gúndi býr er ekki eitt stingandi strá að bíta og garnirnar hreinlega gaula í honum. Krakkarnir eru þeir einu sem geta hjálpað aumingja Gúnda að komast á draumastað hans sem er Grænahlíð en þar er grasið alltaf grænna. Allir sem koma á bókasafnið og skrá sig fá vegabréf með korti af Dindilfirði þar sem Gúndi býr. Fyrir hvern dag sem lesið er í a.m.k. 15 mínútur kemst Gúndi svo áfram á kortinu í sífellt betri bithaga. Heppilegt er að aðstandendur komi með yngri börnunum þegar þau eru skráð svo allir séu með það á hreinu hvernig allt virkar
13/05/2026
Nokkrar bækur sem komu í þessari viku ásamt bókinni áfall og hvað svo sem kom fyrir nokkru síðan.
13/05/2026
Tölum íslensku saman. Það er svona einfalt :) Allavega hér :)
Hraðíslenska lýtur sömu lögmálum og hraðstefnumót nema markmiðið er ekki að ná sér í framtíðarmaka heldur æfa sig í íslensku. Móðurmálshafar æfa sig að tala við þá sem læra (já, það er kúnst) og þeir sem læra æfa íslenskuna sína. Allt í mesta bróðerni með allskonar íslensku í kjaftinum og bros á vör
05/05/2026
Þessar komu í dag!
29/04/2026
28/04/2026
Þrátt fyrir að nú sé komin 18 vika ársins ætlum við að halda upp á 17 viku sem er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum.
Áttu ekki föt, teppi eða jafnvel tuskudýr sem þú hefur lengi ætlað að laga?
Sláðu þrjár flugur í einu höggi; vertu sjálfbær, kláraðu viðgerðirnar og hafðu gaman.
Á staðnum verða tvinnar, nálar, hugmyndir að viðgerðum og að sjálfsögðu nýja saumavélin okkar.
Verkefnið Vika 17 á uppruna sinn að rekja til Danmerkur en er í dag taka hátt í 200 bókasöfn frá 12 mismunandi löndum þátt. Markmiðið er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum 17 með fjölbreyttum viðburðum og sýna að við getum öll lagt okkar af mörkum.
24/04/2026
Tímarit og bækur sem bíða þín á þriðjudaginn!
| Tuesday | 15:00 - 17:00 |
| Wednesday | 15:00 - 17:00 |
| Thursday | 15:00 - 17:00 |