Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar

Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar

Share

Eigna- og framkvæmdadeild hefur umsjón og eftirlit með framkvæmdum og öllum eignum Dalvíkurbyggðar.

28/03/2026

❄️❄️ Snjómokstur ❄️❄️
Mikið hefur bætt í snjóinn síðasta sólarhring og víða þungfært. Von er á meiri úrkomu á morgun og aðfararnótt mánudags.
❄️ Á Dalvík er verið að moka fyrsta forgang og eftir það verður farið í að opna götur í öðrum forgangi. Þriðji forgangur bíður fram yfir næsta úrkomuskot. Verið er að blása helstu göngustíga og gönguleiðir.
❄️ Á Árskógssandi og Hauganesi verður stungið í gegn í dag en beðið með hreinmokstur fram á mánudagsmorgun.
❄️ Unnið er að því að opna vegina fram í Svarfaðar- og Skíðadal.

13/03/2026

Við erum stolt af þessum fallega bekk 💜

Dalvík hefur eignast fjólubláan bekk 💜

Fyrir nokkrum vikum kviknaði sú hugmynd á Dalvík að setja upp fjólubláan bekk. Kristín Heiða Halldórsdóttir, Alzheimertengill á staðnum, tók málið að sér og starfsmenn áhaldahússins brugðust fljótt við.

Bekkurinn er nú kominn upp við Kirkjuveg, skammt frá hjúkrunarheimilinu. Þar liggur einnig fjölfarinn göngustígur svo bekkurinn er vel sýnilegur. Frá honum blasir við fallegt útsýni, bæði niður að sjó og upp til fjalla, auk þess sem þaðan sést til leikskólans og hjúkrunarheimilisins.

Fjólubláum bekkjum er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu.

12/03/2026

Þessi kerruljósabúnaður fannst við gatnamótin fram í Svarfaðardal að vestan.
Það er hægt að vitja hans hjá okkur í Áhaldahúsinu.

Photos from Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar's post 09/03/2026

Hér hjá okkur í Áhaldahúsinu er þessi læða sem vill gjarnan komast heim til sín. Hún gerði sig heimakomna í húsi við Skíðabraut og var komið til okkar. Hún er hvorki með örmerkingu eða ól en er greinilega ljúfur heimilisköttur 🐈
Það má vitja hennar hjá okkur niður á Sandskeiði 🙂

Photos from Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar's post 18/02/2026

✨️ Öskudagur í Áhaldahúsinu ✨️

04/12/2025

Takk takk fyrir komuna áðan þegar við kveiktum á jólatrénu okkar✨️🌲🎉
Jólatréð í ár er fallegt grenitré sem var gefið af íbúum í Karlsrauðatorgi 12. Bestu þakkir til þeirra ❤️
Það var hún Kolla Páls sem fékk heiðurinn að því að kveikja á trénu í ár. Kolla er ein af þeim íbúum sem er hvað duglegust við að heyra í okkur og senda okkur ábendingar og hennar áhugi og metnaður fyrir nærumhverfinu er til fyrirmyndar ⚘️

05/08/2025

Vinna á leiksvæðinu á Hauganesi
Athygli íbúa er vakin á því að næstu daga verður unnið að betrumbótum á leiksvæðinu á Hauganesi.
Í dag verður eldri ærslabelgur fjarlægður og jarðvegur hreinsaður og jafnaður. Nýr belgur verður svo settur upp á morgun. Hann ætti að vera kominn í fulla notkun fyrir helgina.
Einnig er fyrirhugað að setja upp leiktæki fyrir yngstu notendur leiksvæðisins.
Vinsamlegast takið tillit til þess að svæðið verður vinnusvæði næstu 2-3 dagana :)

03/02/2025

Það er útlit fyrir sviptingar í veðrinu en gul og svo appelsínugul viðvörun verða í gildi næsta sólarhringinn. Það verður ekkert ferðaveður og má jafnvel búast við staðbundnu foktjóni.
Við viljum biðja íbúa að huga að lausafjármunum eða því sem getur fokið til. Um að gera að festa ruslatunnur eða færa í skjól meðan veðrið gengur yfir ❄️⛈️

Opinn fundur með verktökum 13/01/2025

Opinn fundur í Bergi miðvikudaginn 22. janúar þar sem verkefni ársins 2025 verða kynnt 🛠🚜🚧🌳

Opinn fundur með verktökum Miðvikudaginn 22. janúar verður opinn fundur með verktökum í menningarhúsinu Bergi kl. 17:00Á fundinum verður farið yfir helstu verkefni ársins 2025 hjá sveitarfélaginu, bæði verður farið yfir nýframkvæmdir sem og viðhaldsframkvæmdir. Einnig verður farið yfir verkáætlanir, v...

07/01/2025

ATH!!

Want your business to be the top-listed Government Service in Dalvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Sandskeið 26
Dalvík
620

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 15:00