23/04/2026
Það gleður okkur óumræðilega mikið að sjá Minjasafn Austurlands og Tækniminjasafn Austurlands/, okkar nánu og góðu samstarfsaðila í ýmsu bralli, hljóta tilnefningu til Íslensku safnaverðlaunanna. Þetta eiga þau svo sannarlega skilið.
Áfram Austurland og áfram faglegt og fjölbreytt safnastarf!
https://www.facebook.com/share/p/18d8JFENFt/
27/03/2026
Safnið lokar stuttlega, til kl. 14 í dag, meðan starfsfólkið bregður sér af bæ.
Við vonum að þetta valdi ekki óþægindum en biðjumst velvirðingar ef það verður.
11/02/2026
Það er margt forvitnilegt að finna á vef Icelandic Roots og merkilegt starf sem þar er unnið. Hér er stutt grein um Mekkin Perkins, en foreldrar hennar, sem komu úr Fljótsdal og Loðmundarfirði, fluttu vestur um haf áður en hún fæddist. Mekkin þessi var sonardóttir Mekkínar skyggnu.
Mekkin Sveinson Perkins, the Translator
Remembering Mekkin Sveinson Perkins, a talented and driven woman who defied the social norms and its pressures on woman in the workforce.
21/12/2025
Njótið jólanna sem allra best og við sjáumst og heyrumst á nýju ári. Kær kveðja frá starfsfólki Héraðsskjalasafnsins.
19/12/2025
Loksins virðist vera að færast einhver ró yfir álfagreyin. Við erum annars á leið í jólafrí eftir daginn í dag. Opnum aftur 2. janúar. Vonandi verða þessir gaurar farnir þegar við komum aftur!
Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum
Bókasafn Héraðsbúa
16/12/2025
Engir álfar urðu fyrir varanlegum skaða við gerð þessa jóladagatals, þó þetta líti vissulega hreint ekki vel út svona á mynd!
Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum
Bókasafn Héraðsbúa
11/12/2025
Sennilega eru þeir bara að taka sér smá hvíld meðan þeir upphugsa ný skammarstrik og óknytti!
Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum
Bókasafn Héraðsbúa
08/12/2025
Þeim er ekkert heilagt þessum álfum...
Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum
Bókasafn Héraðsbúa
05/12/2025
Íslensk sagnfræði er í útrás um þessar mundir því reglulega sjáum við rannsóknir á sögu Íslands koma út hjá erlendum bókaforlögum. Þannig verður saga Íslands aðgengileg sífellt stærri hópi enskumælandi fræðafólks og áhugafólks um sagnfræði. Þessar tvær bækur komu út hjá Routledge og eru nú aðgengilegar í bókasafni Héraðsskjalasafns Austfirðinga.
03/12/2025
Jólaálfarnir þvælast um Safnahúsið í desember og virða engin mörk! Við reynum að flytja fregnir af desemberævintýrum þeirra gegnum samfélagsmiðla safnanna í húsinu.
Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum
Bókasafn Héraðsbúa