10/02/2026
Byrja við Tehúsið. Tökum þátt í 112 deginjm og verum vakandi fyrir slysum.
112 dagurinn er á morgun 11.febrúar. Viðbragðsaðilar á Héraði ætla að sameinast í hópakstri í tilefni dagsins. Farið verður frá planinu við Tehúsið á Egilsstöðum kl 17:00 og ekinn hringur um Fellabæ og Egilsstaði undir bláum ljósum. Að loknum akstri kl 17:30 verður stöðvað við Tehúsið þar sem bílar og búnaður verður til sýnis.
22/11/2025
Athafnafólkið Gabriel og Þóra kaupa Neyðarkall, Bsv Héraðs. Bestu þakkir fyrir stuðninginn.
13/11/2025
Styrktaraðilar Björgunarsveitarinnar Héraðs tóku vel á móti söluaðilum og keyptu Neyðarkallinn.
Kunnum við þeim kærar þakkir fyrir.
05/11/2025
Næstu daga fer fram árleg sala á neyðarkallsins 2025. Ykkar stuðningur er mikilvægur og skiptir okkur miklu máli til að halda úti öflugu starfi Björgunarsveitarinnar.
Þann 5.- 7. nóvember mun sölufólk okkar standa vaktina við Bónus og ÁTVR.
Takið vel á móti sjálfboðaliðunum okkar.
Hafi fyrirtæki áhuga á að styrkja starf okkar með kaupum á stórum neyðarkalli er hægt að senda okkur línu á [email protected]
05/02/2025
Í kvöld 5.febrúar kl 20.00 tekur í gildi rauð viðvörun hér á austfjörðum. gert er ráð fyrir miklu roki, stendur hún til 04.00 í nótt, dúrar svo í 3 klst eða þar til kl 07.00 í fyrramálið, en þá kemur næsta veðurlægð og stendur rauð viðvörun til 18.00 annað kvöld 6.febrúar.
Biðjum við fólk um að huga að lausa munum og festa allt lauslegt, spáð er sunnan eða suðvestan átt og hviðum alveg uppí 50 m/s og stöðugum vindi frá 28 - 33 m/s.
Verum ekki á ferðinni að ástæðulausu.
28/12/2024
Flugeldasalan opnar kl. 17 og er opin til kl.21 í dag 28.des
27/12/2024
Árið 2024 og þrettándann 2025. 🎉🎆🎈
Flugeldar, flugeldasala, kaupa flugelda verður hægt hjá Bsv Hérað í Miðási 1, sem hér segir: 🔥🚀💥
Laugardag 28.des. kl.17-21 🎇✨
Sunnudag 29.des. kl.14-21 🎆🎉
Mánudag 30.des kl. 14-21 🎈🎊
Þriðjudag 31.des. kl. 10-15 🚀💥
Mánudag 6.jan. kl. 12-15 🎇✨
31/10/2024
EFLA, Landsnet, VR og A4 Egilsstöðum styðja okkur með kaupum á stórum Neyðarkalli.
Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn 😊
30/10/2024
RARIK, Austurnet og Neyðarþjónusta Austurlands styðja okkur með kaupum á stórum Neyðarkalli.
Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn 😊
Hægt er að kaupa stóra Neyðarkallinn með því að senda okkur skilaboð á Facebook
30/10/2024
Rafey, MVA ehf og Íslandsbanki styðja okkur með kaupum á stórum Neyðarkalli.
Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn 😊
Hægt er að kaupa stóra Neyðarkallinn með því að senda okkur skilaboð á Facebook