Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum

Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum

Share

Minjasafn Austurlands - Laufskógar 1 - 700 Egilsstaðir - [email protected] Amongst things on display is a living room from an old Icelandic turf house.

Minjasafn Austurlands varðveitir minjar um sögu, menningu og samfélag fjórðungsins. Á safninu eru tvær sýningar, annars vegar sýningin Hreindýrin á Austurlandi þar sem fjallað er um þessi einkennisdýr Austurlands og hins vegar sýningin Sjálfbær eining þar sem til sýnis eru gripir sem tilheyra sögu gamla sveitasamfélagsins eins og það var fram undir miðja 20 öld.

Á safninu er lögð áhersla á að ta

16/06/2026

Ljóð á flugi er sýning sem Minjasafn Austurlands og Héraðsskjalasafn Austfirðinga hafa sett upp í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní. Hér hjálpa söfnin tuttugu ljóðum úr safnkosti skjalasafnsins að hefja sig til flugs. Ljóðin eru eftir tuttugu ljóðskáld frá Austurlandi og leitast var við að velja ljóð eftir minna þekkt skáld og sem ekki hafa komið út á bók. Ljóðin eru til í skjalasafninu, ýmist í handritum eða vélritum skáldanna sjálfra eða einhverra sem skrifuðu þau hjá sér og varðveittu. Minjasafnið verður opið frá 11-17 á þjóðhátíðardaginn og aðgangur er ókeypis 🇮🇸🇮🇸🇮🇸

12/06/2026

Þegar úti er veður vott, getur verið kjörið að leita skjóls inni á safni! Opið alla virka daga frá kl. 10-17 og laugardaga frá kl. 11-17. Verið öll velkomin.

05/06/2026

Nú er tilvalið að láta ljós sitt skína í ljósmyndasamkeppni um Kjarval á Austurlandi! ✨

28/05/2026

Viðbyggingin tekur óðum á sig mynd - en síðasta föstudag fór fyrsta sperran upp og haldið upp á það með smá reisugilli á kaffistofunni! 🍰

Hvernig líst ykkur á?

Verður gaman að fylgjast með næstu mánuði!

23/05/2026

Það var skemmtileg umfjöllun í fréttatíma RÚV um leiðsagnir á einfaldaðri íslensku sem Minjasafnið hefur boðið upp á í vetur. Michelle Mielnik hefur leitt verkefnið ásamt Eyrúnu Hrefnu Helgadóttur, verkefnastjóra safnfræðslu og miðlunar á safninu. Við vonum sannarlega að framhald verði á þessu skemmtilega verkefni sem fékk styrk úr sjóði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis (Örvar) og sa.mfélagssjóði Alcoa. Slóð á fréttina er að finna í fyrstu athugasemd.

Photos from Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum's post 22/05/2026

Í morgun fengum við vaska 5. bekkinga í Egilsstaðaskóla í heimsókn þar sem þau tóku þátt í lásalausnum (BreakOut) með hreindýraþema! BreakOut er kennsluform þar sem nemendur vinna saman að því að opna lása á sérstökum kassa og nota til þess fyrirliggjandi gögn og vísbendingar - að þessu sinni um hreindýrin! Hrikalega spennandi og góð stemning! Takk fyrir komuna kæru 5. bekkingar! 🙌🏼

Alþjóðlegi safnadagurinn á Minjasafninu 19/05/2026

Frábær ganga með eldri borgurum og nýbúum á alþjóðlega safnadeginum! Takk öll sem mættu 🙌

Alþjóðlegi safnadagurinn á Minjasafninu Minjasafn Austurlands varðveitir minjar um sögu, menningu og samfélag fjórðungsins.

Photos from Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum's post 18/05/2026

Það var hátíðleg stund á Kjarvalsstöðum í dag þegar Íslensku safnaverðlaunin voru veitt í fimmtánda sinn. Fimm söfn voru tilnefnd, þ. á m. Minjasafn Austurlands (í samstarfi við Sláturhúsið Menningarmiðstöð, Skaftfell Art Center og Hanna Christel Sigurkarlsdóttir) og Tækniminjasafn Austurlands/ Technical Museum of East Iceland. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, afhenti verðlaunin sem í ár féllu Listasafni Íslands í skaut. Það er gríðarleg hvatning fyrir safnasamfélagið hér eystra að hljóta þessar tilnefningar og þær eru til marks um það metnaðarfulla og stórhuga starf sem hér er unnið.

Want your business to be the top-listed Government Service in Egilsstaðir?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Laufskógar 1
Egilsstaðir
700

Opening Hours

Tuesday 11:00 - 16:00
Wednesday 11:00 - 16:00
Thursday 11:00 - 16:00
Friday 11:00 - 16:00