Breiðdalssetur

Breiðdalssetur

Share

Í Breiðdalssetri eru sýningar um jarðfræði, málvísindi og sögu hússins, þorpsins og byggðarlagsins. a

Photos from Breiðdalssetur's post 03/06/2022

Kæru vinir athugið!
Lokað verður á hvítasunnudaginn, í staðinn er opið í dag föstudaginn 3. júní.
Viljum annars hvetja fólk til að koma og skoða nýju sýninguna okkar ,,Borkjarnar: Skyggnst undir yfirborðið".
Almennur opnunartími í sumar er sun-fim frá 12 - 16.
--------------------------------------------------------------------------
Dear friends!
It will be closed Sunday 5th, but open today (Friday).
Come see our new exhibition "Drill Cores: A Glimpse beneath the Surface."
General opening hours this summer: Sun-Thu from 12 - 4 pm.
☺️

09/08/2021

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík og Breiðdalssetur ses bjóða til hefðbundins árlegs málþings laugardaginn 21. ágúst næstkomandi í Gamla kaupfélaginu á Breiðdalsvík.

Tobias Björn Weisenberger, forstöðumaður rannsóknasetursins, mun opna málþingið kl. 14.00. Fyrsti hluti málþingsins verður helgaður jarðfræðilegri þrenningu Breiðdalsvíkur - Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúruminjasafni Íslands og Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík - sem munu kynna starfsemi sína og framtíðarsýn. Í kjölfarið verður röð erinda um jarðfræðileg málefni. Kristján Leósson og Ágúst Guðmundsson munu fjalla um þætti í jarðfræði Austurlands. Amel Barich, jarðfræðingur og verkefnisstjóri hjá GEORG - Geothermal Research Cluster, og Tobias Weisenberger munu veita innsýn í tvö nýleg alþjóðleg rannsóknarverkefni á Íslandi. Nýjar rannsóknir í hugvísindum verða til umfjöllunar hjá Unni Birnu Karlsdóttur og Soffíu Auði Birgisdóttur, sem starfa við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Egilsstöðum og Hornafirði. Aðalfyrirlesarinn verður Þorvaldur Þórðarson, prófessor í bergfræði og eldfjallafræði við Háskóla Íslands, og ber erindi hans titilinn „Gosið í Geldingadölum 2021, framvinda og áhrif“.

Öll hjartanlega velkomin. Aðgangur er ókeypis og léttar veitingar verða á boðstólum í hléum.

Photos from Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík's post 16/06/2021

Minnum á opnun á morgun! :)

11/06/2021

Vil eindregið hvetja alla til að fara inn á nýju síðuna og ,,læka"!

Það er frábært að okkar litla Breiðdalsvík hafi nú Rannsóknarsetur í jarðfræðum! Formleg opnunarathöfn verður 17. júní og léttar veitingar í boði. Meiri upplýsingar um það á síðunni.

Hlökkum til að sjá ykkur öll

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík Rannsóknasetur á sviði jarðfræði og málvísinda. Spennandi sýningar í húsnæðinu - aðgangur ókeypis!

18/03/2021

Í morgun var haldinn Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands.
M.a. voru fluttir 5 mjög áhugaverðir fyrirlestrar sem starfsmenn rannsóknarsetra fluttu. M.a. var fjallað um rýrnun jökla og sýnd afar áhugaverð en jafnframt sláandi stutt kvikmynd sem heitir After ice og fjallar um rýrnun skriðjöklanna í sunnanverðum Vatnajökli. Hér er slóð á þessa frábæru kvikmynd:
https://vimeo.com/504355699
Hvet alla til að kíkja á þessa mynd, látið byrjunina ekki trufla ykkur.
Myndin sem hér fylgir er tekin af tölvuskjá og því ekki góð.

09/12/2020

Mig langar að benda lesendum á upplestur úr bókinni Leiðarvísir um jarðfræði Austurlands á vefnum austurfrett.is. Breiðdalssetri var boðið að taka þátt í Rithöfundalestinni 2020 og var það boð þegið með þökkum. Gunnar Gunnarsson, ritsjóri Austurfréttar sá um að taka upp og hér er það Páll Baldursson, varamaður í stjórn Breiðdalsseturs sem les.
Minnt er á að hægt er að panta bókina á netfanginu [email protected] Tilvalin jólagjöf. Frekari upplýsingar um bókina eru í færslu hér að ofan.

29/11/2020

Kæru lesendur síðunnar.
Breiðdalssetur kynnir bókina „Leiðarvísir um jarðfræði Austurlands“ sem er íslensk þýðing á bókinni sem Breiðdalssetur gaf út á ensku í fyrrahaust.
Bókin er 160 bls og hin eigulegasta. Áhugamenn um jarðfræði munu eflaust fagna þessari glæsilegu bók. Um íslenska þýðingu sáu Vésteinn Ólason og Sigurður Steinþórsson.
Bókin kostar 4.000 kr og við bætist sendingarkostnaður ef bókin er send með pósti, 300 kr.
Hægt er að panta bókina hjá Breiðdalssetri á netfanginu [email protected]
Vinsamlegast athugið að netfang er nýtt.
Tilvalin jólagjöf fyrir áhugafólk um jarðfræði.
Þið megið gjarnan deila þessari frétt.

Nýtt rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík | Stofnun Rannsóknasetra Háskóla Íslands 24/09/2020

Nú er búið að tilkynna stofnun Rannsóknaseturs HÍ á Breiðdalsvík og auglýsa eftir tveimur jarðfræðingum.
Til hamingju Breiðdælingar og Austfirðingar allir.

Nýtt rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík | Stofnun Rannsóknasetra Háskóla Íslands Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands hyggst koma á fót Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík á grunni starfsemi Breiðdalsseturs ses. Rannsóknasetrinu er einkum ætlað að sinna rannsóknum á sviði jarðfræði og málvísinda. Aðsetur þess verður í Gamla Kaupfélagin...

Want your business to be the top-listed Government Service in Breiðdalsvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sæberg 1
Breiðdalsvík
760

Opening Hours

Monday 12:00 - 16:00
Tuesday 12:00 - 16:00
Wednesday 12:00 - 16:00
Thursday 12:00 - 16:00
Sunday 12:00 - 16:00