20/01/2015
Skólaútgáfa Sýningar um íslenskt atvinnulíf var á ferð og flugi í grunn- og framhaldsskólum á Vesturlandi fyrir áramót. Nú er komið að höfuðborgarsvæðinu og verða skólar á Kjalarnesi, Norðlingaholti og Mosfellsbæ heimsóttir á næstu vikum. Allt um sýninguna hér fyrir neðan.
Sýning um íslenskt atvinnulíf Sýning um íslenskt atvinnulíf er samtíma atvinnulífssýning sett upp af Háskólanum á Bifröst í samstarfi við 35 íslensk fyrirtæki af öllum sviðum atvinnulífsins. Meginuppistaða sýningarefnisins eru veggspjöld þar sem starfsfólk fyrirtækjanna segir sína sögu af þeim verðmætum sem það skapar í daglegu…
